Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 70
Vistvera býður upp á
umhverfisvænar og umbúða-
lausar neysluvörur og vörur
til heimilisins. Verslunin
hefur verið starfrækt í fjögur
ár og er áhersla lögð á að
bjóða upp á gott úrval vist-
vænna vara en Vistvera er
með verslanir í Grímsbæ og á
Selfossi.
Síðastliðið haust stækkaði Vistvera
og opnaði stærri og bjartari verslun
í Grímsbæ.
Birna Dögg Guðmunds-
dóttir, rekstrarstjóri Vistveru,
segir: „Okkur hafði lengi langað
að stækka. Hér í Grímsbæ hefur
okkur liðið vel og höfum eignast
marga viðskiptavini í gegnum árin.
Þess vegna ákváðum við að halda
okkur í Grímsbæ en við trúum því
að hverfisverslanir og smærri versl-
unarkjarnar séu mikilvægir fyrir
samfélagið í heild og því mikilvægt
að litlar verslanir eins og okkar nái
að skjóta rótum.“
Birna Dögg segir að með stækkun
verslunarinnar sé nú hægt að bjóða
upp á breiðara vöruúrval en áður,
rauði þráðurinn sé þó ávallt að
bjóða upp á umhverfisvænar vörur.
„Við leggjum áherslu á gæða vörur
á sanngjörnu verði, meðal annars
vandaða handgerða bursta frá
Svíþjóð, unna af blindum og sjón-
skertum. Eins erum við með sápur
og krem frá franska fjölskyldufyrir-
tækinu Marius Fabre sem starfrækt
hefur verið í yfir 120 ár og unnið
vörur sínar eftir sömu fjölskyldupp-
skriftinni allar götur síðan.
Þá hafa WUKA túrnærbuxurnar
slegið í gegn, en þær koma alfarið
í stað einnota dömubinda og túr-
tappa. Túrnærbuxurnar eru raka-
drægar og henta fyrir blæðingar
og áreynsluþvagleka. Þær koma
í mörgum stærðum og ólíkum
sniðum og henta konum á öllum
aldri. Það er sérstaklega ánægjulegt
að sjá hversu vel unglingarnir taka í
þær enda frábærar buxur.
Starfsfólk Vistveru leggur áherslu
á að bjóða upp á góða þjónustu og
býr yfir sérþekkingu á þeim vörum
sem verslunin selur. Þarfir fólks
eru ólíkar og því leggjum við mikla
áherslu á að bjóða upp á persónu-
lega þjónustu og kynna fólk fyrir
þeim frábæru lausnum sem í dag
bjóðast fyrir þá sem vilja taka skref
í átt að grænni framtíð og um leið
skilja eftir sig sem minnst vist-
spor.“ n
Allar upplýsingar um Vistveru og
vörurnar sem boðið er upp á má
finna á vefsíðunni www.vistvera. is
og í verslunum í Grímsbæ, Efsta-
landi 26, Reykjavík, og á Eyravegi 5,
Selfossi.
Hjá fasteignasölunni Húsa-
skjól er mikil áhersla lögð
á gott upplýsingaflæði og
því var sett upp nýtt upp-
lýsingakerfi til að viðskipta-
vinir geti fylgst með öllu
söluferlinu.
Ásdís Ósk Valsdóttir er eigandi
fasteignasölunnar Húsaskjól. Hún
er einn eigandi og hefur byggt
hana upp frá grunni. Húsaskjól er
stærsta fasteignasala á Íslandi sem
er í eigu konu. Ásdís Ósk hefur gert
stórfelldar breytingar á rekstrinum
síðan faraldurinn hófst sem hafa
bætt þjónustu og stytt vinnutíma
starfsmanna.
„Hlutverk okkar er að veita
sem bestar upplýsingar og vera
eins fagleg og hægt er. Eftir að
Covid byrjaði lét ég því hanna
fyrir okkur nýtt upplýsingakerfi
sem eykur gegnsæi og skilvirkni
í fasteignaviðskiptum og gerir
fólki kleift að fylgjast með öllu
söluferlinu. Það hefur verið
rosaleg ánægja með kerfið, bæði
hjá starfsmönnum og viðskipta-
vinum,“ segir Ásdís.
Úrvals upplýsingagjöf
„Fólk bókar sig nú sjálft í opin hús
og sækir upplýsingar um eignir
sjálft. Við tókum þennan hátt
upp þegar við fórum að þurfa að
halda utan um mætingar og fjölda
gesta vegna sóttvarna. Þar sem
allir eru bókaðir fyrir fram er líka
auðvelt að senda tilkynningar á
alla eftir þörfum, til dæmis ef opið
hús fellur niður vegna sóttkvíar,“
útskýrir Ásdís.
Húsaskjól rekur öfluga sam-
félagsmiðladeild og sendir reglu-
lega frá sér vandað upplýsingaefni
sem er hægt að nálgast bæði á
samfélagsmiðlum Húsaskjóls sem
og á heimasíðunni. Húsaskjól
er einnig eina fasteignasalan á
landinu sem rekur greiningadeild
sem sendir frá sér mánaðarlegar
skýrslur um markaðinn.
„Við kynntum líka nýverið
forritið ReiknaVerð, þar sem allir
geta séð verðbreytingar á sinni
fasteign á f ljótlegan hátt,“ segir
Ásdís.
Aldrei gengið betur
„Ég hef verið starfandi í 19 ár og
árið 2021 var stærsta árið okkar
frá upphafi,“ segir Ásdís. „Á sama
tíma vinnum við nú 35% minna en
áður, því þessi sjálfvirku kerfi
spara gríðarlega vinnu.
Við erum spennt fyrir því sem
koma skal á þessu ári. Næstu skref
eru að setja í loftið Kaupendaþjón-
ustu með nýjungum sem hafa ekki
sést hér áður og Viðhaldsbók fyrir
okkar viðskiptavini til að skrá inn
allar endurbætur sem þeir hafa gert
og halda þannig utan um virðisauk-
andi framkvæmdir hjá þeim,“ segir
Ásdís. n
Heimasíða Húsaskjóls má finna
hér: www.husaskjol.is.
Betri upplýsingar tryggja
fólki betri þjónustu
Ásdís Ósk
Valsdóttir er
eigandi fast-
eignasölunnar
Húsaskjól, en
það er stærsta
fasteignasala á
Íslandi sem er í
eigu konu.
MYND/AÐSEND
Vistvera stækkar í Grímsbæ
Birna Dögg Guð-
mundsdóttir,
rekstrarstjóri
Vistveru.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
VIÐ SELJUM
FASTEIGNIR
Austurmörk 4, 810 Hveragerði
s. 483 5800 • byr@byrfasteign.is
Elín Káradóttir
Löggiltur
fasteignasali
50 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU