Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 20
Buxna- dragtir eiga alltaf við og nú sem aldrei fyrr. Þær passa jafn vel við í vinnuna, bæjarröltið og partíið. S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB 40-70%afsláttur Enn meiri afsláttur Buxnadragtir eru heitasta heitt á nýárinu og ekki aðeins fyrir bisnesskonur heldur allar dömur sem vilja klæðast því flottasta í lífi sínu og starfi. thordisg@frettabladid.is Það voru buxnadragtir sem stálu senunni á tískupöllunum fyrir árið 2022. Dragtir hafa löngum verið einkennisklæðnaður kvenna í stjórnunar- og skrifstofustörfum en eiga nú upp á pallborðið hjá konum á öllum aldri og við hvaða tækifæri lífsins sem er. Tískuhús heimsins tefla nú fram buxnadrögtum í endalaust flottu úrvali, jafnt víðum sem þröngum, stuttum sem síðum, einlitum sem mynstuðum, köflóttum, rönd- óttum og doppóttum, og efnin eru alls konar, allt út í f lauel, leður og blúndur. Sumar dragtir eru með aðsniðnu vesti í stað dragtarjakka, sem þykir einkar kvenlegt og elegant. Eftir Covid-tískuna í fyrra, sem var afslöppuð og heimilisvæn með víðum fatnaði, leggja hönn- uðir enn áherslu á þægileg snið og frjálslegar útfærslur í dagsins amstri. Því mega buxnadragtir vera víðar jafnt sem þröngar og í ótakmarkaðri litadýrð: hefð- bundnar sem óhefðbundnar í sniði og samsetningu. Klassískar buxnadragtir eiga alltaf við, ekki síst í bisness- geiranum, en nú má poppa upp vinnudaginn með trendí drögtum. Það geta verið bisnessdragtir með röndum við strigaskó eða „boots“, útvíðar, stuttar buxur með víðum jökkum sem eru bæði töff og elegant á sama tíma og ganga jafnt í vinnunni og úti á lífinu. Því er ómögulegt að draga línu á milli fínnar vinnudragtar og sportlegrar því sniðin eru síð sem stutt, en flott við jafnt háa hæla og sportlega skó. Við dragtir er fallegt að klæðast toppum eða blússum, bolum eða vesti. Þá er jafn smart að klæðast einlitum drögtum sem og munstr- uðum með ljósmyndum, dýra- mynstrum, blómum, röndum eða doppum, hvort sem munstrin eru stór eða smá. Auðvelt er að fara beint úr vinnu út á lífið í f lottri buxnadragt. Þetta er fallegur og þægilegur klæðnaður sem er tilvalið að dressa upp með fallegu skarti, belti eða tösku. Tískukóngarnir leggja áherslu á breiðari og tilkomumeiri axlalínu og skreyta ermar og skálmar jafn- vel með pífum sem gefur róman- tískt útlit. Litir sem passa vetri eru meðal annars vínrautt, fjólublátt, brúnt, dökkblátt og smaragðs- grænn, og með hækkandi sól ljós- blár, drapplitað, grátt, gult og rautt, en munið að allt er í tísku, eftir smekk hvers og eins. n Töff buxnadragt er ómissandi Tískubloggarinn Caroline Daur í stuttri skyrtu við stuttan blazerjakka og útvíðar buxur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Áhrifavaldurinn Gabriella Ber- dugo í hvítum rúllukragabol og bláu galla- vesti við útvíðar svartar dragtar- buxur og stóran blaserjakka í París á dög- unum. Stílistinn Almudena Lapique í smaragðsgrænni flauelsdragt, með eiturgræna leðurhanska í stíl. Tískuljósmyndarinn Tamu McPherson í skærbleikum út- víðum buxum og stórum jakka í stíl í Mílanó í vikunni. Tískublaða- konan Anna Dello Russo í munstraðri, brúnni og blárri buxnadragt. Anna Dello Russo hér í æðislegri svartri buxnadragt og hvítri, stuttri blússu við. Caroline Daur í hvítri rúllukraga- peysu og svartri vestisdragt. Fyrirsætan Maria Rosaria Rizzo í app- elsínugulum bol við rauða buxnadragt. 4 kynningarblað A L LT 20. janúar 2022 FIMMTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.