Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 91
Það er
eins með
umhverf-
ismálin og
siglingarn-
ar, maður
þarf að
vera stans-
laust á
vaktinni
til að
tryggja að
við getum
boðið
bestu
lausnirn-
ar.
Kristín Katrín
Flutn-
ingsnetið
okkar telur
yfir 80
viðkomu-
staði um
land allt og
starfsemi
okkar er
mjög fjöl-
breytt.
Þuríður
Fjölbreytt starfsemi Eim-
skips teygir sig um land allt.
Þuríður Tryggvadóttir for-
stöðumaður segir verkefnin
fjölmörg en að þjónustan sé
alltaf í fyrsta sæti.
Þuríður Tryggvadóttir er forstöðu-
maður Þjónustumiðstöðvar og
Vörudreifingar Eimskips. Hún
hefur starfað í rúm 16 ár hjá fyrir-
tækinu og er því flestum hnútum
kunnug í starfseminni.
„Stór hluti af mínu starfi felst
í því að styðja við stjórnendur á
innanlandssviði, finna leiðir til
umbóta, skoða ferla og koma auga
á tækifærin til að gera betur fyrir
viðskiptavini okkar,“ segir Þuríður
en hún segist hafa verið heppin í
sínum störfum hjá Eimskip. „Ég
hef fengið að taka virkan þátt í
ýmsum verkefnum, meðal annars
innleiðingu þjónustustefnu, kynn-
ingum og fræðslu fyrir starfsfólk,
samskiptum við viðskiptavini og
þróun á stafrænum lausnum, svo
fátt eitt sé nefnt. Allt hefur þetta
aukið þekkingu mína til muna og
gert mig að betri starfsmanni.“
Fjölbreytt starfsemi um land allt
Eimskip er með fjölbreytta starf-
semi um land allt og segir Þuríður
að það sé krefjandi en um leið
mjög spennandi vinnuumhverfi
að starfa í. „Flutningsnetið okkar
telur yfir 80 viðkomustaði um land
allt og starfsemi okkar er mjög
fjölbreytt. Í grunninn erum við
vissulega að flytja vörur frá A til B
en á bak við það er gríðarlega öflugt
áætlunarkerfi í akstri milli lands-
hluta, vörudreifing um land allt,
morgundreifing í verslanir á höfuð-
borgarsvæðinu, kæli- og frystivöru-
flutningar, vöruhýsing og svo auð-
vitað gámaakstur.“ Þuríður segir
aldrei skorta verkefni og alltaf eru
tækifæri til að gera betur. „Okkar
markmið er að veita alltaf framúr-
skarandi þjónustu til viðskiptavina
okkar. Það er okkar hjartans mál
og stór hluti af mínu starfi fellst í að
tryggja það,“ segir Þuríður.
Innanlandsakstur
gríðarlega mikilvægur
Þuríður segir viðskiptavini
innanlandsþjónustu Eimskips
vera fjölbreyttan hóp af frábærum
fyrirtækjum og einstaklingum úr
ýmsum geirum atvinnulífsins. „Það
eru um tvö þúsund virkir viðskipta-
vinir hjá okkur og koma þeir frá
öllum landshlutum. Þetta eru aðilar
í matvælaiðnaði, sjávarútvegi,
heildsölur, smásölur, framleiðslu-
fyrirtæki og aðilar í byggingariðn-
aði svo einhverjir séu nefndir. Við
gerum okkar allra besta til að halda
áætlun okkar gangandi og bílstjór-
arnir okkar keyra oft við ótrúlega
krefjandi aðstæður til að halda
vöruflutningakeðjunni gangandi.“
Morgundreifing Eimskips gerir
mörgum fyrirtækjum í matvæla-
framleiðslu um land allt kleift að
koma vörum sínum eins ferskum
og kostur er í stærri verslanir á
höfuðborgarsvæðinu sem er mjög
mikilvægt fyrir aðila í þeirri grein.“
Tækifæri í frekari
tækni og sjálfvirkni
„Vöxturinn hjá okkur á innan-
landssviðinu hefur verið gríðar-
legur í smærri sendingum til og frá
landsbyggðinni þar sem við erum
bæði að veita netverslunum og
einstaklingum þjónustu. Öflugt
áætlunarkerfi okkar nær til allra
landshluta og styður vel við
þann vöxt og þau markmið sem
við höfum sett okkur varðandi
smærri sendingar,“ segir Þuríður.
Hún segir mikil tækifæri felast í
tækni og sjálfvirkni, bæði fyrir
viðskiptavini og starfsfólk. „Við
erum að þróa frekari upplýsinga-
gjöf til viðskiptavina með raf-
rænum hætti, skoða afhendingar
og afhendingarleiðir með stafræna
vegferð í huga. Þá erum við einnig
að fylgjast náið með þróuninni
varðandi orkuskipti í innanlands-
flutningum og vörudreifingu. Við
erum nú þegar með tvo metanbíla
og einn rafmagnsbíl í okkar rekstri
og allar okkar fjárfestingar miðast
við umhverfisvænni lausnir. Ég er
svo heppin að vinna með skemmti-
legum og árangursdrifnum hópi
fólks þar sem allir stefna í sömu
átt og leita leiða til að gera betur.
Það eru alltaf einhver spennandi
verkefni í gangi sem halda manni
á tánum.“
Framúrskarandi þjónusta er okkar hjartans mál
Þuríður Tryggvadóttir er forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar og Vörudreifingar Eimskips.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kristín Katrín Guðmundsdóttir forstöðumaður Söludeildar innflutnings hjá Eimskip.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Mikilvægast að hlusta
á þarfir viðskiptavina
Öflugt siglingakerfi Eimskips,
framúrskarandi þjónusta og
lausnamiðað starfsfólk er lykillinn
að góðu sambandi við viðskipta-
vininn að sögn Kristínar Katrínar
Guðmundsdóttur. Hún er for-
stöðumaður Söludeildar inn-
flutnings hjá Eimskip. Hún tók við
starfinu í lok síðasta árs og hefur
þurft að koma sér hratt inn í hlut-
ina en segir starfið mjög spenn-
andi og fjölbreytt.
„Ég fer fyrir söludeild innflutn-
ings Eimskips en viðskiptavinir
okkar eru mörg af stærstu fyrir-
tækjum landsins í innflutningi.
Okkar hlutverk er fyrst og fremst að
veita framúrskarandi þjónustu og
lausnir í oft á tíðum mjög krefjandi
umhverfi,“ segir Kristín Katrín.
Að hennar sögn hafa undanfarin
misseri verið sérstaklega krefjandi
í flutningi þar sem ástandið í
heiminum hefur meðal annars
haft áhrif á gámastöðu og gert for-
flutning á gámum í skip flóknari en
áður hefur verið. „Áskoranir okkar
felast því að stórum hluta í að finna
bestu lausnirnar fyrir viðskiptavini
okkar til að koma vörum til lands-
ins og að tengja inn í okkar öfluga
siglingakerfi til og frá Íslandi. Við
erum með öflugt skrifstofunet
erlendis og eigum í góðu samstarfi
við erlend skipafélög og þrátt fyrir
miklar áskoranir hefur allt gengið
vel.“
Allt frá ávöxtum
upp í vinnuvélar
Kristín Katrín segir mikinn
metnað hjá Eimskip að vera ávallt
til staðar fyrir viðskiptavini
sína. „Mikilvægast er að hlusta
á þarfir þeirra og veita þeim alla
þá þjónustu sem hentar þeim.
Um er að ræða mörg af stærstu
fyrirtækjum landsins í hinum
ýmsu geirum, allt frá matvöru og
öðrum nauðsynjavörum, upp í
bíla og búnað fyrir stærri fram-
kvæmdir. Því leggjum við okkur
fram við að setja okkur inn í þá
geira sem við sinnum til að skilja
viðskiptavininn og vera alltaf klár
með þær lausnir sem henta best
hverju sinni.“ Kristín Katrín segir
Eimskip einnig vera með sér-
staka deild sem sinnir sérstaklega
miðlungs og smærri fyrirtækjum
í innflutningi og þá sinni útf lutn-
ingsdeild félagsins öllum þörfum
útflytjenda.
Tækifærin liggja alls staðar
„Við viljum alltaf bæta okkur og
þess vegna erum við sífellt að
skoða hvað við viljum gera betur
og hvernig. Við vinnum þétt
með viðskiptavinum okkar að
framþróun og hvetjum til sam-
tals varðandi nýjar lausnir,“ segir
Kristín Katrín og bætir við að sem
dæmi geta viðskiptavinir reiknað
út kolefnisfótspor sinna f lutninga
á vef Eimskips en sá málaflokkur
hefur vegið sífellt þyngra í augum
viðskiptavina. „Margir viðskipta-
vinir nýta sér þetta tól enda hafa
umhverfismál verið sett á oddinn
víða og því er mikilvægt fyrir
okkur að geta svarað því kalli
með upplýsingagjöf til viðskipta-
vina. Við getum heldur ekki rætt
nægilega mikið um nýjustu skipin
okkar sem eru bæði gríðarlega
mikill styrkur inni í áreiðanlega
siglingakerfið okkar og einnig
þau umhverfisvænustu per f lutta
einingu. Það er eins með umhverf-
ismálin og siglingarnar, maður
þarf að vera stanslaust á vaktinni
til að tryggja að við getum boðið
bestu lausnirnar sem völ er á,“
segir Kristín Katrín.
Viðskiptavinirnir gera
þetta líka skemmtilegt
Eftir aðeins nokkrar vikur í
núverandi starfi hlakkar Kristín
Katrín til komandi tíma hjá Eim-
skip. „Það sem er best við þetta
starf er það einstaka teymi sem hér
vinnur. Hér er mjög reynslumikið
starfsfólk sem hefur verið lengi hjá
fyrirtækinu og þekkir flutnings-
bransann inn og út. Mikill áhugi
og metnaður er fyrir því að sinna
viðskiptavinunum eins vel og
kostur er hverju sinni en viðskipta-
vinir okkar gera starfið líka mjög
skemmtilegt, maður fær að kynn-
ast þverskurði atvinnulífsins og
mörgum af þeim stóru og áhuga-
verðu fyrirtækjum sem koma við
sögu í okkar daglega lífi.“ n
kynningarblað 71FIMMTUDAGUR 20. janúar 2022 FÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU