Saga - 2014, Qupperneq 154
fengur hefði verið í veglegri menningarsögulegri greiningu á myndum
Sigfúsar og því samfélagi sem þær túlka. Það er merkilegt hversu áþekkar
stóru myndabækurnar með verkum Sigfúsar eymundssonar eru — jafnt í
formi sem efnistökum — þrátt fyrir að tæpir fjórir áratugir skilji þær að.
Davíð Ólafsson
Guðni Thorlacius Jóhannesson. THe HISToRy oF ICeLAND. The
Green wood Histories of the Modern Nations. Santa Barbara: Green -
wood, 2013. xvi+172 bls. kort og atriðisorðaskrá.
Þótt íslensk saga hafi lengi gegnt lykilhlutverki í sjálfsmyndarsköpun
þjóðarinnar þá hafa Íslendingar ekki verið neitt sérlega iðnir við að semja
greinargóð yfirlitsrit um þjóðarsögu sína, a.m.k. ekki ef borið er saman við
ýmsar nágrannaþjóðir okkar. Nokkur tilhlaup hafa þó verið gerð að stærri
bókaflokkum um efnið, þar sem segja átti opinbera sögu íslensku þjóðarinn-
ar frá upphafi til samtímans, en þær tilraunir hafa flestar gengið fremur
brösug lega. Þannig dagaði ritröðina Saga Íslendinga, sem Menntamálaráð og
Þjóðvinafélagið hófu að gefa út á fimmta áratugnum, uppi þegar komin
voru út fimm og hálft bindi af áætluðum tíu, og Saga Íslands, sem
Þjóðhátíðarnefnd réðst í til að minnast 11 alda byggðar í landinu árið 1974,
er ekki enn að fullu sögð nú sléttum fjórum áratugum eftir að fyrsta bindið
í bókaflokknum kom út. Í þessu ljósi er athyglisvert hversu mörg sæmilega
ítarleg yfirlitsrit um Íslandssögu hafa komið út á erlendum tungumálum á
síðustu árum; árið 1985 gaf t.a.m. Politiken-forlagið danska út Íslandssögu
í einu bindi eftir Björn Þorsteinsson, í samvinnu við Bergstein Jónsson og
Helga Skúla kjartansson (Island) — en staðfærð gerð hennar kom út á
íslensku hjá Sögufélagi ári síðar (Íslandssaga til okkar daga) — og árið 2000
kom út yfirlit um sögu Íslands á ensku eftir Gunnar karlsson (bresk útgáfa
bókarinnar heitir Iceland’s 1100 years: the history of a marginal society en banda-
rísk The history of Iceland). og nú er komið út enn eitt ritið af sama meiði, The
History of Iceland eftir Guðna Th. Jóhannesson, hjá bandaríska forlaginu
Greenwood en sérgrein þess eru yfirlitsrit af ýmsum toga.
Bók Guðna er skrifuð í skugga hruns íslenska efnahagskerfisins haustið
2008, þegar Ísland breyttist nær því á einni nóttu úr meintu efnahagsundri
í hálfgert viðundur. Þessi þáttaskil setja mark sitt á bókina því að þau
breyttu — að sögn Guðna — algerlega því sjónarhorni sem hann ætlaði
upphaflega að nota við ritun hennar. Hinn hefðbundni frásagnarrammi
Íslandssagna hefur verið, bendir hann réttilega á í inngangi, sagan af
þjóðinni sem átti sér glæsta fortíð, féll síðan í dýpstu örbirgð undir erlendri
stjórn áður en hún reis úr öskustónni á undravert skömmum tíma, knúin
áfram af nýfengnu frelsi undan erlendri stjórn. Þessi söguþráður, sem á sér
ritdómar152
Saga haust 2014 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:15 Page 152