Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 46
Ásdís Auðunsdóttir, Inga Fríða Tryggvadóttir og Unnur Elfa Guðmundsdóttir eiga það sameiginlegt að vera allar metnaðarfullir stjórnendur og faglegir leið- togar hjá Hafnarfjarðarbæ. Áhugi, reynsla, sýn og per- sónuleiki marka stjórnunar- stíl þeirra og áherslur, í starfi þar sem mannauðurinn er mikilvægasta auðlindin. „Til að hér takist sem best til verður að vera til staðar gagn- kvæmt traust og þá þarf stjórn- andinn að vera sú fyrirmynd sem starfsfólk getur litið til,“ segir Ásdís Auðunsdóttir, forstöðumaður á heimili fyrir fatlað fólk. „Fjársjóð- urinn er fólginn í því að virkja það afl sem býr í starfsmannahópnum. Í hverjum og einum starfsmanni býr metnaður og það er mikil- vægt að hlusta á ólíkar skoðanir, að starfsfólk finni að það sé tekið mark á því, og að hugmyndir þess og tillögur fái að heyrast þannig að það fái notið sín í starfi. Stjórnandi þarf einnig að standa með sínu fólki og styðja og hvetja til frum- kvæðis. Það kemur öllum til góða að stjórnandi leggi sig fram um að hlúa að starfsmannahópnum. Í okkar starfi er ákveðin festa mikil- væg; mikil starfsmannavelta er ekki góð fyrir þjónustunotendur.“ Ásdís segir að starfsmanna- hópurinn á heimilinu þar sem hún vinnur sé fjölbreyttur en þar vinnur bæði fagfólk með mikla reynslu og svo ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu skref. Segir hún að þá skipti góð aðlögun miklu máli um framhaldið. „Hafnarfjarðar- bær hefur boðið upp á nýliða- fræðslu þar sem farið er yfir hug- myndafræði, réttindi og skyldur í starfi. Það er gefandi að sjá ungt fólk koma til starfa og þroskast í starfi sínu og jafnvel mennta sig til starfsins. Starfsfólk þarf að fá tækifæri til starfsþróunar og hefur Hafnarfjarðarbær verið með metnaðarfulla starfsþróun í þessum geira. Ég hef hvatt mitt fólk til að fara á námskeið, tileinka sér nýja þekkingu svo allir þekki og raungeri hugmyndafræðina sem unnið er eftir. Markmiðið er vel- ferð íbúanna.“ Ásdís segir að það áhugaverða við forstöðumannastarfið sé hvað verkefnin eru fjölbreytt, þarfir íbúa ólíkar og verkefnin margs konar. „Forgangsverkefni er að sjálfsögðu þjónustan við íbúa sem þarf sífellt að vera í endurskoðun og margir þræðir þurfa að samein- ast svo vel takist til. Góður starfs- mannahópur með sameiginlega sýn og sem vinnur sem ein heild er lykillinn að árangursríku starfi. Hluti af hópnum „Ég var ekki með stjórnunar- reynslu en var búin að vera hand- boltaþjálfari í nokkur ár og ákvað að taka svolítið þjálfarann á þetta,“ segir Inga Fríða Tryggvadóttir, leikskólastjóri Smáralundar í Hafnarfirði, um það þegar hún hóf störf á sínum tíma. „Ég var lands- liðskona í handbolta og spilaði bæði með Stjörnunni og Haukum og var heppin að spila í góðum liðum með góðri liðsheild og mik- illi hópstemningu. Þegar ég tók við starfinu fannst mér tilvalið og mikilvægt að endurspegla og búa til þessa liðsstemningu og keppn- isanda. Ég lít á mig sem þjálfarann í hópnum, reyni að leiðbeina vel og vera fyrirmynd. Maður horfir í og reynir að ýta undir styrkleika hvers og eins því rétt eins og á vell- inum þá kallar leikskólastarfið á fjölbreytni í fólki, sveigjanleika og skarpa og skapandi hugsun. Ég vil að mitt fólk blómstri í sínu starfi og legg því upp með að lesa svolítið starfsfólkið, eða leikmennina, í leikskólanum.“ Inga Fríða segir það einkenn- andi að starfsfólk leikskóla hugsi í lausnum. „Leikskólastarfið er án vafa eitt skemmtilegasta og mest gefandi starf í heimi. Því fylgir mikil gleði en líka mikið álag. Börn á hverri deild eru mörg, þarfirnar ólíkar, rými oft á tíðum lítið og hávaðinn mikill. Við þekkjum þetta vel og látum verkin tala. Það að breyta aðstöðu og umhverfi er svolítið undir okkur komið; alveg eins og í íþróttum þar sem leikmenn þurfa að velta því fyrir sér hvort og þá hvernig þeir ætla að leggja sig fram í leikjum til að vinna. Sigurinn er svo miklu sætari. Við nennum ekki að staldra lengi við einhver vandamál eða krefjandi verkefni. Við reynum að passa vel upp á okkar andlegu líðan; notum núvitund í starfi bæði fyrir okkur sjálf og nem- endur til að hlúa að okkur og sjálfi okkar. Ég vil að öllum líði vel og velti fyrir mér hvað ég get gert til að ýta undir vellíðan í starfi, til að minnka álagið og auðvitað vera með framúrskarandi skóla- starf. Hópurinn minn er frábær og starfsmannaveltan hefur verið lítil þannig að eitthvað erum við að gera rétt.“ Inga Fríða segist almennt leggja áherslu á að vera hluti af hópnum þó það sé svo hún sem taki loka- ákvarðanirnar og þurfi að taka á erfiðum málum. „Ég geng í öll störf þannig að ég veit hvað ég er að tala um. Ég er sýnilegur stjórnandi og reyni að vera leiðtogi bæði í orði og á borði; að vera jákvæð og lausna- miðuð þannig að það smitist út í starfið og til félaga minna. Ég legg þannig frekar áherslu á það sem við getum gert í hinum ótrú- legustu aðstæðum en ekki hversu stórt verkefnið er. Ég reyni að enda alltaf daginn inni á deild þannig að ég sé í samskiptum við bæði starfsfólk og foreldra. Þetta fyrir- komulag gefur mér mikið, styrkir tengslin, fyllir mig gleði og léttir lundina eftir langan dag á skrif- stofunni.“ Árangur kemur með vellíðan og öryggi „Það er skemmtilegt og gefandi starf að vera stjórnandi í skóla. Verkefnin eru mörg og mis- munandi og enginn dagur eins. Að bregðast við óvæntum aðstæðum er daglegt brauð og það þakklæti og sú hlýja sem maður fær frá nemendum sínum gefur starfinu þýðingarmikinn blæ. Það er okkar starf að virkja og styrkja ein- staklingana til árangurs, hvern á sínu sviði, og gefa þeim tækifæri til að skapa sér bjarta framtíð,“ segir Unnur Elfa Guðmundsdóttir, skólastjóri Áslandsskóla. „Með góðri samvinnu og samskiptum sem einkennast af virðingu við nemendur, foreldra og samstarfsfólk byggir maður upp gott skólasamfélag sem er fræðandi, hvetjandi og styðjandi. Samvinna og samtal eru þættir sem skila miklu til okkar ásamt því að skapa traust og samstöðu. Öflugt skólasamfélag er lykilþáttur í lífi okkar allra og vellíðan nem- enda getur skipt sköpum í þáttum eins og námsárangri. Það þarf að hlusta og sýna áhuga, fá foreldra til þátttöku í mjög svo fjölbreyttum aðstæðum og búa þannig um að allir séu hluti af sameiginlegri heild, heild sem hefur það mark- mið að ala upp börn og ungmenni í heilbrigðu samfélagi.“ Unnur Elfa segir að það hafi margoft sýnt sig að starfsfólk, sem líður vel, skilar árangri og metnaðarfullu starfi og það eigi svo sannarlega við í Áslandsskóla. „Starfsfólk sem nýtur stuðnings og upplifir traust og skilning á sín störf nær aukum árangri. Með ákveðinni festu en jafn- framt sveigjanleika skapast besta starfsumhverfið.“ Unnur Elfa bendir á að mikil- vægt sé að velvild sé til staðar á vinnustaðnum, framtíðarsýn sé skýr og að allir viti til hvers sé ætlast af þeim sem og að einstakl- ingurinn upplifi öryggi. „Við þurfum að vera óhrædd við að gera breytingar sem teknar eru með upplýstum ákvörðunum og tryggja að mismunandi raddir heyrist, vera fyrirmynd og sýna sanngirni og heiðarleika með því að láta í ljós skoðanir sínar þó svo að þær séu ekki alltaf líklegar til vinsælda. Stjórnandinn þarf í senn að vera bæði stjórnandi og leiðtogi, vera hvetjandi, óhræddur við að deila verkefnum til annarra, fanga og ýta undir sérstöðu og nýta hæfi- leika hvers og eins til sterkari fram- tíðar. Það er mikill mannauður í skólasamfélaginu sem mikilvægt að virða og meta.“ n Fræðandi, hvetjandi og styðjandi samfélag Ásdís Auðunsdóttir, forstöðumaður á heimili fyrir fatlað fólk. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Inga Fríða Tryggvadóttir, leikskólastjóri hjá Hafnar- fjarðarbæ. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Unnur Elfa Guðmundsdóttir, skólastjóri Áslandsskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 26 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.