Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 2
Helmingur þeirra
1.383 sem greindust í
fyrradag var yngri en
átján ára samkvæmt
svari Stjórnarráðsins.
Það leggst mjög vel í
fólk að ný bálstofa
verði óháð.
Sigríður Bylgja
Sigurjóns-
dóttir, stofnandi
Trés lífsins og
stjórnarmaður
í Bálfarafélagi
Íslands
Jökull og Oreo kúra saman í sveitinni
gar@frettabladid.is
DÝRALÍF Kálfurinn Jökull og kett-
lingurinn Oreo láta fara vel um sig
á bænum Læk í Flóahreppi.
„Þetta er bara lífið í sveitinni,“
segir Margrét Drífa Guðmunds-
dóttir bóndi á Læk.
„Við vorum með þrjá kettlinga og
Oreo var sá síðasti.“
Kettirnir á Læk eru oft innan um
kýrnar og allir una sér vel. Á Læk er
mjólkurframleiðsla og líka hestar,
hænur, kettir og hundur og sjálf eiga
Margrét og maður hennar Ágúst
Guðjónsson fimm börn. n
bth@frettabladid.is
COVID-19 Samkvæmt upplýsingum
frá almannavarnadeild ríkislög-
reglustjóra voru rétt tæplega 21.000
einstaklingar í einangrun eða
sóttkví föstudaginn 14. janúar, þar
af voru um 8.000 börn á aldrinum
0 til 16 ára, eða um 38 prósent af
heildarfjölda.
Samkvæmt upplýsingum um
fjölda barna í sóttkví eða einangrun
í fyrradag, 18. janúar, varð aukning
barna í sóttkví/einangrun ekki
eins mikil og ætla mætti, þrátt fyrir
að um helmingur þeirra 1.383 ein-
staklinga sem greindist í fyrradag
hafi verið yngri en 18 ára, sam-
kvæmt svörum frá Stjórnarrráðinu
við fyrirspurn Fréttablaðsins.
Til samanburðar var hlutfall
barna á aldrinum 0 til 16 ára sem
voru í sóttkví eða einangrun föstu-
daginn 14. janúar 7,4 prósent á
landsvísu. Í fyrradag, 18. janúar, var
hlutfallið 8,5 prósent. n
Börn fjölmenn
bæði í sóttkví og
einangrun
Sólbjart í Eyjafirði
Það viðraði vel til gönguferða á stígnum með fram Drottningarbrautinni á Akureyri í gær. Úti fyrir var Pollurinn logagylltur og sléttur. Samkvæmt Veðurstof-
unni er köflótt veðrátta fram undan í höfuðstað Norðurlands. Í dag verður hlýtt en skýjað og allhvasst, en á morgun snýr sólin aftur. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Kálfurinn Jökull og Oreo kettlingur. MYND/MARGRÉT DRÍFA GUÐMUNDSDÓTTIR
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM
með og án rafmagns lyftibúnaði
Komið og
skoðið úrvalið
Bálfarafélag Íslands fordæmir
vinnubrögð dómsmálaráðu-
neytis vegna lagabreytingar.
Félagið er komið með lóð.
birnadrofn@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Það er mikilvægt að
óháð bálstofa verði opnuð á land-
inu, vegna þess hve fjölbreytt sam-
félagið okkar er orðið og hve mörg
trúar- og lífsskoðunarfélög eru á
landinu, fimmtíu talsins,“ segir Sig-
ríður Bylgja Sigurjónsdóttir, stofn-
andi Trés lífsins og stjórnarmaður í
Bálfarafélagi Íslands.
Stjórn Bálfarafélags Íslands for-
dæmir vinnubrögð dómsmálaráðu-
neytisins vegna lagabreytingartil-
lögu sem ráðuneytið setti inn á
Samráðsgátt stjórnvalda í síðustu
viku, þar sem á að fjarlægja ákvæði
um Bálfarafélag Íslands úr lögum.
Ákvæðið felur í sér að einstakling-
ur úr Bálfarafélaginu sé skipaður
í kirkjugarðsstjórn Reykjavíkur-
prófastsdæma. 75 umsagnir höfðu
borist um lagabreytinguna þegar
Fréttablaðið fór í prentun.
„Eina bálstofa landsins, Bálstofan
í Fossvogi, er komin til ára sinna, en
hún hefur verið í rekstri síðan árið
1948. Það voru nokkrir frumkvöðlar
sem gerðu bálstofu á Íslandi að
veruleika á sínum tíma,“ segir Sig-
ríður Bylgja.
Verkefnið Tré lífsins lýtur að því
að opna óháða bálstofu, athafna-
rými og minningagarð. „Bálstofa
Trés lífsins verður með umhverfis-
vænum ofni með fullkomnum
hreinsibúnaði. Að bálför lokinni
getur fólk valið um að láta gróður-
setja öskuna ásamt tré í Minn-
ingagarði, sem vex upp til minn-
ingar um hinn látna,“ segir Sigríður
Bylgja.
„Við erum sem sagt komin með
lóð fyrir byggingu 1.500 fermetra
húsnæðis, komin með samþykki
sýslumanns fyrir staðsetningu og
skipulagi bálstofu í aðalatriðum og
erum búin að tryggja 80 prósenta
lánsfjármögnun, en 20 prósentum
ætlum við að safna með hópfjár-
mögnun,“ segir Sigríður Bylgja.
„Það eina sem við bíðum eftir er
svar frá stjórnvöldum um hvort þau
ætli að setja peninga í byggingu og
rekstur nýrrar bálstofu á vegum
Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts-
dæmis, en ef það verður gert, þá
getur ekki orðið af Tré lífsins, því
miður, svo það er örlagastund núna
um hvort að á Íslandi rísi óháð
bálstofa eða ekki,“ bætir hún við.
Stjórnir Trés lífsins og Bálfarafélags
Íslands lögðu í desember fram ósk
um stofnkostnaðarframlag frá
íslenska ríkinu til starfseminnar,
upp á 500 milljónir króna, ekkert
svar hefur borist. „Við erum ekki
háð þessu framlagi.“
Sig r íður Bylg ja seg ist hafa
orðið vör við mikinn áhuga fólks
á umhverfisvænni leiðum þegar
kemur að útförum. Þá finnist fólki
falleg tilhugsun að tré spretti þar
sem jarðneskar leifar ástvina liggja.
Bálförum hafi farið fjölgandi og
standi nú í um 50 prósenta hlutfalli
við útför látinna.
„Það leggst mjög vel í fólk að ný
bálstofa verði óháð. Enda er hlut-
verk bálstofu óháð kennisetningum
trúar- og lífsskoðunarfélaga og hjá
okkur verða öll velkomin,“ segir Sig-
ríður Bylgja. n
Fallegt að tré spretti þar
sem jarðneskar leifar liggja
Beðið er eftir svari stjórnvalda um hvort peningar verði settir í byggingu og
rekstur nýrrar bálstofu hjá Kirkjugörðunum í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2 Fréttir 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ