Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 77
Aðalheiður Karlsdóttir,
eigandi Spánareigna, hefur
átt sitt annað heimili á Spáni
undanfarna tvo áratugi. Hún
lýsir hér lífi sínu og fjöl-
margra Íslendinga í paradís.
„Það er ekkert dásamlegra en að
vakna í janúar við birtu og fugla-
söng inn um gluggann. Hella upp
á góðan kaffibolla, setjast út í
morgunsólina og renna yfir frétt-
irnar á netinu og gera sig kláran
fyrir daginn. Vinnuna er í auknum
mæli hægt að klára á netinu og svo
er hægt að fara níu golfholur í eftir-
miðdaginn eftir vinnu, jafnvel 18
holur ef vinnan klárast snemma, og
góður göngutúr gerir líka sitt gagn.“
Þetta segir Aðalheiður Karls-
dóttir, löggiltur fasteignasali og
eigandi Spánareigna, um daglegt
líf sitt og fleiri Íslendinga á Spáni.
„Matargerðin er einföld og
heilsusamleg, gott aðgengi að
ódýru, fersku grænmeti, og svo
skellir maður stundum góðum
fiski eða kjöti á grillið, eða í ofn-
inn, og opnar góða hvítvínsflösku
með. José Pariente er í miklu
uppáhaldi þessa dagana. Ef maður
nennir ekki að elda er hægt að fara
út að borða með fjölskyldunni eða
vinum. Það kostar ekki nema tíu
til fimmtán evrur að fá sér góða
þriggja rétta máltíð og vínglas
með, þannig að það er vel hægt
að leyfa sér það. Heimsendingar-
þjónustan virkar líka vel, ef maður
nennir hvorki að elda né fara út að
borða. Og síðan er hægt að horfa
á kvöldfréttirnar á Stöð 2, Hring-
braut eða RÚV, því afruglarinn að
heiman virkar fínt hér á Spáni.“
Aðstoða við allt kaupferlið
Aðalheiður er að lýsa lífsstíl sínum
síðastliðna tvo áratugi.
„Beina flugið á milli Alicante
og Keflavíkur, allt árið um kring,
gerir fólki kleift að fljúga á milli
eftir þörfum og þeim Íslendingum
fjölgar stöðugt sem uppgötva þessi
lífsgæði. Ég veit ekkert skemmti-
legra en að aðstoða fólk við að
finna réttu eignina og allt kaup-
ferlið, sem er auðveldara en margir
halda. Flestir kaupa eignir á Spáni
Spánareignir opna nýjan heim í sólinni
Aðalheiður Karlsdóttir er eigandi Spánareigna. MYNDIR/AÐSENDAR
Einstök náttúrufegurð er á Las Colinas-golfvellinum.
Glæsileikinn er allsráðandi hvert sem litið er á Las Colinas-svæðinu.
Íbúðir með glæsilegu útsýni yfir golfvöllinn.Golfkennslan á Las Colinas hjálpar til við að bæta skorið. Glæsilegt klúbbhúsið á Las Colinas-golfvellinum.
Morning Breeze-villan, hönnuð af Monicu Armani.
borga eins og Madríd, Marbella og
Valencia,“ segir Aðalheiður.
Stílhreinn glæsileiki
Það er athyglisvert við Las Colinas
hvað uppbyggingin hefur verið
hröð, og eignir seljast vel, þrátt
fyrri að vera ekki endilega þær
ódýrustu á Costa Blanca-svæðinu.
„Fólk er tilbúið að borga aðeins
meira fyrir aukin gæði og þau
er svo sannarlega að finna á Las
Colinas. Húsin eru öll byggð í sama
stíl; hvít, stílhrein og glæsileg, og
lóðirnar eru stærri en almennt
gerist. Framboð á eignum er og
verður takmarkað, og fólk er að
tryggja sér eignir núna, áður en
þær seljast upp og verðin hækka
meira. Hægt er að velja um ein-
býlishús í ýmsum stærðum og auk
þess fallegar íbúðir og penthouse-
íbúðir,“ upplýsir Aðalheiður.
Hún segir einnig gera svæðið
skemmtilegt að þar eru að finna
nokkrar glæsivillur sem hannaðar
hafa verið af þekktum arkitektum
og hönnuðum.
„Í því sambandi má nefna Morn-
ing Breeze-villuna sem Monica
Armani hannaði og hefur vakið
mikla athygli. Sumir hafa hins
vegar farið þá leið að kaupa lóð og
látið hanna og byggja hús drauma
sinna,“ segir Aðalheiður.
Spánareignir hafa frá upp-
hafi verið í góðu samstarfi við
alla helstu byggingaraðila á Las
Colinas og veita yfirgripsmikla og
góða aðstoð við að fara yfir mögu-
leikana og finna réttu eignirnar
og allt kaupferlið. Einnig er í boði
að skoða eignir í gegnum vídeó-
myndavél.
„Hægt er að hafa samband við
starfsfólk Spánareigna og bóka
einkafund til að fara yfir málin
áður en haldið er út til Spánar til að
skoða eignirnar og prófa golfvöll-
inn, því hvað er betra en að spila
golf í góðu veðri árið um kring á
einum besta golfvelli Spánar?“
segir Aðalheiður sem nýtur lífsins
til hins ítrasta á fagra Spáníá. n
Allar nánari upplýsingar eru á
spanareignir.is.
til að dvelja í hluta úr ári, til dæmis
yfir svartasta skammdegið, en svo
eru alltaf fleiri og fleiri sem flytja
alfarið út í sólina,“ segir Aðal-
heiður, sem verið hefur FKA-kona
til margra ára.
Las Colinas-golfið
Aðalheiður segir golf og fagurt
umhverfi, ásamt vönduðum
eignum í hæsta gæðaflokki, vera
það sem heillar mest þegar keyrt er
inn um hliðið á Las Colinas-golf-
vellinum.
„Við hönnun svæðisins var
markmiðið að skapa „un mundo
aparte“ eða heim út af fyrir sig, og
það hefur svo sannarlega tekist
vel. Það tekur um 50 mínútur að
keyra í suður frá Alicante-flugvell-
inum að þessari paradís. Klúbb-
húsið er glæsilegt, með tveimur
góðum veitingastöðum, og þar við
hliðina er þriðji veitingastaðurinn,
Il Palco, sem talinn er einn besti
veitingastaðurinn á Costa Blanca-
svæðinu. Einnig hafa íbúar Las
Colinas aðgang að nýrri og glæsi-
legri heilsurækt, tennisvöllum,
matvöruverslun, fallegum göngu-
leiðum, strandklúbbi og fleiru.“
Las Colinas-golfvöllurinn er ekki
gamall, hann fagnaði nýlega tíu ára
afmælinu.
„Strax þegar hann var opnaður
þótti hann með bestu golfvöllum
Spánar og hefur Las Colinas-svæð-
ið verið nokkrum sinnum valið
það besta á Spáni og völlurinn sá
besti í landinu. Það segir mikið um
gæði hans,“ segir Aðalheiður.
Völlurinn sjálfur er ekki auð-
veldur en gefur samt góð tækifæri,
þrátt fyrir að golfarinn sé ekki í
meistaraflokki.
„Flestar holurnar eru sanngjarn-
ar og bjóða upp á ýmsa möguleika
til að ná góðu skori. Fjölbreytni
vallarins er heillandi; tré, vötn
og glompur bíða samt eftir því að
stríða golfaranum ef hann hittir
boltann ekki vel,“ segir Aðalheiður.
Íslendingar vinsælir
Æfingasvæðið á Las Colinas þykir
einnig sérlega glæsilegt og þar er
hægt að fá golfkennslu.
„Troon Golf sér um allt viðhald á
vellinum og æfingasvæðinu, og fólk
tekur eftir því að yfir vellinum er
annað yfirbragð en almennt gerist.
Hugsað er út í hvert smáatriði og
mikil vinna og metnaður lagður í
að halda vellinum vel grónum og
snyrtilegum,“ greinir Aðalheiður
frá.
Las Colinas-golfsvæðið er stórt,
nálægt 200 þúsund ferkílómetrum,
og hefur markmiðið frá upphafi
verið að hafa byggð ekki of þétta.
Áætlað er að byggja um 1.800
íbúðir og hús, og nú er búið að
byggja um helminginn.
„Nokkrir Íslendingar hafa nú
þegar eignast heimili á Las Colinas
og njóta þess að dvelja þar til lengri
eða skemmri tíma. Jon Brook, fram-
kvæmdastjóri golfvallarins, segir
mikið ánægjuefni að fá Íslendinga
á völlinn; þeir séu skemmtileg við-
bót í alþjóðlegt samfélag golfara
sem tekið hefur ástfóstri við Las
Colinas-golfvöllinn og spila hann
reglulega,“ segir Aðalheiður.
Í fyrra skipulögðu Spánareignir
þriggja daga boðsmót í golfi í sam-
starfi við Las Colinas. Það tókst
með miklum ágætum og er ráðgert
að endurtaka leikinn í haust.
„Það er þó meira en golfið sem
heillar. Það er til dæmis örstutt
að keyra á ströndina, og nokkura
tíma akstur er á falleg skíðasvæði,
vínekrur og til spennandi stór-
kynningarblað 57FIMMTUDAGUR 20. janúar 2022 FÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU