Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 24
þriðjavaktin.is
Að mínu mati felst
lykillinn að
árangri í viljanum til
breytinga, vel útfærðri
aðgerðaáætlun og
markvissri eftirfylgni.
Hjördís Dröfn Vilhjálms-
dóttir er stjórnenda- og leið-
togamarkþjálfi og stofnandi
ráðgjafafyrirtækisins Taktu
flugið.
Hjördís er með ACC vottun frá ICF,
MS í stjórnun og stefnumótun og
BS í hagfræði frá Háskóla Íslands.
Hún býr yfir áratuga reynslu sem
stjórnandi, ráðgjafi og greinandi.
Breytinga- og krísustjórnun er
kjarnafærni Hjördísar, sem býr yfir
margþættri reynslu á því sviði, bæði
á almennum vinnumarkaði og hjá
hinu opinbera. Þá er hún með vott-
aða þjálfun sem NBI-practitioner &
Whole Brain Coach.
„Ég elska að sjá fólk ná árangri
umfram væntingar um eigin getu
og sjá teymi vinna þannig saman
að töfrar verði til. Að mínu mati
felst lykillinn að árangri í viljanum
til breytinga, vel útfærðri aðgerða-
áætlun og markvissri eftirfylgni.
Ég býð mig fram sem ferðafélaga
á slíkri vegferð sem hvetur, ögrar,
hrósar og rýnir til gagns.“
Af hverju leiðtoga- og stjórnenda-
þjálfun?
„Segja má að ég hafi elt það sem
mér finnst skemmtilegt. Upphaf-
lega fór ég í markþjálfunarnám til
að efla leiðtogafærni mína. Ég heill-
aðist af aðferðafræðinni og tók því
næsta skref, sem er vottun frá ICE,
stærstu markþjálfasamtök heims.
Á þeirri vegferð áttaði ég mig á að
hér á landi erum við komin mun
styttra en nágrannalönd okkar
með leiðtoga- og stjórnendamark-
þjálfun. Íslenskir stjórnendur eru
þó hver á fætur öðrum að átta sig á
þeim ávinningi sem þeir geta náð
með leiðtogaþjálfun. Því var það
í raun eðlilegt framhald fyrir mig
að stíga þetta skref. Það er frábært
tækifæri að koma ný inn á markað
sem er í mikilli mótun. Ég legg
mikinn metnað í að vinna faglega
og nota því eingöngu greiningar,
aðferðafræði og nálgun, sem byggja
á rannsóknum sem sýna fram á
ótvíræðan árangur.“
Hvaðan kemur nafnið Taktu
f lugið?
„Taktu flugið eru hvatningar-
orð frá sjálfri mér til sjálfrar mín.
Ákvörðunin um að hefja sjálf-
stæðan rekstur tók nokkuð langan
tíma að þróast og mótast. Á slíkum
tíma gerist alls konar. Þegar ég tók
ákvörðunina þá átti ekkert heiti
betur við en hvatningarorðin sem
ég notaði á sjálfa mig. Það sem er
líka svo skemmtilegt við flugið er
að það getur verið alls konar. Langt
og krefjandi, stutt og skarpt. Það
getur falið í sér færni og fegurð eða
byggt á samhæfni, eins og odda-
flug gerir. Ég vona að nafnið eigi
Flugið getur verið
alls konar
Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir elti drauma sína um að gera eitthvað skemmtilegt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
eftir að verða öðrum hvatning rétt
eins og mér.“
Hvað er fram undan hjá þér?
„Árið 2022 er mjög spennandi og
ég hlakka mikið til þess og tæki-
færanna sem bíða bæði mín og
viðskiptavina minna. Hugmyndin
er að í fyllingu tímans verði unnt
að fá heildstæða markþjálfun fyrir
fyrirtæki hjá Taktu flugið eins og
best gerist hverju sinni. Það þýðir
að þjónustan verður í sífelldri
þróun. Þess vegna vil ég eiga sam-
talið við viðskiptavini mína um
hvað það er sem þeir þurfa og vilja.
Ég vona að þeir hiki ekki við að fá
mig til að móta það með sér. Þann-
ig vil ég móta vöru- og þjónustu-
framboð mitt, með viðskiptavin-
unum mínum, fyrir þá. Ég bý líka
að góðu tengslaneti og get beint
fólki til annarra sem bjóða þá sér-
hæfðu þjónustu sem ég mun ekki
sinna.“ n
Skannaðu QR-kóðann til fá nánari
upplýsingar.
4 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU