Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 60
Við hjá dk hug-
búnaði leitumst
eftir að bæta okkur á
hverju ári. Eitt af þeim
verkefnum er jafnrétti
innan fyrirtækisins og
dk hugbúnaður hefur
haldið áfram á þeirri
vegferð sem hófst fyrir
um tveim árum, að auka
hlut kvenna innan
fyrirtækisins.
Hulda Guðmundsdóttir
Hjá dk hugbúnaði starfar öfl-
ugur hópur sérfræðinga, en
í hópnum er hlutfall kvenna
um 40% og fer ört vaxandi.
Þar er lögð mikil áhersla á
að jafna kynjahlutföllin og
hugbúnaður fyrirtækisins
er kominn með kerfi sem
aðstoðar fyrirtæki við fram-
kvæmd á jafnlaunavottun.
„Við höfum um langt árabil leitast
við að ráða konur til starfa, þar
sem við lítum svo á að fjölbreyti-
leiki sé einn af lykilþáttum þess að
ná árangri. Við erum líka ákaflega
stolt af því að segja frá því að í
stjórnendahópi okkar eru kynja-
hlutföll nú jöfn,“ segir Hulda Guð-
mundsdóttir sviðsstjóri sölu- og
markaðssviðs.
Jafnt kynjahlutfall sem markmið
„Við hjá dk hugbúnaði leitumst
eftir að bæta okkur á hverju ári.
Eitt af þeim verkefnum er jafn-
rétti innan fyrirtækisins og dk
hugbúnaður hefur haldið áfram á
þeirri vegferð sem hófst fyrir um
tveim árum, að auka hlut kvenna
innan fyrirtækisins,“ útskýrir
Hulda. „Með markvissum hætti
vinnum við þannig að metnaðar-
fullu markmiði okkar, sem er að ná
jöfnu kynjahlutfalli innan fyrir-
tækisins.“
Konum fjölgar í hópi stjórnenda
Konum í hópi stjórnenda fyrir-
tækisins hefur fjölgað töluvert
síðasta árið. Fjölgunin hefur orðið
bæði hjá stjórnendum og milli-
stjórnendum. Má þar nefna að
Hulda Guðmundsdóttir hefur
verið ráðin í stöðu sviðsstjóra sölu-
og markaðssviðs og að Kristín
Ágústa Kjartansdóttir hefur verið
ráðin sem Business Controller í
fjármáladeild dk.
Útbreiddasta viðskiptakerfið
„dk hugbúnaður er leiðandi í við-
skiptahugbúnaði hér á landi fyrir
allar stærðir og gerðir fyrirtækja,
þróaður á Íslandi fyrir íslenskar
aðstæður,“ segir Dagbjartur
Pálsson, en hann er framkvæmda-
stjóri hjá fyrirtækinu.
„dk er er alíslenskur hug-
búnaður sem var þróaður og
smíðaður frá grunni af okkur,“
segir Dagbjartur. „Það hefur verið
reglulegur og góður vöxtur í allri
starfseminni okkar nánast frá
fyrsta degi og í dag eru yfir 7.000
fyrirtæki með kerfi frá okkur.
Bæði mörg af stærri fyrirtækjum
landsins og líka meðalstór og lítil
fyrirtæki.
dk viðskiptahugbúnaðurinn er
langútbreiddasta viðskiptakerfið
á íslenskum markaði, með um
45% markaðshlutdeild, en í dag
vinna 63 starfsmenn hjá fyrirtæk-
inu,“ segir Dagbjartur. „Hýsingar-
þjónusta dk er líka leiðandi á sviði
skýjaþjónustu hér á landi. Ekkert
fyrirtæki sinnir hýsingarþjónustu
fyrir annan eins fjölda fyrirtækja
hérlendis og við, en það eru yfir
5.000 fyrirtæki.“
Jafnlaunavottun hjá dk
dk hugbúnaður vinnur nú að jafn-
launavottun samkvæmt lögum
nr. 150 frá 2020 um jafna stöðu og
jafnan rétt kynjanna og mun ljúka
þeirri vinnu fyrir árslok 2022. Í
tengslum við þá vinnu ákvað fyrir-
tækið að þróa kerfi sem aðstoðar
fyrirtæki við framkvæmd á jafn-
launavottun.
Jafnlaunagreining í dk
dk hugbúnaður hefur að undan-
förnu þróað kerfi til að gera fyrir-
tækjum sem nota dk launakerfi
kleift að greina launamun í sam-
ræmi við þær kröfur sem gerðar
eru í lögunum um jafnlauna-
vottun. Kerfið byggir á opinberum
leiðbeiningum um hvernig best sé
að framkvæma launagreiningu í
samræmi við staðalinn. Stefnt er
að því að þessi viðbót við launa- og
starfsmannakerfið verði í næstu
útgáfu, sem fer í dreifingu í febrúar.
Kerfið býður upp á eftirfarandi
aðgerðir:
n Setja viðmið fyrir launa-
greiningu, bæði varðandi
starfaflokkun og persónulega
þætti.
n Stilla vægi hvers þáttar og
ákveða hversu mörg þrep á að
nota í hverjum þætti.
n Skrá inn gögn fyrir hvern
starfsþátt og persónuþátt
fyrir hvern og einn starfs-
mann.
n Skoða niðurstöður á útreikn-
ingi stiga sem reiknuð eru út
frá hverjum þætti og þrepum,
í formi töflu sem hægt er að
senda til vottunaraðila og í
formi línurita og greiningar á
launamun eftir hverjum þætti
og spönn þeirra stiga sem
reiknuð hafa verið.
Í töflum sem birta niðurstöður
eru sótt gögn úr launakerfinu,
bæði um grunnlaun, hlunnindi,
viðbótarlaun og heildarlaun, sem
og um aðra liði, til dæmis starfs-
hlutfall, starfsaldur, lífaldur,
stöðu, kyn og fleiri atriði sem
vottunaraðilar og mögulega Jafn-
réttisstofa nota til að gefa formlega
út jafnlaunavottun eða jafnlauna-
staðfestingu. n
Við stefnum hátt, því að jafnrétti skiptir máli
Dagbjartur Pálsson, framkvæmdastjóri dk hugbúnaðar, og Hulda Guðmundsdóttir, sviðsstjóri sölu- og markaðs-
sviðs, eru stolt af þeim árangri sem hefur náðst við að stuðla að jafnrétti kynjanna hjá fyrirtækinu.
Vegna sam-
komutak-
markana
náðist einungis
brot af þeim
fjölbreytta
hóp kvenna
sem starfa
hjá dk þegar
ljósmyndari
mætti í höfuð-
stöðvarnar, en
dk er einnig
með skrifstofu á
Akureyri.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
40 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU