Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 30
Í dag heiðrum við
Viðurkenningar-
hafa FKA 2022 og er
FKA þannig mótandi og
leiðandi í íslensku
samfélagi.
Sigríður Hrund Pétursdóttir
Að gera gagn
Vigdís Jóhannsdóttir er
stjórnarmaður í FKA en hún er
markaðsstjóri Stafræns Íslands.
„Það er fátt meira hvetjandi en
að upplifa það að gera gagn.
Að taka þátt í einhverju eða
framkvæma eitthvað sem
raunverulega skiptir máli fyrir
aðra. Ýta við hlutum sem kalla
fram raunverulegar breytingar
á lífi fólks. Það þarf ekki að vera
stórt. En við getum öll gert
eitthvað.
Við höfum ekki öll þolin-
mæði til að horfa á dropann
hola steininn. Þolinmæði er
að minnsta kosti ekki einn af
mínum helstu kostum en margt
smátt gerir eitt stórt. Þess
vegna stökk ég á tækifærið að
taka þátt í verkefninu Stafrænt
Ísland þar sem leiðarljósið er að
einfalda líf fólks og fyrirtækja
á Íslandi og tryggja öllum jafnt
aðgengi að opinberri þjónustu.
Það gerist kannski ekki á einni
nóttu en áður en við vitum af
verðum við búin að breyta Ís-
landi. Það er sömuleiðis ástæða
þess að ég gaf kost á mér í
stjórn FKA. 1.300 konur eru
kannski dropar sem hola steina
en saman eru þær stórfljót sem
geta breytt heiminum.“
Vigdís Jó-
hannsdóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON
Leiðandi afl í atvinnulífinu
Unnur Elva Arnardóttir er vara-
formaður FKA og starfar sem
forstöðumaður innri og ytri
þjónustu hjá Skeljungi. „Ég hef
tekið virkan þátt í starfi FKA,
fyrst í nefndum og í stjórn frá
árinu 2019. Innan stjórnar var
ég fyrst í hlutverki gjaldkera, en
nú sem varaformaður.
Ég tel að það félagsstarf sem
Félag kvenna í atvinnulífinu
stendur fyrir, sé atvinnulífinu
og samfélaginu í heild mjög
mikilvægt. Félagskonur sem
tekið hafa virkan þátt í starfi
FKA, hafa stóreflt tengslanet
sitt og dýpkað tengingu sína
við viðskiptalífið. Það má því
segja að virkilegur ávinningur
sé af virkri og reglubundinni
þátttöku á fundum, fyrir-
lestrum og viðburðum félags-
ins. Ég hef sjálf haft mikið gagn
af tengslanetinu þar sem gildi
FKA, framsækni, kunnátta og
afl hafa svo sannarlega átt við
og ýtt undir mína styrkleika.
FKA er leiðandi afl í atvinnu-
lífinu, kröftugt og fjölbreytt
þekkingarnet sem er að vaxa
sem aldrei fyrr. Vegna heims-
faraldurs finnum við enn betur
hve mikilvægt félagastarfið
er og ég hvet konur til að vera
með í félagsstarfinu.
Unnur Elva Arnardóttir.
Til hamingju Ísland
Sigríður Hrund Pétursdóttir
er formaður FKA ehf. og rekur
fyrirtækið Vinnupallar. Með
henni í stjórn eru sex konur úr
atvinnulífinu. FKA eru félaga-
samtök fyrir konur sem eru
stjórnendur og leiðtogar í
íslensku atvinnulífi.
Í dag heiðrum við Viðurkenn-
ingarhafa FKA 2022 og er FKA
þannig mótandi og leiðandi í
íslensku samfélagi. Yfir 1.300
kraftmiklar konur eru í félaginu
sem sjá virði í að tengjast til að
efla sig sem og aðrar konur og
vera hreyfiafl um leið. Heims-
faraldur hefur fært okkur bæði
verkefni og gjafir. Landsbyggða-
deildum óx t.d. öllum ásmegin
þegar við þurftum að blanda
félagsstarfinu í Raf- og Raun-
viðburði – sem er einstakt og
lýsandi fyrir orkuna sem í félag-
inu býr.
Það er gefandi og ánægju-
legt að veita viðurkenningar til
útvaldra kvenna í dag – heiðrum
þær og veitum athygli þeirra för.
Það er sameiginlega vegferðin
okkar allra. Kraftur kvenna er
kraftur samfélagsins og mikil-
vægt að rækta þá dýrmætu
auðlind.
Það er bjart fram undan en
einungis ef við höfum hugar-
farið þannig stillt – viðhorf er
nefnilega val. Hugurinn ber
okkur hálfa leið, framkvæmdin
hinn helminginn.
Nýtum kraft kvenna – okkur
öllum til gæfu og giftusemi.
Sigríður Hrund Pétursdóttir.
MYND/AÐSEND
Gefandi, lærdómsríkt og skemmtileg
Edda Rún Ragnarsdóttir, stjórnarkona í FKA,
er innanhússarkitekt og eigandi ERR Design.
„Ég gekk inn í FKA eftir að ég stofnaði fyrir-
tækið mitt ERR Design, innanhússarkitektúr og
verkefnastjórnun árið 2010. Áður starfaði ég
bæði í London og hér heima á stofu í nokkur ár
fyrir eigin rekstur. FKA er risastórt tengslanet
og býður upp á alls kyns fræðslu, það var aðal-
ástæðan fyrir því að ég fór í FKA. Kynnast konum
í ólíkum greinum, eiga áhugaverð samtöl, sækja
fræðslufundi og læra eitthvað nýtt.
Máttur tengslanetsins getur opnað nýjar
dyr og jafnvel viðskiptatækifæri, þar sem við
bendum á og mælum með konu í starf eða
verkefni og kynnum fyrirtækin okkar. Ég tala
af reynslu, því ég er svo lánsöm að hafa fengið
verkefni í gegnum félagskonur eða þær bent á
mig. Síðastliðið vor var ég kosin í stjórn FKA sem
hefur verið mér mjög gefandi, lærdómsríkt og
skemmtileg. Ég hvet konur til að bjóða sig fram í
nefndir eða í stjórn og tengjast þannig enn betur
inn í félagið.
Edda Rún Ragnarsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Styrkur til framsækni
Elísabet Tanía Smáradóttir, mannauðs- og gæða-
stjóri hjá Hertz, er stjórnarkona í FKA. „Leið mín
lá á fyrst til FKA árið 2009 en vegferð mín og
þátttaka hófst ekki fyrr en 2021 þegar ég ákvað
að koma af fullum krafti inn. Bauð mig fram til
stjórnar og sit þar í dag með bros á vör. Ég var
nefnilega ein af þeim sem taldi fyrirtækjarekstur
vera hálfgerða forsendu fyrir félagsvist. Sannar-
lega er það ekki svo enda er FKA fyrir allar konur
sem eru leiðandi/stjórnendur í atvinnulífinu og
vilja efla það enn frekar.
FKA fyrir mér er tækifæri til að styrkja sjálfa
mig og aðra um leið. Tækifæri til að efla tengsla-
net og nýta styrk minn og annarra félagskvenna
til framsækni. Læra af leiðandi konum í atvinnu-
lífinu og gefa af mér um leið. Nýta ofurkraftinn
frá ríflega 1.300 konum sem allar eru ólíkar og
þekkingin eftir því. Ég vil leggja mitt af mörkum
við að gera félagið enn sterkara með stöðugum
Elísabet Tanía Smáradóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Veitir vináttu og góða reynslu
Eydís Rós Eyglóardóttir framkvæmdastjóri er
stjórnarmaður í FKA og sömuleiðis gjaldkeri
félagsins. „Styrkur FKA einkennist af þeim 1.300
konum sem eru skráðar í félagið. Hópurinn er
gífurlega fjölbreyttur og spannar stórt aldursbil.
Saman leggja félagskonur málefnum kvenna í
atvinnulífinu lið, stöndum vörð hver um aðra,
miðlum þekkingu og reynslu, sköpum og finnum
þau tengsl sem við þörfnumst, en umfram allt
jákvæð uppbygging sem nýtist konum í lífi og
starfi.
Að starfa með og fyrir FKA hefur fært mér mikla
reynslu sem og frábær tengsl sem og vináttu
sem ég mun þakka fyrir alla mína ævi. Það er mín
upplifun af félaginu að það leitist við að vera
með puttann á púlsinum hverju sinni og sé mjög
lifandi félag sem allar konur í atvinnulífinu ættu
að íhuga að vera partur af sér til ávinnings.“
Eydís Rós Eyglóardóttir. MYND/AÐSEND
Samstaða kvenna úr öllum áttum
Katrín Kristjana Hjartardóttir situr í stjórn FKA.
„Ég skráði mig í FKA haustið 2020. Tíu mánuðum
seinna var ég kosin í stjórn félagsins. Á þeim tíma
hef ég vaxið á ljóshraða á vinnumarkaði, hugur
minn hefur víkkað og tengslanetið breiðist hratt
út líkt og ónefnd veira.
Starfið í FKA er líkt og önnur verkefni í lífinu:
Við fáum það sem við leggjum til. Persónulega
sóttist ég eftir eigin grósku, ráðabrunni kven-
skörunga í Leiðtoga Auði og samveru Fram-
tíðarkvenna. Á þessum tíma hef ég náð þeim
markmiðum sem ég lagði upp með og meira til,
fyrir það get ég þakkað starfinu í FKA, vinkonum
mínum og mentorum.
Þegar litið er yfir farinn veg þá er mér minnis-
stætt öll góðu samtölin og vilji kvenna til að
deila velgengni sinni.
Í FKA drögum við lærdóm hver af annarri,
hlustum á félagskonur og setjum inn eigin
reynslu – þannig eflum við atvinnulífið, með
samstöðu kvenna úr ólíkum áttum.
Katrín Kristjana Hjartardóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Stjórnarkonur í Félagi
kvenna í atvinnulífinu
FKA vinnur með aðilum
á vinnumarkaði, fyrir-
tækjum, félagasamtökum
og hinu opinbera að því að
efla og benda á þátt kvenna
í stjórnum eða stjórnunar-
stöðum í atvinnulífinu.
Félagið stendur fyrir viðburðum,
fræðslu, veitir ráðgjöf og knýr
fram breytingar á lögum og
venjum til að gæta jafnvægis og
fjölbreytileika innan atvinnulífs-
ins. Félagið var stofnað árið 1999.
FKA eru félagasamtök fyrir konur
sem eru stjórnendur og leiðtogar
í íslensku atvinnulífi. Hvort sem
þú ert stjórnandi, leiðtogi, átt eða
rekur þitt fyrirtæki – þá áttu heima
í FKA ef þú vilt efla þig, styrkja
tengslanet og taka þátt í að stuðla
að því að efla íslenskt atvinnulíf.
Hægt er að skrá sig í félagið á
heimasíðunni fka.is þar sem jafn-
framt eru ýmsar upplýsingar um
starfsemina. n
10 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU