Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 58
OsteoStrong fagnar þriggja
ára starfsafmæli um þessar
mundir. Um 500 manns
stunda æfingar vikulega hjá
OsteoStrong. Heimsóknin
tekur aðeins 20 mínútur í
heildina, einu sinni í viku, og
þannig bæta meðlimir sjálfa
sig, styrk vöðva, auka jafn-
vægi, lækka blóðsykur og
minnka verki í liðum og baki.
Helgi Már Þórðarson, íþrótta
fræðingur, einkaþjálfari og annar
eiganda Aha.is, fór að stunda
OsteoStrong eftir að hann fór að
finna fyrir verkjum í líkamanum.
„Mér finnst óeðlilegt að vera
með verki. Mér finnst eðlilegt að
vera verkjalaus og mér finnst að
allir ættu að stefna að því. Ég spil
aði fótbolta í Bandaríkjunum og
lærði íþróttafræði í Saint Augustin
í Flórída fyrir hartnær 30 árum. Ég
var líka á íþróttabraut í mennta
skóla og ætlaði alltaf að verða
íþróttakennari, sem ég svo gerði.
Ég var þjálfari barna og unglinga,
síðar einkaþjálfari og hafði alla
mína ævi þjálfað fólk í íþróttum.
Það er þess vegna mjög auðvelt að
tala við mig um heilsu, andlega
heilsu og heilbrigt líferni. Þegar
OsteoStrong var opnað þá var ég
eins og margir: „Nei, það getur
ekki verið, fjögur tæki, einu sinni
í viku?“ Mér fannst þetta náttúru
lega mjög skrítið.
Tilbúinn að breyta til
En ég var á þeim stað að mig
langaði að breyta til. Ég var búinn
að telja mánuðina og dagana þar
til ég yrði fimmtugur og vildi
fara ferskur inn í nýjan áratug. Ég
var eins og margir, hafði aðeins
fækkað ferðum í ræktina á meðan
ég var með lítil börn og var að
stofna fyrirtæki. Það koma alltaf
smá svona tímabil þar sem maður
dettur út í smá tíma.
Fljótlega verkjalaus í baki
Þegar ég byrjaði í ástundun hjá
OsteoStrong var ég slæmur í baki,
öxl og hálsi. Ég var rosalega dug
legur í OsteoStrong í hálft ár. Lagði
mig fram um að missa aldrei úr
tíma af því að ég fann mun á mér
eftir bara nokkrar vikur. Verkirnir
hurfu alveg. Bara OsteoStrong einu
sinni í viku, ekki neitt annað með.
Aukin löngun í hreyfingu
Svo smám saman gerðist svo
margt ánægjulegt. Með auknum
styrk, minni verkjum og aukinni
orku þá fór ég að leita í f leiri leiðir
til þess að bæta heilsuna, fann
löngun til að mæta í ræktina
og mætti þar þrisvar sinnum í
viku ásamt því að stunda Osteo
Strong einu sinni í viku. Það er svo
skemmtilegt að hreyfa sig þegar
manni líður vel.
Pabbi minn er 73 ára. Hann
hefur sömu sögu að segja en hann
fann reyndar mun á sér strax eftir
fyrsta tíma. Ég held að það sé eðli
legt að það taki mann aðeins lengri
tíma að finna fyrir breytingum
þegar maður er yngri og í betra
formi.
Gleðin í skammdeginu
Hreyfing er svo verðmæt fyrir
andann og það skiptir svo miklu
máli að vera ekki verkjaður. Það er
grunnatriði. Til þess að lyfta and
anum tók ég upp á því í jólafríinu
að fara í tvo stutta göngutúra á
dag í náttúrunni og mér finnst
það mjög verðmætt. Í nokkur ár
hef ég vandað mig við að dvelja í
þakklæti. Ég keypti mér 5mín
útnaþakklætisbækur um árið og
núna er það orðið sjálfkrafa hjá
mér að finna fyrir þakklæti óháð
aðstæðum hverju sinni.
Ég las líka „Af hverju sofum
Fann hratt mikinn mun með OsteoStrong
Helgi Már Þórðarson, íþróttafræðingur og einkaþjálfari, varð hissa þegar
hann fann hversu OsteoStrong breytti líðan hans til betri vegar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Æfingarnar
taka stuttan
tíma, aðeins 20
mínútur, en eru
afar áhrifaríkar.
Örn og Svana reka Osteo Strong og eru sífellt að stækka við sig. Ný stöð
verður opnuð í Ögurhvarfi í febrúar.
Helgi segir að eftir æfingarnar hjá OsteoStrong finni hann fyrir miklum lið-
leika og orkan hefur aukist.
Æfingarnar eru ekki erfiðar og henta öllum, jafnt þeim sem eru í íþróttum og
hinum sem hafa lítið hreyft sig.
Meðlimir geta átt von á að:
n Auka styrk
n Minnka verki í baki og liða-
mótum
n Lækka langtíma blóðsykur
n Auka beinþéttni
n Bæta líkamsstöðu
n Auka jafnvægi
n Minnka líkur á álags-
meiðslum
við?“ og hætti að mæta í sund á
morgnana eins og ég hafði gert í 15
ár. Nú sef ég bara þessa tvo auka
klukkutíma og ég greinilega þurfti
á því að halda því að ég er allur
miklu kátari.
Tími fyrir heilsu
Það er svo gott að byrja hjá
OsteoStrong. Maður finnur svo
hratt fyrir breytingum og byrjar þá
smám saman að skoða í kringum
sig eftir fleiri leiðum til að bæta
heilsuna og gleðina. Þegar ég lít
núna tvö ár aftur í tímann þá má
segja að OsteoStrong hafi ýtt við
mér að ná markmiði mínu, sem
er að vera í toppformi þegar að ég
verð fimmtugur. Borða betur, sofa
betur, æfa betur. Ég hef enn nokkra
mánuði til stefnu og hlakka til,“
segir Helgi, sem er annar eigandi
Aha.is.
Ný stöð í Ögurhvarfi
OsteoStrong á Íslandi á þriggja ára
starfsafmæli um áramótin. Viku
lega mæta um 500 meðlimir til
þess að styrkja sig og auka orku.
„Til viðbótar við stöðina í Hátúni
12 opnum við nýja stöð í byrjun
febrúar í Ögurhvarfi. Þannig
geta enn fleiri nýtt sér þjónustu
OsteoStrong og leiðin er styttri
fyrir þá sem koma til dæmis frá
Selfossi og Borgarnesi. Við erum
mjög spennt yfir möguleikanum á
því að fá að þjóna fleiri svæðum á
Íslandi og erum alltaf spennt yfir
að tala við mögulega samstarfs
aðila,“ segir Svanlaug Jóhanns
dóttir, annar eigandi OsteoStrong.
Tíminn er núna
OsteoStrong hentar næstum
öllum sem geta staðið upp. „Hjá
okkur eru til dæmis einstaklingar
sem eru að undirbúa sig fyrir
Landvættina og á sama tíma ein
staklingar sem eru farnir að þurfa
að styðjast við göngugrind og allt
þar á milli. Það eru svo margir
sem að hafa dottið út úr rútínu
með sína hreyfingu tengt Covid og
þrá að komast aftur af stað. Það er
góð hugmynd prófa OsteoStrong
núna í skammdeginu og byrja strax
að safna styrk fyrir vorið og úti
veruna,“ segir Örn Helgason, hinn
eigandi OsteoStrong.
73% styrking á ári
„Notendur gera æfingar undir
handleiðslu þjálfara í fjórum
tækjum sem reyna á allan líkam
ann,“ segir Svanlaug. „Hreyfingin
er lítil en átakið er hins vegar meira
en fólk er vant án þess að verða
manni nokkurn tíma ofviða. Með
nýju áreiti fær líkaminn skýr skila
boð um að byggja sig upp og hefst
handa við að þétta bein og styrkja
vöðva, liðbönd og sinar. Á einu ári
er fólk að meðaltali að styrkja sig
um 73%.
Góðar sóttvarnir
Við hugum mjög vel að sóttvörnum
og enn sem komið er hefur enginn
náð að smitast hjá okkur. Með allt
þetta fólk og á öllum þessum tíma
hefur það aðeins í tvígang komið
fyrir að einstaklingur kom og gerði
æfingarnar sínar, en komst að því
eftir á að hann var með Covid.
Okkur þótti vænt um það þegar
annar þeirra sagði við smitrakn
ingarteymið: „Jú, ég fór þangað en
það er ekki séns að nokkur smitist
þar, OsteoStrong er örugglega mest
sótthreinsaði staður á Íslandi,“
segir Örn.
Frír prufutími
„Við bjóðum upp á fría prufutíma
á fimmtudögum. Það er gaman
að geta sýnt fólki hvað við gerum.
Flestir koma til okkar með margar
spurningar, en fara frá okkur
spenntir, glaðir og með skýra sýn
á það hvernig OsteoStrong getur
hjálpað þeim,“ segir Örn. n
OsteoStrong er í Hátúni 12, sunnan
megin. Prufutíma má bóka á
osteo strong.is og í síma 419 9200.
38 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU