Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 37
Hildur Karen Haraldsdóttir
og Birna Margrét Olgeirs-
dóttir starfa báðar í fjárfest-
ingarbanka Íslandsbanka.
Hildur er í fyrirtækjaráðgjöf
á meðan Birna starfar við
verðbréfamiðlun. Þær eru
sammála um að spennandi
tækifæri leynist í því að
jafna hlut kynjanna í stjórn-
unarstöðum.
Hildur útskrifaðist úr HR með
meistaragráðu í lögfræði og er
með próf í verðbréfaréttindum.
Reynsla Birnu spannar yfir 20 ár á
fjármálamarkaði og tæp 15 ár hjá
Íslandsbanka. „Ég er hagfræðingur
að mennt frá HÍ og með próf í
verðbréfaviðskiptum frá HR. Að
loknu námi starfaði ég hjá Kaup-
höll Íslands í sjö ár. Þaðan lá leið
mín í Íslandsbanka þar sem hef ég
starfað síðan.“
Þrífst á nýjum áskorunum
Hildur og Birna hafa báðar öðlast
dýrmæta reynslu við fjölbreytt
störf innan bankans síðastliðin ár.
Að sögn Birnu er kostur að starfa
hjá stóru fyrirtæki eins og Íslands-
banka. Þar gefst kostur á að þróast
innan bankans og breyta til. „Ég
byrjaði á fjárfestingarbanka-
sviði en hef einnig starfað bæði
í fjárstýringu og eignastýringu.
Nú síðast starfaði ég á fyrirtækja-
sviði áður en ég tók við nýju
starfi innan bankans í desember
síðastliðnum í verðbréfamiðlun,
sem er mín fimmta staða innan
bankans. Áhersla mín er á erlenda
fjárfesta og stærri einkafjárfesta.
Markaðir hafa verið líf legir og ég
sé líka mikil tækifæri í að styrkja
viðskiptatengsl bankans erlendis.“
Hildur hefur starfað við ýmis
störf hjá Íslandsbanka síðan 2010.
„Ég byrjaði sem ráðgjafi í útibúi
Íslandsbanka eftir menntaskóla
og hef fengið tækifæri til að ferðast
innan fyrirtækisins. Eftir laganám
hóf ég störf sem lögfræðingur í
lögfræðideildinni. Fyrir rúm-
lega þremur árum byrjaði ég svo í
fyrirtækjaráðgjöfinni. Í dag starfa
ég sem lögfræðingur í fyrirtækja-
ráðgjöf bankans,“ segir Hildur.
Krefjandi verkefni og góð
heilaleikfimi á hverjum degi
Að sögn Hildar er fyrirtækja-
ráðgjöf í eðli sínu fátt annað en
þjónusta og ráðgjöf til fyrirtækja
um mál félagsins. „Helstu verkefni
okkar eru kaup og sala fyrirtækja,
yfirtökur, samrunar og aðrar
eignarhaldstengdar breytingar
fyrirtækja, fjármögnun fyrirtækja
með hlutabréfa- eða skulda-
bréfaútboðum og nýskráningar
og sala á hluta- og skuldabréfum.
Fyrirtækjaráðgjöf er að mínu
mati ein skemmtilegasta deildin í
bankanum. Hvert verkefni er ólíkt
öðrum og enginn dagur er eins.“
Hildur er eini lögfræðimenntaði
starfsmaðurinn í sinni deild. „Ég
sinni því aðeins öðruvísi hlutverki
en kollegar mínir. Í öllum okkar
verkefnum kemur reynsla mín
og menntun í lögfræði til góða
enda trúi ég því að fjölbreytileiki
í teymum skili bestum árangri.
Þungt regluverk er í kringum
starfsemina og verðbréfaviðskipt-
in, sem þarf að fylgjast náið með.
Að auki fylgir mikil skjalagerð
hverju verkefni, sem lendir oftar
en ekki á mínu borði. Einnig hef ég
umsjón með skrifum og verk-
efnastýringu þegar við útbúum
lýsingar verðbréfa fyrir viðskipta-
vini okkar.“
Í verðbréfadeildinni segist Birna
fyrst og fremst vera að byggja
upp viðskiptatengsl. „Í því felst
að kortleggja mögulega fjárfesta,
hafa samband við þá og kynna
fyrir þeim íslenskan verðbréfa-
markað og efnahagsumhverfið
hér. Mikilvægt er að hafa góða
þekkingu á fjármálamarkaði hér
heima og erlendis og því fylgist ég
vel með mörkuðum og efnahags-
málum innan lands sem utan. Í
störfum mínum hjá Íslandsbanka
hef ég náð mér í víðtæka reynslu
og þekkingu frá mörgum ólíkum
hliðum í bankastarfsemi sem nýt-
ist mér í núverandi starfi. Reynsl-
an frá Kauphallarárunum kemur
sér einnig vel en þar kynntist ég
þankaganginum á bak við verð-
bréfaviðskipti. Hagfræðinámið
hefur einnig verið góð undirstaða.
Þó að ég hafi aldrei diffrað eða
tegrað í vinnunni var sá skóli engu
að síður góð heilaleikfimi.“
Góður vinnustaður
Hildur og Birna eru báðar afar
ánægðar í sínu starfi og sammála
um að vinnufélagarnir spili þar
stórt hlutverk. „Ég hefði aldrei verið
svona lengi hjá bankanum ef þetta
væri ekki frábær vinnustaður,“ segir
Hildur. „Það sem gerir Íslandsbanka
svona skemmtilegan eru samstarfs-
félagarnir og fjölbreytnin. Þetta er
eins og mörg lítil fyrirtæki í einu
fyrirtæki. Allir að sinna sínu og ótal
sérfræðingar í öllu mögulegu. Hér
er hægt að vaxa í starfi og margt
hægt að læra með öllu þessu góða
fólki. Vinnudagarnir eru þó oft
krefjandi og langir. Það einkennir
fyrirtækjaráðgjöf almennt að
fólkið er metnaðarfullt, þyrstir í að
læra og er tilbúið að hlaupa hratt.
Ráðgjöfin er frábær vettvangur til
að kynnast markaðnum á handa-
hlaupum. Þú færð tækifæri til að
vinna fyrir stór og flott félög og
kosturinn er að þú kynnist lykil-
stjórnendum í þessum félögum og
færð að læra af þeim líka.“
„Ég hef oft sagt að það séu forrétt-
indi að vinna í Íslandsbanka,“ bætir
Birna við. „Það er einstaklega vel
hugsað um okkur starfsfólkið. Hjá
okkur er til dæmis lögð áhersla á
jafnvægi milli einkalífs og vinnu og
fólk er eindregið hvatt til að afla sér
fræðslu og þekkingar. Þá er mikið
lagt upp úr vellíðan á vinnustað og
góðri liðsheild.“
Mætti bæta kynjahlutföllin
„Kynjahlutföllin mættu vera betri
á okkar sviði og í okkar deild,“
segir Hildur. „Eftir að tvær konur
létu nýlega af störfum erum við í
dag tvær konur í ráðgjöfinni og tíu
karlar. Það er frábært að vinna með
öllum í deildinni en stefna bankans
og okkar er að fjölga konum.“
Birna bætir við að í gegnum
tíðina hafi einnig hallað á konur
í fjárfestingarbankastarfseminni
heima og erlendis. „Hópurinn sem
ég vinn með samanstendur af fólki
með fjölbreytta reynslu og mennt-
un, sem er nauðsynlegt. Þannig
komast mismunandi sjónarmið
og hugmyndir á yfirborðið. Konur
og karlmenn hafa oft ólíka sýn og
nálgun á viðfangsefni. Því tel ég
nauðsynlegt að hlutföllin verði
jafnari í fjárfestingarbankastarf-
seminni til þess að ná fram meiri
fjölbreytileika í hópnum,“ segir
hún. „Það er augljóst að fjölbreytt
teymi með fólki af ólíkum aldri,
kyni, bakgrunni og fleira skara
fram úr,“ bætir Hildur við.
Jafnréttismál Íslandsbanka
Íslandsbanki er leiðandi fyrirtæki
í sjálfbærnimálum en jafnréttis-
mál eru hluti af sjálfbærniveg-
ferð bankans. Eitt af sjálfbærni-
markmiðum fyrir árið 2025 er
að jafna betur út kynjahlutföll
innan bankans. „Hlutfall kvenna
í framkvæmdastjórn bankans
er um 40%,“ segir Birna og bætir
Hildur við að bankinn vilji tryggja
að hlutfall karla og kvenna í stjórn-
endateymi bankans fari ekki undir
það. „Á síðustu árum hefur bank-
inn lagt áherslu á að jafna hlutföll
kynjanna og gripið til aðgerða. Þá
er bankinn með jafnlaunavottun
og tekur þátt í ýmsum verkefnum
tengdum jafnrétti,“ segir Birna.
„Það er ekkert launungarmál að
það vantar fleiri konur í fjárfest-
ingarbankann almennt og skýrt
markmið bankans er að fjölga
þeim. Stereótýpan af fjárfestingar-
bankastarfsmanni er karlmaður
í augum margra, og var það hjá
mér þegar ég byrjaði. Þessi bransi
er enn í dag mjög karllægur og
stjórnendur í fjárfestingarbanka
eru oftar en ekki karlmenn. Ég
held það sé ekki vilji hjá neinum
til að hindra konur eða útiloka
frá þessum markaði, heldur hefur
þetta verið þróunin um árabil og
við virðumst aðeins hafa sofnað
á verðinum. Mikil tækifæri felast
í því að kynna starfsemina betur
fyrir konum, breyta kúltúr í takt
við nýjar áherslur og fjölga konum
í þessum störfum. Það er mín ein-
læga trú að kynjahlutföllin muni
breytast hratt á næstu árum. Hjá
bankanum er verið að setja af
stað aðgerðaáætlun um mælanleg
markmið um fjölgun kvenna í fjár-
festingarbankanum og í upplýs-
ingatækniþjónustu,“ segir Hildur.
„Það eru því spennandi tækifæri til
staðar því slíkar umbætur styrkja
þjónustuframboð bankans til við-
skiptavina enn betur,“ bætir Birna
við.
Hæfir einstaklingar finnast af
öllum kynjum og gerðum
„Eitt stóru málanna í dag er að
jafna hlut kynjanna í stjórnunar-
stöðum. Fyrir ungar konur sem
vilja ná langt eru góðar fyrirmynd-
ir ómissandi. Því miður virðist
enn halla á konur í stjórnenda-
hlutverkum. Bankastjóri Íslands-
banka er til dæmis eina konan sem
er forstjóri í félagi sem er skráð í
Kauphöll. Það hljóta allir að sjá að
það er skakkt og gengur ekki upp
til lengdar,“ segir Hildur. „Ég tel
að alltaf ætti að leitast við að hafa
fjölbreytileika í hópi stjórnenda,
hvort sem við horfum á kyn, aldur,
reynslu og fleira. Með því fáum
við mismunandi sjónarmið og
hugmyndir fram, sem á endanum
stuðlar að betri ákvörðunum. Að
sjálfsögðu er mikilvægt að velja
hæfustu einstaklingana í stjórn-
unarstöður, en hæfir einstaklingar,
sem eiga mikið erindi í áhrifa-
stöður, finnast af öllum kynjum,“
bætir Birna við. n
Ég hef oft sagt að
það séu forréttindi
að vinna í Íslandsbanka.
Birna Margrét
Fyrirtækjaráðgjöf
er að mínu mati
ein skemmtilegasta
deildin í bankanum.
Hvert verkefni er ólíkt
öðrum og enginn dagur
er eins.
Hildur Karen
Íslandsbanki í fararbroddi í kynjahlutföllum
Hildur Karen
Haraldsdóttir til
vinstri og Birna
Margrét Olgeirs-
dóttir til hægri.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
kynningarblað 17FIMMTUDAGUR 20. janúar 2022 FÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU