Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 75
Það er mikilvægt
að konur séu
teknar inn í stjórnunar-
stöður fyrirtækja
almennt þar sem aukin
fjölbreytni leiðir til betri
stjórnunar og ákvörð-
unartöku.
Elísabet Ýr Sveinsdóttir
Hlutfall kvenna innan orku-
geirans hefur hækkað mikið
undanfarin ár. Hjá Orku-
sölunni er hlutfall kvenna og
karla í framkvæmdastjórn
fyrirtækisins jafnt auk þess
sem hlutfall kvenna hjá
Orkusölunni hefur aukist
töluvert seinustu ár.
Orkugeirinn hérlendis hefur
lengi verið afar karllægur en á
undanförnum árum hefur sú
breyting orðið að hlutfall kvenna
í geiranum hefur hækkað mikið.
Um leið hefur hlutur kvenna í
stjórnunarstöðum innan fyrir-
tækja í orkugeiranum aukist mjög
og til að mynda er hlutfall kvenna
og karla í framkvæmdastjórn
Orkusölunnar jafnt um leið og
hlutfall kvenkyns starfsmanna hjá
Orkusölunni hefur aukist töluvert
seinustu ár, að sögn þeirra Heiðu
Halldórsdóttur, markaðsstjóra
Orkusölunnar, Elísabetar Ýrar
Sveinsdóttur, fjármálastjóra Orku-
sölunnar, og Höllu Marinósdóttur,
öryggis-, umhverfis- og gæðastjóra
Orkusölunnar.
„Það er mikilvægt að konur séu
teknar inn í stjórnunarstöður
fyrirtækja almennt þar sem aukin
fjölbreytni leiðir til betri stjórn-
unar og ákvörðunartöku. Einnig er
mikilvægt að gefa ungum konum
tækifæri á að stíga inn í stjórnunar-
stöður þar sem hugmyndaauðgi
og hæfni þeirra eykur verðmæta-
sköpun innan fyrirtækja,“ segir
Elísabet.
Fjölbreytnin breytir miklu
Þær eru sammála um að mikilvægt
sé að starfsemi Orkusölunnar hafi
á að skipa fjölbreyttum hópi starfs-
manna, þar á meðal þegar kemur að
kynjaskiptingu. „Það skiptir okkur
miklu máli að hafa fjölbreyttan
hóp starfsmanna með ólíkan bak-
grunn og reynslu. Fjölbreytni eykur
þekkingu fyrirtækisins sem hjálpar
okkur að auka samkeppnishæfni
og ná markmiðum fyrirtækisins,“
bætir Heiða við.
Heiða segir að meirihluti
starfsfólks í höfuðstöðvum Orku-
sölunnar séu konur auk þess sem
konur séu í auknu mæli að sækja
um störf hjá fyrirtækinu. „Með
fjölbreytileika eykst víðsýni fyrir-
tækisins, umræðan verður sterkari
og þar sem ólík sjónarmið koma
saman náum við betri árangri.
Orkusalan er með fjölbreyttan hóp
af starfsfólki og fær það, óháð kyni
eða stöðu, að hafa áhrif og koma
skoðunum sínum á framfæri.“
Umhverfið skiptir máli
Hlutverk Orkusölunnar er að
framleiða, kaupa og selja rafmagn
til einstaklinga, fyrirtækja og
stofnana um land allt. „Orkusalan
leggur áherslu á að skapa nýja
möguleika í framleiðslu og sölu á
endurnýjanlegri orku. Fyrirtækið
leggur ríka áherslu á samfélags-
lega ábyrgð í öllu sínu starfi og
vill með því hafa jákvæð áhrif á
allt umhverfi sitt og samfélagið
í heild. Umhverfið skiptir okkur
miklu máli og er Orkusalan fyrsta
raforkufyrirtækið hér á landi
sem hefur náð kolefnishlutleysi.
Losun fyrirtækisins kemur fyrst
og fremst frá almennum rekstri
en losun sem hlýst af vinnslu
raforkunnar er í lágmarki þar
sem Orkusalan á og rekur aðeins
vatnsaflsvirkjanir, en losun þeirra
samanborið við jarðhitann er
mun minni,“ segir Halla.
Kallað eftir grænni vottun
Halla segir einnig að fyrirtæki
séu í auknum mæli að kalla eftir
vottun á grænu rafmagni þar sem
það felur í sér forskot á markaði.
„Grænt ljós Orkusölunnar er gripur
sem Orkusalan hefur afhent fyrir-
tækjum í nokkur ár og er staðfest-
ing á uppruna orkunnar sem keypt
er af okkur. Þar staðfestum við að
öll orkan sem við seljum frá okkur
er 100% endurnýjanleg.“
Miklar breytingar hafa orðið á
orkumarkaði hérlendis undan-
farin ár. „Samkeppnin á raforku-
markaði hefur aukist töluvert
seinustu ár og þá sérstaklega með
tilkomu nýrra raforkusölufyrir-
tækja. Regluverkið hefur einnig
verið að breytast mikið seinustu ár
og hefur fyrirtækið þurft að aðlaga
sig breyttum aðstæðum,“ segir
Heiða.
Elísabet segir Orkusöluna hafa
brugðist við þessu með því að ráða
til sín fólk með ólíka reynslu sem
styrki fyrirtækið til að bregðast við
þessum breytingum sem hefur átt
sér stað. „Orkusalan stefnir hátt á
þessu ári og hlakkar til að takast
á við þessar stóru breytingar af
miklum krafti.“
Krefjandi verkefni fram undan
Orkusalan er ört stækkandi
fyrirtæki og eru mörg spennandi
verkefni fram undan hjá Orku-
sölunni að þeirra sögn, þá helst
þau stóru skref sem taka þarf í átt
að orkuskiptum. „Verkefnið næstu
ár almennt á markaðnum, og
þar af leiðandi hjá Orkusölunni,
er snjallmælavæðing hjá dreifi-
veitum. Það verkefni verður mjög
spennandi og mun breyta raf-
orkumarkaðnum að miklu leyti.
Markaðurinn er að breytast og
það er í höndum okkar í þessum
geira að fræða neytandann. Raf-
magn er ekki bara rafmagn heldur
auðlind sem við þurfum öll að
bera ábyrgð á að nýta sem best,“
segir Elísabet. n
Nánari upplýsingar á orkusalan.is.
Fjölbreytni eykur þekkingu fyrirtækisins
Hlutur kvenna í stjórnunarstöðum innan orkugeirans hefur aukist á undanförnum árum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Frá vinstri eru
Halla Marinós-
dóttir, öryggis-,
umhverfis- og
gæðastjóri,
Elísabet Ýr
Sveinsdóttir
fjármálastjóri
og Heiða Hall-
dórsdóttir,
markaðsstjóri
Orkusölunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
kynningarblað 55FIMMTUDAGUR 20. janúar 2022 FÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU