Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 35
Allar rannsóknir sýna að fjölbreyti- leiki í stjórnun fyrir- tækja er ákjósanlegur. Brynja Blanda Brynleifsdóttir GG verk verður 16 ára á árinu og hefur fest sig í sessi í hópi stærstu byggingarverk- taka á landinu. Konur eru í meirihluta eigendahóps og stjórnar félagsins. Brynhildur S. Björnsdóttir er stjórnarformaður GG verks, en ásamt henni skipa stjórnina Brynja Blanda Brynleifsdóttir, fjármála- stjóri fyrirtækisins, og Helgi Gunn- arsson, núverandi framkvæmda- stjóri og stofnandi. Brynhildur starfaði sem fram- kvæmdastjóri GG verks á árunum 2014-2019. „ Á þeim árum öðlaðist félagið alþjóðlega ISO9001-gæða- vottun með tilheyrandi innleiðingu ferla, samþættingu og virku eftirliti. Um leið óx félagið hratt úr grasi. Fór úr 20 starfsmönnum í 90 og sam- stæðan margfaldaðist í veltu. Mikið líf og fjör,“ segir hún. „Þá hafði ég hafið framhaldsnám í Harvard Business School og lét af störfum í lok ársins 2019 á meðan Helgi tók aftur við keflinu en hann hafði verið framkvæmdastjóri frá stofnun þess árið 2006.“ Þess má geta að Helgi og Brynhildur eru hjón en þó með ólíkan bakgrunn og áhugasvið. Helgi starfaði við hlið föður síns í uppslætti húsa frá blautu barnsbeini. „Ég hafði meiri áhuga á bóklegu námi og litakóðuðum excel-skjölum,“ segir Brynhildur og hlær. „Ég hef aldrei kunnað neitt fyrir mér í að byggja hús.“ Byggingariðnaðurinn heillandi vettvangur Brynja kom inn í félagið í upp- hafi árs 2020, sem fjármálastjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri. Hún var hokin af reynslu þegar kemur að fjármálum og stjórnun og hafði meðal annars starfað við stjórnunarstörf hjá A4/Egilsson, Sjöstjörnunni/Subway, Uniconta Ísland og Latabæ, en aldrei hjá byggingarfyrirtæki. „Mig langaði að reyna fyrir mér á nýjum vett- vangi og læra eitthvað nýtt. Ég hafði áður öðlast reynslu af nytjaleyfis- samningum (e. licensing), smásölu og upplýsingatækni og hafði áhuga á að læra inn á fleiri viðskipta- geira. Svo hef ég alltaf haft mikinn áhuga á arkitektúr og byggingum og fannst því byggingariðnaðurinn heillandi vettvangur.“ Ári síðar, í febrúar 2021, var Brynja orðin hluthafi og um leið tók hún sæti í stjórn. Á sama tíma steig Brynhildur aftur inn í rekstur GG sem starfandi stjórnarfor- maður. Þar með skipuðu konur 2/3 af stjórn félagsins. Hefur þessi óvenjulega kynja- skipting einhver áhrif á reksturinn sem slíkan? „Já, ég held að við getum öll verið sammála um það,“ segir Brynja og Brynhildur bætir við: „Allar rannsóknir sýna að fjölbreytileiki í stjórnun fyrirtækja er ákjósanlegur. Ekki bara út frá jafnréttissjónar- miðum, eins og gjarnan er einblínt á, heldur einfaldlega út frá árangri fyrirtækja og stofnana. Við höfum öll ólíka styrkleika og veikleika.“ Brynja tekur fram að það sé þó varasamt að alhæfa um eða staðla styrkleika og veikleika stjórnenda út frá kyni. „Fyrir utan að kynin eru auðvitað fleiri en þessi tvö,“ bætir Brynhildur við og heldur áfram: „En við Brynja njótum þess allavega mjög vel að vera í þessu karllæga umhverfi og fá að „mýkja“ það aðeins, en um leið vera grjót- harðar. Við leggjum okkur fram við að setja fólk í fyrsta sæti alla daga, af því að á endanum snýst þetta allt um fólkið sem vinnur við framkvæmdirnar og fólkið sem vill búa í húsunum sem við byggjum, iðka íþróttir eða vinna í. Allt eftir því hvernig mannvirki við erum að byggja hverju sinni.“ Gagnkvæm virðing á vinnustaðnum Hvernig er svo að vinna í svona Á endanum snýst þetta allt um fólk Brynhildur S. Björnsdóttir er stjórnarformaður GG verks. MYND/AÐSEND Brynja Blanda Brynleifsdóttir er fjármálastjóri hjá GG verki. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Glæsileg Íþróttamiðstöð Fram í Úlfars­ árdal, eins og hún mun líta út. Mikill upp­ gangur er hjá GG verki, bæði er verið að byggja upp alls kyns mannvirki sem og íbúðir. MYNDIR/AÐSENDAR Íþróttamiðstöð­ in séð frá öðru sjónarhorni. karllægu umhverfi sem stjórn- endur? „Við höfum ekki fundið fyrir neinu öðru en gagnkvæmri virðingu,“ segir Brynhildur. „Við Brynja kunnum auðvitað akkúrat ekkert að byggja hús. En við teljum okkur kunna að reka fyrirtæki, aðgreina það á markaði, setja okkur metnaðarfull en raunhæf mark- mið, mæla árangur reglulega og fá alla í lið með okkur í sömu átt. Og það kunna allir að meta. Það er auðvitað svolítið gert grín að okkur innanhúss, en bara í góðu. Og kannski gerum við það mest sjálfar. Erum svolitlar „Gyður sólir“. Enda báðar dálítið ákveðnar og vitum alveg hvert við erum að fara. En þó með eindæmum mjúkar líka en með fókusinn á fólkinu um leið og markinu.“ Byggingarbransinn á mikið inni Brynja segist telja að byggingar- bransinn eigi mikið inni. „Og ég held að konur geti bætt heilmiklu við þar. Af því að saman erum við einfaldlega best. Við skulum líka ekki gleyma því að konur hafa heilmikið um það að segja hvar fjölskyldur ákveða að skjóta niður rótum og hvaða kostum heimilin þurfa að búa yfir. Af hverju ættu þá karlar einir og sér að vera best til þess fallnir að skipuleggja og stýra öllu er viðkemur framkvæmdum á heimilum og öðrum mannvirkjum? Það sjá það held ég allir sem pæla í því.“ En hvað er fram undan hjá GG verki? „Ja. Hvað er ekki fram undan?“ segia þær stöllur brosandi. „Við erum til að mynda á síðasta fasa í framkvæmdum á nokkurra ára verkefni fyrir Reykjavíkurborg, sem er okkur afar dýrmætt, og mun vonandi efla gleði og lýðheilsu Reykvíkinga til framtíðar. Það er glæsileg Íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdal, en það er ein stærsta byggingarframkvæmd sem borgin hefur farið í undanfarin ár. Hjarta okkar slær líka sérstaklega mikið með Fram, en Helgi spilaði sjálfur með þeim fótbolta á sínum sokka- bandsárum,“ segir Brynhildur. Brynja heldur áfram: „Við erum líka að bygga um 130 íbúðir í Gufu- nesi fyrir frumkvöðlana í Spildu Fasteignaþróun, nokkra reiti í Hafnarfirði, Kópavogi, Garða- bæ og þar fram eftir götunum. Þá erum við að fara af stað með þrjú ný verkefni í þessum töluðu orðum og sjáum fram á 50% stækkun á árinu. Svo að við erum bara á fullu í áætlanagerð, hönnunarrýni, skipulagi, ráðningum, markmiða- setningu og fleiru til að tryggja að fólk sé ávallt í fyrsta sæti hjá okkur.“ Brynhildur samsinnir því. „Hvort sem það varðar öryggi starfsfólks, þroska og þróun í starfi eða ánægju viðskiptavina. Af því að á endanum snýst þetta allt um fólk. Og það er akkúrat það sem við brennum fyrir. Fólk.“ n kynningarblað 15FIMMTUDAGUR 20. janúar 2022 FÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.