Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 48
Mannauðsmál eru
í grunninn rekstr-
arlegs eðlis – öflug liðs-
heild, fagleg fræðsla og
árangursdrifin menning
skilar sér ekki bara í
aukinni starfsánægju
starfsfólks heldur endur-
speglast einnig í beinum
fjárhagslegum ávinningi
fyrirtækja.
Sigrún Halldórsdóttir
Hjá Bláa Lóninu starfa í dag
um 550 manns, þar af 58
prósent konur í fjölbreyttum
störfum. Konur hafa lengi
verið í meirihluta en hlutfall
kvenstjórnenda hjá félaginu
er um 67 prósent.
Sigrún Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri mannauðssviðs
Bláa Lónsins, segir ávinninginn af
fjölbreytileika á vinnustað mikinn
hvort sem litið er til starfsanda,
reksturs eða afkomu. „Bláa Lónið
leggur mikið upp úr því að tryggja
að hver og einn starfsmaður sé
metinn á eigin forsendum, óháð
kyni, kynþætti eða öðrum við-
miðum.“
Hún nefnir í því samhengi að
félagið starfi eftir metnaðarfullri
jafnréttisáætlun en Bláa Lónið
hlaut lögbundna jafnlaunavottun
Jafnréttisstofu, fyrst árið 2018, og
hefur síðan þá unnið samkvæmt
vottuðu jafnlaunakerfi.
Hjá Bláa Lóninu er starfsfólk af
28 þjóðernum sem eykur enn á
fjölbreytileikann. „Við erum afar
stolt af því og teljum það mikinn
styrk fyrir okkur sem þjónustu-
fyrirtæki, en ekki síður sem vinnu-
stað, að búa við slíkan fjölbreyti-
leika en mismunandi menntun,
reynsla og bakgrunnur skilar sér
ekki síst í aukinni fagmennsku og
gæðum gagnvart gestum okkar,“
segir Sigrún.
Mannauðsmál hafa jafnan verið
talin til mjúku málanna í rekstri
fyrirtækja. Sigrún er ósammála
þeirri skoðun. „Mannauðsmál
eru í grunninn rekstrarlegs eðlis
– öflug liðsheild, fagleg fræðsla og
árangursdrifin menning skilar sér
ekki bara í aukinni starfsánægju
starfsfólks heldur endurspeglast
einnig í beinum fjárhagslegum
ávinningi fyrirtækja. Ég er með
gráðu í rekstrarverkfræði og meist-
aragráðu í mannauðsstjórnun en
sú námsblanda hefur reynst mér
afar dýrmæt í starfi mínu hjá Bláa
Lóninu því þar spilar saman þekk-
ing á mannlegri hæfni og hæfni til
þess að greina og meta verkefni og
ákvarðanir út frá rekstrarlegum
ávinningi. Við í framkvæmda-
stjórn horfum til að mynda til
mælikvarða mannauðs til jafns við
fjárhagslega mælikvarða og nýtum
mælingar og niðurstöður sem
leiðarljós í ákvörðunartökum.“
Gera má ráð fyrir að síðustu
mánuðir og misseri hafi verið
krefjandi á mannauðssviði félags-
ins. Um 95 prósent gesta eru alla
jafna erlendir ferðamenn og þegar
landinu er „lokað“ eða flugtíðni
til landsins minnkar eins og raun
ber vitni hefur eflaust þurft að
bregðast hratt við.
Elísabet Lovísa Björnsdóttir og
Lóa Ingvarsdóttir, á mannauðs-
sviði Bláa Lónsins, taka undir
það og nefna meðal annars að
Covid hafi haft mikil áhrif á
vinnustaðinn. „Við þurftum að
bregðast skjótt við og styðja stjórn-
endur þegar til stóð að fara í ýmsar
sársaukafullar aðgerðir í byrjun
faraldursins og aðlaga fyrirtækið
hratt og örugglega nýjum aðstæð-
um,“ segir Elísabet. Lóa samsinnir
því. „Mannauður fyrirtækisins er
mikill og það tók gríðarlega á að
þurfa að segja upp 85 prósentum
af starfsmannafjölda félagsins. Við
erum þó svo lánsöm að stór hluti
starfsmanna kaus að snúa aftur
um leið og aðstæður leyfðu en
félagið réð 450 starfsmenn til sín á
síðasta ári – þar af voru 65 prósent
endurráðningar sem okkur þykir
mjög vænt um.“
Stöðugar breytingar á regluverki
og aðstæðum hljóta að hafa kallað
á mikla aðlögunarhæfni starfs-
fólks?
Sigrún jánkar því. Hún segir að
verkefni flestra hafi breyst mikið,
sér í lagi þegar starfsmönnum
hafði fækkað sem mest en þá
lögðust allir á eitt til að láta hlutina
ganga upp sem hafi verið magnað
að upplifa.
En það hlýtur að vera krefjandi
verkefni að þurfa að segja upp
hundruðum og síðan ráða aftur 450
manns ekki svo löngu síðar?
„Já, það hefur reynt á þraut-
seigju, skipulag og fagmennsku
allra stjórnenda og starfsmanna,“
segir Sigrún. „Á sama tíma og við
höfum ráðið 450 starfsmenn til
starfa, boðið upp á nýliðaþjálfun
og aðra viðeigandi þjálfun og
fræðslu þá höfum við lagt okkur
mikið fram við að hlúa vel að þeim
mannauði sem hefur verið með
okkur í gegnum allan þennan
óvissutíma og lagt okkur sérstak-
lega fram við að huga vel að vinnu-
staðamenningunni. Samstarfsfólk
mitt á mannauðssviði hefur staðið
sig frábærlega, aðlagað sig fljótt
nýjum aðstæðum hverju sinni,
sýnt ómetanlega fagmennsku og
jákvæðni í gegnum allt þetta lær-
dómsríka ferli.“
Sigrún bendir á að tíminn sem
fyrirtækið var lokað vegna Covid
hafi verið vel nýttur til að bæta
ýmsa ferla, upplifunarsvæði og
innviði á öllum sviðum félagsins.
„Eins erum við til dæmis á fleygi-
ferð í stafrænni vegferð en erum
á sama tíma meðvituð um hvar
mannlegi þátturinn er ómissandi.
Í því samhengi er gaman að nefna
að í deildinni okkar, Stafræn,
þróun, eru 60 prósent starfsmanna
konur,“ bendir hún á og bætir við
að þessar fjárfestingar hafi meðal
annars gert fyrirtækinu kleift að
halda í þá 150 starfsmenn sem
héldu störfum sínum meðan á
lokunum stóð.
„Ég hef mikla trú á að við
komum enn sterkari út úr þessu
tímabili en áður,“ segir Sigrún.
„Það er einstakur baráttuandi
sem býr í starfsmannateymi Bláa
Lónsins.“ n
Fjölbreytileikinn skilar sér í fagmennsku
Konur í framkvæmdastjórn Bláa Lónsins ásamt stórum hluta forstöðukvenna. MYNDIR/AÐSENDAR
Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Bláa Lónsins.
Elísabet Lovísa
Björnsdóttir,
forstöðumaður
á mannauðs-
sviði.
28 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU