Saga - 2014, Side 164
Danmörku, Rannís, Ríkisskjalasafni Danmerkur, Sögufélagi og Þjóð -
skjalasafni Íslands. Skjölin verða gefin út í sex bindum, ef að líkum
lætur, og liggur mikil rannsóknarvinna að baki þessu verki. Til
stendur að birta skjöl jafnframt á heimasíðum skjalasafnanna tveggja.
Heita má víst að þetta stórvirki geti valdið þáttaskilum í rannsókn-
um og þekkingu á sögu Íslands á því tímabili sem um ræður.
Útgáfa fram undan. Þegar er getið sögu Sögufélags og útgáfu
landsnefndarskjalanna. Þess er enn fremur að geta að Sögufélag,
Háskólaútgáfan og ritstjórar Sýnisbókar íslenskrar alþýðumenn -
ingar hafa samið um aðild félagsins að þeirri ritröð. Sögufélag
styrkir röðina árlega með 300 þúsund króna framlagi næstu fjögur
ár. Stuðnings Sögufélags verður að góðu getið í væntanlegum ritum.
Auk alls þessa eru vitaskuld uppi áform um útgáfu stakra rita og
munu þau fyrstu koma út á fyrri hluta næsta árs. Með þessum hætti
teljum við í stjórn Sögufélags að félaginu muni áfram takast að
rækja það meginhlutverk sitt sem nefnt er í annarri grein laga þess:
„að gefa út tímarit, heimildarit og annað efni um sagnfræði og sögu-
leg efni, einkum um sögu Íslands“.
Með þeim orðum lauk ég skýrslu stjórnar en venjuleg aðalfundar -
störf héldu áfram. Gjaldkeri Sögufélags, Bragi Þorgrímur Ólafs son,
gerði ítarlega grein fyrir reikningum félagsins og lagði þá fram til
samþykktar. eftir nokkar fyrirspurnir, sem Bragi svaraði greiðlega,
var ársreikningur Sögufélags samþykktur samhljóða. Röðin var þá
komin að stjórnarkjöri. ekki kom til forsetakjörs því að ég var að
ljúka fyrri hluta tveggja ára kjörtímabils. Þar að auki varð engin
önnur breyting á stjórn, en það er fátítt hjá Sögufélagi. Allir stjórn-
armenn og báðir varastjórnarmennirnir gáfu kost á sér til endurkjörs
og náðu því með lófataki. Sama gilti um skoðunarmenn reikninga,
þeir voru endurkjörnir með lófataki; Guðmundur Jónsson prófessor
og Sveinn Agnarsson, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands,
auk varaskoðunarmannsins Gísla Gunnarssonar, prófessors emer-
itus.
Að lokum var í boði að ræða önnur mál en á því reyndist ekki
þörf. Fundargestir hlökkuðu auk þess til að hlýða á auglýst erindi
Írisar ellenberger að loknum fundi, um sögu Sögufélags. Fundar -
stjóri sleit því fundi kl. 15:50. Að kaffihléi loknu tók Íris svo til máls
og kynnti verkefni sitt. Ræddi hún úr hvaða heimildum væri að
moða, mögulega uppbyggingu verksins og ramma í tíma og rúmi.
Góður rómur var gerður að máli hennar. Undir erindinu og eftir það
urðu fróðlegar umræður um sögu félagsins og er óhætt að segja að
af aðalfundi sögufélags 2014162
Saga haust 2014 .qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:15 Page 162