Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 52
Þess vegna hentar
margmiðlunin mér
einkar vel því hún snýst
svo mikið um að segja
sögur.
Sigríður Sólan Guðlaugsdótt-
ir kom víða við í fjölmiðla-
bransanum áður en hún
færði sig yfir í kynningarmál
og almannatengsl. Í dag
rekur hún framleiðslu- og
almannatengslafyrirtækið
Sólan slf. sem framleiðir fjöl-
breytt efni og veitir ýmiss
konar fjölmiðlaráðgjöf.
Í rúman áratug vann Sigríður við
dagskrárgerð hjá RÚV og tók að sér
verkefni hjá Sagafilm en söðlaði
svo um og fór í meistaranám í
margmiðlunarfréttamennsku í
Bretlandi. Þegar heim var komið
vann hún sem fréttamaður á Stöð
2 og Bylgjunni.
„Fjölmiðlatímabilið var ótrúlega
gefandi og lærdómsríkt en síðan
hef ég verið svo lánsöm að fá að
takast á við spennandi verkefni
sem ég hef bæði unnið að sjálfstætt
og sem kynningarstjóri góðgerðar-
samtaka. Síðustu mánuði hef ég
sem dæmi verið í samstarfi við
írskan leikstjóra við þróun heim-
ildarmyndar sem verður tekin
hér á landi síðar á árinu. Ég er
samframleiðandi á Íslandi ásamt
True North auk þess að vera annar
handritshöfunda.“
Allir hafa sögu að segja
„Sjónvarps- og kvikmyndagerðin
hefur reynst afar góður grunnur
með fréttamennskunni í því sem
ég er að fást við í dag. Það efni sem
ég framleiði krefst yfirleitt frá-
sagna og það er eitthvað töfrandi
við það að skapa afurð sem bæði
segir sögu og vekur hughrif. Sögur
eru svo mikilvægar, hvort sem er í
persónulegu lífi okkar eða starfi.
Við tengjum þegar við heyrum
sögur og tengsl eru okkur lífs-
nauðsynleg. Þess vegna hentar
margmiðlunin mér einkar vel því
hún snýst svo mikið um að segja
sögur.“
Aukin eftirspurn er eftir stuttum
kynningarmyndböndum fyrir ein-
staklinga og fyrirtæki til að kynna
þjónustu sína. Spurð hvað kosti að
gera slík myndbönd segir Sigríður
það afar mismunandi.
„Kostnaðurinn fer eftir umfangi
og er allt frá 200 þúsund krónum.
Skilaboðin þurfa að vera skýr en
þetta eru áhrifaríkar leiðir til að
ná til fólks því næstum allir eru á
samfélagsmiðlum.“
Þakklát fyrir traustið
„Það er sagt í fréttamennskunni
að fimm ára börn þurfi að geta
skilið það sem kemur frá manni.
Og það er nokkuð til í því. En það
skiptir ekki bara máli að gera efnið
auðskilið, heldur er líka mikilvægt
að gera það skemmtilegt sé það
viðeigandi.
Mér er minnisstæð stutt heim-
ildarmynd sem ég gerði fyrir
Krabbameinsfélagið um Davíð
Ólafsson, óperusöngvara og
fasteignasala. Hann stóð á þeim
tímamótum í lífinu að fagna
fimmtugsafmæli sínu örfáum
dögum áður en hann lagðist
undir hnífinn þar sem stór hluti
ristilsins var fjarlægður. Þarna
mættust gleði og sorg á sama tíma
og hann tókst á við lífshættulegan
sjúkdóm með ótrúlegu æðruleysi.
Ég fylgdi honum þessa síðustu
metra að aðgerðinni, alla leið á
skurðstofuna, og tókst að fanga
húmorinn hans alveg að aðgerð.
Mér þykir svo óskaplega vænt um
það traust sem hann sýndi mér
í þessu ferli öllu og það sama á
við um marga aðra viðmælendur
mína.“
Við borðum ekki í bílnum
Á síðasta ári vann Sigríður með
tveimur erlendum sjónvarps-
stöðvum að gerð sjónvarpsþátta
á Íslandi. Franska sjónvarps-
stöðin M6 gerði þátt um jafnrétti á
Norðurlöndunum og var við tökur
hér á landi í tíu daga og frönsk
sjónvarpsstöð í Brussel gerði þátt
í aðdraganda loftslagsráðstefn-
unnar COP26 í Glasgow og fjallaði
um CarbFix-verkefnið sem snýst
um að farga koldíoxíði sem komið
er í andrúmsloftið.
„Það er alltaf gaman að sjá land
og þjóð í gegnum augu útlendinga.
Frakkarnir voru sem dæmi alveg
heillaðir af því að í Hjallastefn-
Skiptir máli
að einfalda
hluti og gera
þá skemmtilega
Sigríður fram-
leiðir meðal
annars mynd-
bönd og segir
sögur skipta
miklu máli í
innihaldi þeirra.
Auk þess sér
fyrirtækið um
almannatengsl,
greina- og
fréttaskrif, setur
upp ýmis konar
viðburði og her-
ferðir og fram-
leiðir hlaðvörp.
MYNDIR/ÁSTA
KRISTJÁNSDÓTTIR
Viðtal við frú
Vigdísi Finn-
bogadóttur á
heimili hennar
fyrir blað
Krabbameinsfé-
lagsins.
Sigríður vann við dagskrárgerð hjá RUV í áratug. Hér er hún með Guðmundi
Pálssyni, fyrrverandi samstarfsfélaga hjá Krabbameinsfélaginu.
samfélagsmiðlum en Sigríður telur
tímarit í hefðbundnu formi oft
gleymast sem mikilvægt markaðs-
efni.
„Tímarit geta gefið góða mynd
af starfsemi fyrirtækja og félaga.
Þau eru eins og bækur. Fólki finnst
oft notalegt að koma við og fletta
blöðum upp á gamla mátann. Það
er líka auðvelt að grípa til tímarita
og afhenda á fundum, því við erum
ekki alltaf á netinu.“
Um þessar mundir vinnur Sig-
ríður að vitundarvakningu um
mikilvægi skimunar fyrir krabba-
meinum en hún vann um tíma
við auglýsingaherferðir á borð við
Bleiku slaufuna og Mottumars.
„Það skiptir máli að fara
ótroðnar slóðir þegar kemur að
því að fanga athygli fólks. Í stað
þess að fara hefðbundna leið í
þessu verkefni varð lendingin sú
að vinna ljósmyndasýningu með
Ástu Kristjánsdóttur ljósmyndara
og fleiri góðum konum. Þetta er
fjórða ljósmyndasýningin okkar
Ástu og við höfum fengið 12 ótrú-
lega flottar konur í samfélaginu til
að leggja átakinu lið með persónu-
legri nálgun. Ég hvet alla til að
sjá sýninguna sem verður uppi á
næstunni í Kringlunni.“ n
Frekari upplýsingar um þjónust-
una má finna á ssolan.is.
unni leyfðist drengjum að vera
með sítt hár og naglalakk og að
þeir væru hvattir til að knúsast. Í
Frakklandi myndu sumir foreldrar
ekki senda syni sína í slíka skóla.
Og þeim fannst alveg síðasta sort
þegar ég lagði til að vegna tíma-
skorts skyldum við grípa eitt-
hvað og borða í bílnum á leið til
Nesjavalla og sögðu hneykslaðir:
„We are French. We do not eat in
the car!“
Óhefðbundnar markaðsleiðir
Kynningarefni fyrirtækja er æ
oftar sniðið að snjalltækjum og
Það er sagt í frétta-
mennskunni að
fimm ára börn þurfi að
geta skilið það sem
kemur frá manni, og það
er nokkuð til í því.
32 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU