Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 50
Helga Sigurrós Valgeirs-
dóttir og Silja Valdemars-
dóttir vinna hjá Arion
banka. Þær tala meðal
annars um áherslu bankans
á að jafna hlut kynjanna eins
og hægt er og að með skil-
virkara verklagi og sterkum
áherslum almennt sé hægt
að gera ótrúlegustu hluti.
„Arion banki leggur áherslu á
að jafna hlut kynja og mun gera
það sem þarf til að ná árangri,“
segir Helga Sigurrós Valgeirs-
dóttir, forstöðumaður fyrirtækja-
trygginga á fyrirtækja- og fjár-
festingarbankasviði. „Bankinn er
með jafnlaunastefnu og borgar
nánast raunlaun í fæðingarorlofi
sem er geggjað jafnréttismál svo
lengi sem strákarnir taki orlofið.
En það sem ég held að skipti mestu
máli er að ólíkir aðilar af ólíkum
kynjum komi að ákvörðunum. Ef
ég tala út frá konum þá er það eitt
að vera með jafnt kynjahlutfall á
vinnustað og annað að konur séu
þar sem ákvarðanir eru teknar og
fjármagni stýrt. Hér getum við sem
samfélag gert betur.“
Helga Sigurrós segir að þeir
sem eru á eldra starfsaldursbili
bankans séu karlar og eigi það sér
skýringar í því hvernig atvinnu-
lífið er almennt. „Það hefur mikið
að segja að margir af þessum
mönnum vilja jafna hlut kynja og
hafa stutt markvisst við konur.
Það að fjármálakerfið sé karllægt
birtist í dag einna helst þar sem
ákvarðanir eru teknar eins og í
lánanefndum, vátrygginganefnd-
um eða hvar sem fjármagni er
stýrt. Þar eru oftar en ekki karlar
í meirihluta. En einmitt á þessum
stöðum skiptir miklu máli að ólík
sjónarmið komist að. Ég finn að ég
get beitt áhrifum mínum í að efla
konur sem ég er í samskiptum við
þegar ég fæ tækifæri til þess. En til
þess að konur geti eflt veg annarra
kvenna á þann hátt sem ég tel
mikilvægt að við gerum skiptir
öllu að við séu þar sem ákvarðanir
eru teknar.“
Helga Sigurrós segir að sér
finnist Arion banki hafa mikinn
metnað og vilji að fjölbreyti-
leiki einkenni þann hóp sem er í
forystu bankans. „En auðvitað er
bæði fjármálageirinn og atvinnu-
lífið enn sem komið er karllægt og
allt byggir þetta á tengslum. Það
er því mikilvægt að konum sé teflt
fram í ríkari mæli og þær komist í
áhrifastöður því þannig geta þær
best stutt hver við aðra og stuðlað
markvisst að auknu jafnrétti.”
Mikilvægi skipulagningar
Silja hóf störf hjá Arion banka
vorið 2018. Hún segist vinna
stöðugt að því að skipuleggja það
sem mætti betur fara samhliða
því að halda utan um teymið sitt.
„Hlutverk teymisins er að þjón-
usta öll fyrirtæki á höfuðborgar-
svæðinu sem eru í viðskiptum við
Arion banka,“ segir Silja Valde-
marsdóttir, forstöðumaður sölu
og þróunar á fyrirtækja- og fjár-
festingarbankasviði Arion banka.
Teymið sinnir stoðþjónustu við
önnur teymi sem sinna fyrir-
tækjum innan bankans, stuðlar að
þróun stafrænna lausna og eykur
skilvirkni þjónustu við fyrirtækin
og innan bankans.
„Ég hef alltaf verið mjög skipu-
lögð og þetta starf krefst mikillar
skipulagningar sem og að koma
auga á verkefni innan bankans
sem væri hægt að vinna með auð-
veldari og hraðari hætti.“
Silja segir að með árunum hafi
áhugi sinn á skipulagi aukist. „Ég
var farin að skrifa upp verklag
þegar ég var 15 ára vinnandi á
kaffihúsi þannig að það kom fljótt
fram hversu mikið ég hugsaði í
ferlum.
„Miklar breytingar hafa verið
innan bankans síðan ég hóf þar
störf og með skilvirkara verklagi
og sterkum áherslum er hægt að
gera ótrúlegustu hluti. Mikilvægt
er að velja rétta fólkið og sjá hvar
styrkleikar hvers og eins liggja og
hvetja fólk til að þróast í starfi. Við
leggjum mikla áherslu á að jafna
kynjahlutföll innan sviðsins.
Sögulega hafa f leiri strákar sótt í
þau störf sem eru á fyrirtækja- og
fjárfestingarbankasviði. Það er
því mikilvægt að ráða inn f leiri
konur til að jafna kynjahlutafallið
enn frekar, bæði í störf stjórnenda
en ekki síður í störf sérfræðinga
sem svo geta vaxið í starfi og
orðið stjórnendur síðar meir. Það
er þekkt að konur, að mér með-
talinni, gera oft þær kröfur til sín
að þurfa að uppfylla öll atriðin á
hæfnislistum atvinnuauglýsinga
og sleppa því að sækja um, sem er
eitthvað sem við konur verðum að
læra að hætta að gera.“ n
Metnaður í jafnréttismálum hjá Arion banka
Silja Valdemarsdóttir, forstöðumaður sölu og þróunar á fyrirtækja- og fjár-
festingarbankasviði Arion banka. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Helga Sigurrós, forstöðumaður fyrirtækjatrygginga á fyrirtækja- og fjárfest-
ingarbankasviði Arion banka. MYND/AÐSEND
Sif Björk Birgisdóttir, eigandi Aðalkaupa
ehf., er með yfir 20 ára reynslu úr bíla-
geiranum. Sif er löggiltur bifreiðasali með
meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum.
„Markmið mitt er að bjóða nýja bíla á ótrú-
legum verðum til ánægðra viðskiptavina.
Bílarnir eru í ábyrgð, sérlega vel útbúnir og
tilbúnir til afhendingar strax. Ég hlakka til að
taka á móti fleiri ánægðum viðskiptavinum
og hjálpa þeim að eignast draumabílinn á
miklu, miklu lægra verði. Endilega sláið á
þráðinn og spjöllum saman, því það er svo
gaman!“
30 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU