Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 38
FLYOVERICELAND.IS
KRAKKAR FLJÚGA
FRÍTT Í VETUR
Héldu flugi í
heimsfaraldri
Helga María segir að fyrirtækið hafi verið opnað aðeins hálfu ári fyrir farald
urinn og sýndarflugið verið hannað með ferðamenn í huga. Hjartað óx því um
nokkur númer við að sjá hve vel Íslendingar tóku því. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sýndarferðalag með Fly-
Over Iceland er einstök og
heillandi afþreying sem
hentar jafnt ferðagörpum og
þeim sem lítið geta ferðast.
Sýningunni hefur verið
tekið mjög vel af Íslend-
ingum og í vetur er börnum
boðið að fljúga frítt.
„FlyOver Iceland er sýndarflug
á heimsmælikvarða sem hentar
öllum aldurshópum,“ segir Helga
María Albertsdóttir, framkvæmda-
stjóri FlyOver Iceland. „Með hjálp
nýjustu tækni getum við boðið
gestum okkar upp á æsispenn-
andi sýndarferðalag um náttúru
Íslands og aðra spennandi staði
sem við erum með í sýningu
hverju sinni. Vindur, þoka og lykt,
ásamt hreyfingum tækisins, gera
upplifunina virkilega raunveru-
lega og eftirminnilega. Sýningin
er ótrúlega skemmtileg og það er
alltaf jafn gaman að sjá umsagnir
sem gestir okkar hafa skilið eftir á
vefnum, en þær útskýra mun betur
en ég hversu frábær heimsóknin til
FlyOver er í raun.“
Frítt fyrir börn í allan vetur
„FlyOver Iceland hóf starfsemi
haustið 2019 og svo skall Covid á
okkur aðeins hálfu ári síðar. Við
erum fyrirtæki í ferðaþjónustu og
Íslandssýningin er hönnuð með
ferðamanninn í huga, þannig að
okkur óraði ekki fyrir því hversu
vel Íslendingar myndu taka
okkur,“ segir Helga María. „Hjartað
stækkar alveg um nokkur númer
þegar ég hugsa um það og það varð
til þess að við bættum fljótlega
við sýndarflugi yfir Kanada og
nú höfum við líka hafið sýningu
á villta vestrinu, með sínu stór-
brotna landslagi. Þar koma fyrir
alvöru kúrekar og frumbyggjar,
sem krökkunum finnst mjög
spennandi.
Nú í vetur bjóðum við krökkum
að fljúga frítt, þannig að með
hverjum fullorðinsmiða fylgir einn
barnamiði sem hægt er að nota á
sömu sýningu,“ segir Helga María.
„Hér er vel gætt að öllum sóttvörn-
um, snertifletir eru sótthreinsaðir
eftir hverja ferð, það er engin þörf
á hraðprófi og fjöldi gesta á hverja
sýningu er takmarkaður í takt
við reglur hverju sinni. Með þessu
viljum við hvetja barnafjölskyldur
til þess að heimsækja okkur í vetur
og lyfta sér upp í skammdeginu.“
Stórbrotið ferðalag á allra færi
„Það er engin sýning þessu lík á
Íslandi. FlyOver Iceland er á lista
yfir bestu sýndarflugsýningar í
öllum heiminum og við erum stolt
af því að eiga þátt í að geta boðið
bæði gestum og heimamönnum
að upplifa fallega landið okkar
á þennan einstakan hátt,“ segir
Helga María. „Það koma bæði til
okkar vanar fjallageitur og flugfólk
sem verða orðlaus yfir stöðunum
sem flogið er yfir, enda þyrftir þú
að ganga á fjöll vikum saman eða
leigja þyrlu í marga daga til að
sjá staðina sem flogið er yfir hjá
okkur.
Við leggjum líka mikið upp úr
góðu aðgengi að sýningunni fyrir
alla, óháð því hversu fótaliprir
þeir eru, og því geta allir fengið
að upplifa þá tilfinningu að svífa
frjáls um loftin blá,“ útskýrir Helga
María.
„Hjá FlyOver Iceland leggjum
við einnig mikinn metnað í að vera
fyrirtæki þar sem bæði gestum
og starfsmönnum líður vel og að
allir skynji að fyrir þeim sé borin
virðing,“ segir Helga María. „Við
erum rík af hæfileikaríku fólki og
okkur hefur tekist að halda FlyO-
ver Iceland sýningunni opinni
á nánast hverjum degi frá því að
við opnuðum, þrátt fyrir heims-
faraldur og það sem honum fylgir.
Mikið af okkar fólki er líka búið að
vera í teyminu alveg frá því að við
opnuðum og það hefur staðið sig
eins og hetjur.“
Leggja mesta áherslu á jöfnuð,
skapandi lausnir og traust
„Það er gaman að segja frá því að
kynjahlutföll stjórnenda FlyOver
Iceland eru nokkuð jöfn, en
reyndar eru aðeins fleiri konur
en karlar í stjórnunarstöðum.
Þannig er þessu einnig háttað hjá
móðurfyrirtæki FlyOver Iceland,
sem er alþjóðlegt fyrirtæki,“
útskýrir Helga María. „Í stjórn
FlyOver Iceland sitja tvær konur og
önnur þeirra er stjórnarformaður
félagsins. Heilt yfir eru hlutföllin
nokkuð jöfn hjá okkur, en það
kemur kannski ekki á óvart að
tæknideildin er undantekningin
frá reglunni og það væri gaman að
sjá fleiri konur í þeirri deild.
Það hefur verið sýnt fram á að
aukinn fjölbreytileiki í stjórnunar-
stöðum hafi jákvæð áhrif á rekstr-
arafkomu fyrirtækja. Það gefur því
augaleið að aukin þátttaka kvenna
í rekstri fyrirtækja er öllum til
heilla,“ segir Helga María. „Án þess
að það sé hægt að alhæfa þá hefur
stjórnunarstíll kvenna líka oft
verið kenndur við umbreytinga-
forystu og þjónandi forystu. Þar er
áherslan lögð á skapandi lausnir og
að stuðla að fyrirtækjamenningu
sem byggð er á gagnkvæmu trausti
stjórnenda og starfsmanna.“ n
18 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU