Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 78
Markmið
okkar er að
vera þekkt
vörumerki
sem fólk
tengir við
heilsu og
hamingju.
Belinda Navi
Eftir langan tíma í fjármála-
geiranum ákvað Hrönn
Eir Grétarsdóttir að snúa
algjörlega við blaðinu og
prófa eitthvað nýtt. Í dag er
hún Operations and Service
Manager hjá GOOD GOOD,
þar sem starf hennar snýst
um samskipti við viðskipta-
vini og í því hlutverki líður
henni best.
Hrönn er með BS-próf í sálfræði
og hefur tekið ýmis atvinnutengd
námskeið hjá HR ásamt því að hafa
lokið námi til viðurkennds bókara.
„Ég hef unnið í bankageiranum
frá því að námi lauk og þar til ég
byrjaði hjá GOOD GOOD. Ég hef
unnið margvísleg störf hjá Arion
banka og fyrirrennurum hans,“
upplýsir Hrönn Eir.
Heillandi að vinna
hjá litlu fyrirtæki
„Þegar mér bauðst starfið hjá
GOOD GOOD var ekki spurning
um að þetta var nákvæmlega það
sem mig langaði að gera. Það var
eitthvað heillandi við að fara að
vinna hjá litlu fyrirtæki í matvæla-
framleiðslu sem hafði miklar áætl-
anir um að stækka markaðssvæði
sín og leyfa fleirum að kynnast
þeim frábæru vörum sem við fram-
leiðum og seljum,“ segir Hrönn.
Starf hennar snýst um samskipti
við viðskiptavini.
„Ég er í samskiptum við B2B-
viðskiptavini okkar í Evrópu,
Bandaríkjunum og Kanada. Ég tek
við pöntunum og kem þeim áfram
á vöruhúsin okkar. Ég er einnig í
daglegum samskiptum við vöru-
húsin. Ég er í nánu samstarfi við
teymið okkar í Bandaríkjunum
og Kanada, enda er það stærsta
markaðssvæðið okkar. Ég held
utan um Amazon-lagerinn í Bret-
landi, Bandaríkjunum og Kanada
og sé til þess að nóg sé til af vörum
á lager. Ég er einnig í samskiptum
við B2C-viðskiptavini okkar, þegar
þeir hafa samband út af ýmsum
ástæðum, hvort sem þeir eru að
kaupa beint af vefsíðunni okkar
eða út úr búð.“
Yfir helmingur
starfsmanna konur
Meira en helmingur starfsmanna
GOOD GOOD eru konur.
„Fyrirtækið hvetur alla starfs-
menn sína og þar á meðal konur
áfram í starfi sínu. Allir hafa sinn
ábyrgðarhluta og hvatt er til sjálf-
stæðis í starfi, ásamt því að vinna
vel saman sem teymi. Starfsmenn
fá jákvæða og uppbyggilega hvatn-
ingu í því sem þeir gera ásamt
því að sækja sér þá þekkingu sem
þarf til að bæta sig í starfi. Gætt er
jafnvægis milli starfs og einkalífs,“
segir Hrönn.
Sérstaða fyrirtækisins felst í
mannauðinum og hugvitinu.
„Þetta er lítið en ört stækk-
andi fyrirtæki og byggist á því að
allir starfsmenn nái að vinna vel
saman, meðal annars þvert yfir
landamæri, þar sem hluti starfs-
manna okkar starfar í Bandaríkj-
unum,“ segir Hrönn.
Stjórnendur treysti starfsfólki
sínu fyrir þeirra hlutverki og það
smiti út frá sér.
„Einnig fær maður að fylgjast
með þegar vara er þróuð og allir
taka þátt í þróuninni að einhverju
leyti. Það er eitthvað sem myndi
ekki gerast í stærri einingu. Mikill
metnaður er hjá fyrirtækinu að
veita hollustuvöru sem er bragð-
góð og er gæðavara.“
Sykurlaus lífsstíll ört vaxandi
Nú nýtur sykurlaus lífsstíll
vaxandi vinsælda, finnið þið fyrir
því?
„Algjörlega, sífellt f leiri gera
sér betur grein fyrir að sykurlaus
lífsstíll er eitthvað sem gott er að
tileinka sér. Hluti okkar viðskipta-
vina eru í ketó-lífsstíl, eru með
sjúkdóma eins og sykursýki eða
vilja einfaldlega tileinka sér heil-
brigðan lífsstíl með breytingu á
mataræði.“
Hrönn segir eftirspurn eftir
vörum GOOD GOOD nú aukast á
öllum markaðssvæðum, ásamt því
sem fyrirtækið haslar sér nú völl á
nýjum mörkuðum, eins og Suður-
Kóreu, Kína og Miðausturlöndum.
„Ég vona að íslenskt hugvit
haldi áfram að blómstra. Ég
er þakklát fyrir að vinna hjá
litlu, áhugaverðu og stækkandi
fyrirtæki sem vinnur þvert yfir
heimsálfur. Ég vona að Íslendingar
hafi nú kynnst því betur að GOOD
GOOD er íslenskt hugvit og metn-
aðarfullt fyrirtæki sem býður upp
á gæðavörur fyrir sykurlausan
lífsstíl.“
Getur þú gefið konum góð ráð
til að ná settum markmiðum
og ná langt í atvinnulífinu? „Ef
ég tala út frá sjálfri mér, eiga
konur það til að draga úr því sem
þær hafa áorkað í starfi sínu og
námi. Þetta snýst um að hafa trú
á sjálfum sér; við getum allar
áorkað meiru en við höldum.“n
Snýst um að hafa trú á sjálfum sér
Þóra Björg Stefánsdóttir er
forstöðumaður aðfanga-
stýringar hjá GOOD GOOD,
sem er mikið ábyrgðarstarf.
Menntun hennar í rekstrar-
og stjórnunarverkfræði
kemur sér vel í starfinu, sem
og þeirri greiningavinnu
sem því fylgir.
„Það sem laðaði mig að GOOD
GOOD var tækifærið til að koma
inn í fyrirtæki í miklum vexti og
hafa möguleika á að taka þátt í
því ævintýri og setja mitt mark á
það. Ég ber ábyrgð á og sé um öll
innkaup fyrir framleiðslu á okkar
vörum og er því í miklum sam-
skiptum við birgja okkar um allan
heim. Ég vinn einnig náið með
flestum deildum fyrirtækisins og
kem mikið að fjölbreyttri grein-
ingavinnu,“segir Þóra og er virki-
lega ánægð í sínu hlutverki sem
forstöðumaður.
Gefandi að leita lausna
Hefur þú ávallt haft brennandi
áhuga á því að vera í aðfanga-
stýringu?
„Nei, ekki endilega, en frá því
ég hóf háskólanám sem kynnti
mig fyrir faginu fann ég fljótlega
út að þarna væri eitthvað sem mér
fannst spennandi. Aðfangakeðjan
er flókin og fjölbreytt, og krefst
samspils margra þátta og aðila, og
það er bæði krefjandi en jafnframt
gefandi að leita lausna til þess að
stýra henni á sem skilvirkastan
hátt.“
Virði og færni hvers og
eins metin að verðleikum
Er GOOD GOOD með öf luga
mannauðsstefnu sem laðar konur
til starfa og hvetur þær áfram á
framabrautinni?
„Já, tvímælalaust. GOOD GOOD
er vinnustaður þar sem konur eru í
meirihluta og virði okkar og færni
er virkilega metin að verðleikum
af stjórnendum. Við erum í lykil-
stöðu og höfum mikil áhrif innan
Fólk tengir Good Good við heilsu og hamingju
Þóra Björg Stefánsdóttir er forstöðumaður aðfangastýringar hjá GOOD GOOD.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hrönn Eir
Grétarsdóttir er
þjónustustjóri
GOOD GOOD
sem byggir á
íslensku hugviti
og býður upp
á girnilegar
og gómsætar
gæðavörur fyrir
sykurlausan
lífsstíl.
MYND/AÐSEND
fyrirtækisins þar sem treyst er á
hæfileika okkar til að drífa árangur
fyrirtækisins. Þar sem við erum ört
stækkandi fyrirtæki eru fjölmörg
tækifæri innan flestra sviða, sem
býður upp á mikla möguleika á
því að öðlast reynslu og að vaxa í
starfi,“ svarar Þóra Björg.
Sérstaða fyrirtækisins er skýr.
„Við erum íslenskt fyrirtæki með
mjög fjölbreytt og sterkt alþjóðlegt
teymi og vinnum einnig í alþjóð-
legu umhverfi með samstarfsað-
ilum um allan heim. Jafnframt er
menning fyrirtækisins sterk og hér
ríkir sameiginlegur vilji til að ná
árangri, með hreinskilni og opnum
umræðum að leiðarljósi og þar
sem allir hafa rödd, en það er eitt-
hvað sem ég tel mjög mikilvægt.“
Getur þú gefið konum góð ráð
til að ná settum markmiðum og
ná langt í atvinnulífinu? „Ég held
fyrst og fremst að það sé mikil-
vægt að vera óhrædd við að setja
markið hátt. Það sem hefur einnig
reynst mér vel er að leitast eftir því
að hafa áhrif – láta í mér heyra og
koma mínum skoðunum og hug-
myndum á framfæri. Einnig finnst
mér mikilvægt að þekkja sitt eigið
virði og sætta sig ekki við neitt
minna en maður telur sig geta gert
og lagt af mörkum.“
Hágæða sjálfbærar vörur
Belinda Navi er markaðsstjóri
Belinda Navi, markaðsstjóri GOOD GOOD. MYND/AÐSEND
hjá GOOD GOOD. Hún segir
spennandi tíma fram undan hjá
fyrirtækinu og að starfsemin vaxi
hratt.
„Það eru virkilega spennandi
tímar fram undan í markaðs-
málum GOOD GOOD. Þar sem
starfsemin heldur áfram að vaxa
á heimsvísu, þá höfum við öðlast
aukin tækifæri til að læra meira
inn á og kynnast enn betur þeim
fjölbreytta hóp viðskiptavina sem
kýs okkar vörumerki af ýmsum
ástæðum,“ segir Belinda.
Hún heldur áfram:
„Markaðssetning spilar lykil-
hlutverk í aðgreina sig gagnvart
keppinautum og að ná markaðs-
hlutdeild á öflugum samkeppnis-
markaði matar- og drykkjarvöru.
Þar af leiðandi einblínum við á
fjárfesta í að byggja upp eigin getu
sem og að styrkja innviði starf-
seminnar með skynsamlegum
fjárfestingum, til að mynda með
stafrænni og staðsetningarmið-
aðri markaðssetningu sem mun
hjálpa okkur að ná tekjumark-
miðum okkar og auka sýnileika
vörumerkisins á viðeigandi mörk-
uðum. Markmið okkar er að vera
þekkt vörumerki sem fólk tengir
við heilsu og hamingju. Vörur sem
bæði fjölskyldur og einstaklingar
geta reitt sig á fyrir að vera ljúf-
fengar, hágæða og sjálf bærar
vörur, “ segir Belinda. n
Hér gefur að líta girnilega, fjölbreytta og sykurlausa vörulínu GOOD GOOD.
58 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU