Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 65
Flestir vilja vanda
sig og standa vel að
þessum málaflokki og
þar liggur okkar metn-
aður einnig.
Gyða Björg Sigurðardóttir
vpallar@vpallar.is • www.vpallar is
Vinnupallar minna á að
öryggi er margfalt meira virði en slys og tjón.
Verum vel búin í kreandi aðstæðum og komum heil heim.
Ráður er ráðgjafarstofa sem
veitir sérhæfða þjónustu á
sviði jafnréttismála til fyrir-
tækja, stofnana og sveitar-
félaga.
„Ég var að læra rekstrarverkfræði í
Háskólanum í Reykjavík árið 2012
þegar Jafnlaunastaðall kemur út.
HR leggur mikið upp úr nýsköpun
og hvetur sína nemendur til að
vinna með eigin hugmyndir og
þannig byrjaði okkar vegferð.“
segir Gyða Björg Sigurðardóttir
um aðdraganda þess að hún fór að
sérhæfa sig í jafnlaunamálum.
„Í gegnum námið tengdist ég
fyrirtækjum sem voru að byrja
að skoða staðalinn í upphafi árs
2013. Síðan í kjölfarið vann ég
fjölda verkefna í samstarfi við
nemendur úr öllum deildum
skólans. Rannís veitti verkefninu
nokkra styrki og í lok 2017 stóð
ég á krossgötum þegar Jafnlauna-
staðall var festur í lög.“
Ráður var stofnað árið 2018 af
Gyðu og Önnu Betu Gísladóttur.
Frá stofnun hefur Ráður aðstoðað
yfir 50 fyrirtæki við að fara í gegn-
um jafnlaunavottun. „Fyrst til
að byrja með voru allir að reyna
að átta sig á því hvernig ætti að
útfæra og hanna jafnlaunakerfi.
Þá var okkar helsta hlutverk að
túlka kröfur staðalsins og reyna
að útfæra inn í verklag, hanna
greiningar og mælikvarða til að
starfrækja kerfin. Við lögðum
mikið upp úr því að læra af öðrum
og viða að okkur þekkingu fyrstu
árin,“ útskýrir Gyða Björg.
„Í dag höfum straumlínulagað
innleiðingu á Jafnlaunastaðli svo
þau verkefni gengur iðulega smurt
fyrir sig. Sú reynsla sem hefur
hlotist mun nýtast þeim sem eiga
eftir að fara í gengum innleiðingu,
sem eru til dæmis öll minni fyrir-
tækin sem hafa tímafrest til lok
árs til að klára vottun eða jafn-
launastaðfestingu.“
Ný nálgun á launamyndun og
ákvarðanir
Frá því að lög um jafnlaunavottun
tóku gildi segir Gyða Björg að
miklar breytingar hafi orðið á
jafnréttismálum innan fyrirtækja.
„Þetta er komið á dagskrá hjá
öllum fyrirtækjum í landinu.
Þetta er ekki eitthvað sem þau
geta sópað undir teppið og látið
fram hjá sér fara. Flestir vilja
vanda sig og standa vel að þessum
málaflokki og þar liggur okkar
metnaður einnig,“ segir hún og
bætir við að verkefnunum verði
þó ekki lokið þegar öll fyrirtæki
verða komin með jafnlauna-
vottun.
„Þó svo að f lest okkar verkefni
hingað til hafi snúist um að inn-
leiða ákveðið verklag þá er að
færast í aukana að við sinnum
reglubundinni þjónustu. Þetta
er vegferð sem er ekki lokið með
einum stimpli og við lítum á
vinnu við okkar viðskiptavini sem
langtímasamstarf. Við styðjum
við þau í upphafi og svo veitum
við þeim aðhald til að halda áfram
að þróast og bæta sig.
Við höfum einnig tekið að
okkur verkefni sem snúa að því
að setja upp skjalastýringu og
skipuleggja gögn og kerfi. Að láta
kerfi tala saman, straumlínulaga
og skilgreina ferla. Stefnumótun í
jafnréttismálum talar við heildar-
stefnu fyrirtækja og það er ekki
hægt að fara í þessa vegferð án
aðkomu æðstu stjórnenda,“ heldur
hún áfram.
Falasteen Abu Libdeh gekk til
liðs við fyrirtækið á síðasta ári.
Falasteen hefur umfangsmikla
þekkingu og reynslu á málefnum
vinnumarkaðar og stjórnunar.
„Með því að fá hana til liðs við
okkur erum við að auka við okkur
þekkingu á mannauðssviði og færa
okkur yfir í fjölbreyttari verkefni
sem snúa meðal annars að sjálf-
bærni og fræðslumálum,“ segir
Gyða Björg.
„Við erum að bæta við okkur
mannskap um þessar mundir og
ætlum að vera leiðandi í málefnum
jafnréttis og sjálfbærni í fyrir-
tækjarekstri. Þetta er umfangs-
mikill málaflokkur og snertir alla
fleti í rekstri. Fjárfesting fyrirtækja
í jafnrétti og sjálfbærni í dag mun
skila þeim margföldum ávinningi
þegar fram í sækir.“
Að lokum bætir Gyða við að
samtal um jafnrétti sé sífellt að
breytast og áherslur taki mið af
samfélaginu hverju sinni.
„Nýtt verklag tekur tíma að festa
sig í sessi og með Jafnlaunastaðli er
verið að leggja áherslu á rökstuðn-
ing við launamyndun sem metur
verðmæti starfa og vinnur mark-
visst gegn hvers konar mismunun.
Breytingar taka tíma og jafnlauna-
kerfi eru komin til að vera.“ ■
Jafnréttismál komin inn á borð allra stjórnenda
Gyða Björg
Sigurðardóttir
hefur sérfhæft
sig í jafnlauna-
staðlinum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
kynningarblað 45FIMMTUDAGUR 20. janúar 2022 FÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU