Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 86
Barnaloppan og Extra- loppan ultu af stað mikil- vægri byltingu á íslenskum nytjavörumarkaði. Guðríður Gunnlaugsdóttir og Brynja Dan segjast báðar himinlif- andi yfir góðum viðtökum Íslendinga við verslununum. Barnaloppan breytti miklu í kaup­ hegðun Íslendinga þegar verslunin var opnuð 2018 í Skeifunni. Hug­ myndin byggir á finnsku fyrirbæri. Ári síðar opnaði Extraloppan í Smáralind. „Hjá okkur leigir þú eigin bás, setur upp vörurnar þínar og svo sjáum við um söluna,“ segir Guðríður, eigandi og framkvæmda­ stjóri Barnaloppunnar. Brynja Dan, einn eigandi Extraloppunnar, segir að markmiðið sé að stuðla að hring­ rásarhagkerfinu. „Hér er lögð áhersla á breytt neyslumynstur og að gefa hlut­ unum annað líf, að versla notað og selja það sem maður hefur ekki not fyrir lengur. Þannig skapast hring­ rás sem er mikilvæg fyrir jörðina okkar. Við erum öll vissulega orðin meðvitaðri um mikilvægi hringrás­ arhagkerfisins, en betur má ef duga skal og verslanir eins og Barnalopp­ an og Extraloppan eru stór partur í þeirri vitundarvakningu.“ Loppurnar eru mikilvægur liður í hringrásarhagkerfinu Með tilkomu Barnaloppunnar og Extraloppunnar hefur verið skap­ aður vettvangur sem auðveldar fólki kaup og sölu á notuðum vörum. „Þetta er frábær leið til þess að endurnýta og taka þátt í hring­ rásarhagkerfi landsins og græða aðeins á því í leiðinni. Internetið hefur nýst ágætlega við sölu vara, en í tilfelli notaðra vara vill fólk oft fá að þreifa á þeim og jafnvel þefa, áður en þær eru keyptar. Þessi leið verður til þess að mun meira magn af vörum fer í endursölu og þær eru því nýttar aftur,“ segir Guðríður. Þjónustan er lykilatriði Guðríður segist brasa í flestöllu sem tengist rekstrinum á Barnalopp­ unni. „Ég legg samt megináherslu á markaðsmál, á meðan maðurinn minn sér að mestu um rekstrar­ hlutann. Við erum þó bæði til staðar nánast alla daga vikunnar, enda er það stór hluti af okkar vörumerki að vera til staðar og veita persónulega þjónustu.“ Brynja Dan hefur unnið við markaðssetningu í yfir áratug og segist búa vel að þeirri reynslu hjá Extraloppunni. „Einnig er ég með ágætlega stóran hóp á Instagram og mér finnst alltaf gaman að sýna hvað ég er að bralla þar og loppan stór partur af því.“ Brynja er að eigin sögn loppu­ mamman í Extraloppunni og sér þar um dagleg störf. „Ég stend flesta daga vikunnar vaktina á loppu­ gólfinu og tek á móti básaleigj­ endum og öðrum viðskiptavinum. Þá held ég utan um starfsmanna­ málin og markaðssetninguna með starfsfólkinu mínu. Við erum voða þéttur hópur og það er alltaf gaman í vinnunni.“ Guðríður er viðskiptafræðingur að mennt og tók meistaragráðu í þjónustustjórnun frá Viðskipta­ háskólanum í Kaupmannahöfn. „Námið hefur nýst mér vel í mínum rekstri, en ég tel að góð þjónusta sé lykilatriði í velgengni fyrirtækja. Ég segi oft við starfs­ fólkið mitt að ég vilji bjóða upp á heimsklassaþjónustu í Loppunni og ég er bara alls ekkert að grínast með það.“ Framtíðin er björt „Það er frábært að sjá hvað kaup­ hegðun landsmanna hefur breyst síðustu ár og hvað endurnýting er orðin stór hluti af íslensku samfélagi eftir að við opnuðum Barnaloppuna og Extraloppuna,“ segir Guðríður. „Okkar markmið er að halda áfram því góða starfi sem við höfum unnið, halda áfram að skapa vitundarvakningu fyrir umhverfismálum og hvetja fólk til að endurnýta, því það er framtíð­ in.“ Faraldurinn segir Guðríður að hafi reynt á taugarnar. „Þetta hefur verið áskorun sem hefur kennt manni að hugsa í lausnum og finna leiðir til að láta hlutina ganga upp. Stærsta áskorunin er þó líklega að halda sér alltaf á tánum, ekki staðna í neinum aðgerðum tengdum rekstrinum og markaðs­ setningunni. Finna leiðir til að bæta sig og hlusta á alla gagnrýni með opnum huga og fá fólk með sér í lið, hvort sem það er starfsfólk eða viðskiptavinir.“ Brynja segist spennt yfir fram­ tíð Extraloppunnar. „Ég sé bara fyrir mér að við munum stækka. Að þetta verði normið frekar en hitt. Ég sé fyrir mér að verslunar­ kjarnar verði blandaðri en þeir eru og fólk geti keypt alls konar notaðan varning: fatnað, húsgögn, tæki og tól. Framtíðin er björt enda er unga fólkið okkar svo meðvitað og f lott. Þau hafa áhuga á að varðveita og vernda jörðina okkar og munu gera betur en fyrri kynslóðir.“ n Loppurnar sem hlaupa í hringrásarhagkerfinu Brynja Dan stendur vaktina í Extraloppunni í Smáralind ásamt frá- bærum hópi starfsfólks. MYND/AÐSEND Guðríður segir góða þjónustu lykilatriði í velgengni fyrirtækja. MYND/AÐSEND Okkar markmið er að þinn fundur eða viðburður gangi eins vel fyrir sig og framast er kostur. Við bjóðum upp á 11 glæsilega sali fyrir ráðstefnur, fundi námskeiðahald, sýningar og margt fleira. GRAND HÓTEL REYKJAVÍK FYRSTA FLOKKS RÁÐSTEFNU- OG FUNDARAÐSTAÐA H ÁTEIG U R · BJARTUR · GLÆSILEGUR · STÍLHREINN · 27 M 2 B RE IÐ TJ A LD KYNNIÐ YKKUR MÁLIÐ islandshotel.is/fundir | fundir@islandshotel.is 66 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.