Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 84
64 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU
Valgerður Hrund Skúla-
dóttir er stofnandi og
framkvæmdastjóri upp-
lýsingatæknifyrirtækisins
Sensa. Það má segja að fyrir-
tækið standi á tímamótum
en á síðasta ári varð Crayon
Group AS nýr eigandi Sensa.
Þá fagnar Sensa einnig 20 ára
afmæli sínu 2. febrúar nk. og
í sama mánuði flytur fyrir-
tækið í nýtt húsnæði.
Valgerður segir að í upplýs-
ingatæknigeiranum sé stöðug
umbreyting, nýjungar og fram-
farir miklar sem geri geirann afar
spennandi. Valgerður er ein af
fáum konum á Íslandi sem hefur
verið stjórnandi í upplýsinga-
tæknifyrirtæki í um 25 ár. Að sögn
Valgerðar er stöðug þróun í gangi,
það finni þau á hverjum degi og
hafa fundið greinilega allt frá
stofnun Sensa. „Við höfum vaxið
þétt og stöðugt samhliða tækninni
og ég tel mig afar lánsama að fá að
vinna í þessum geira. Á þessum
tuttugu árum hefur Sensa eignast
ótrúlega góðan viðskiptavinahóp
og er lausnaframboðið og þjón-
ustan stöðugt að þróast til að mæta
þörfum viðskiptavinarins,“ segir
Valgerður.
Crayon Group, eigandi Sensa,
er norskt fyrirtæki með um 3.500
starfsmenn í 37 löndum. Þau eru
leiðandi á heimsvísu í upplýsinga-
tækni og stafrænum lausnum og
einmitt gaman að geta þess að
forstjóri Crayon Group er kona að
nafni Melissa Mulholland. Innan
Crayon samstæðunnar eru mark-
vissar aðgerðir í gangi til þess að
valdefla konur til aukins starfs-
frama í upplýsingatækni.
Þau tækifæri sem Sensa stendur
frammi fyrir við að vera hluti
af Crayon, er að koma íslensku
hugviti á framfæri á erlendum
mörkuðum og að geta gefið starfs-
mönnum kost á þátttöku í alþjóð-
legum verkefnum. Einnig munu
viðskiptavinir Sensa hérlendis
njóta góðs af aðgengi að sérfræð-
ingum Crayon um allan heim, til
að mynda í gervi- og gagnagreind
þar sem félagið hefur einstaka
sérþekkingu. Því má segja að fyrir-
tækið sé að breiða út vængi sína til
að vaxa enn frekar, hér á landi sem
erlendis.
Mannleg samskipti
„Tækninni fleygir hratt fram,
enginn dagur er eins og verkefnin
því krefjandi og skemmtileg. Upp-
lýsingatæknin er stöðugt að breyta
heiminum og þrátt fyrir að sú
þróun byggi á tækni er þessi geiri
einkar mannlegur og samskipta-
hæfni starfsmanna er lykilatriði.
Við leysum áskoranir viðskipta-
vina okkar og hjálpum þeim að
nýta lausnirnar, sem er mjög mikil-
vægur þáttur í starfsemi okkar.
Mitt ákall til kvenna í dag er
hvatning til þess að koma og vinna
í fersku umhverfi þar sem ný tæki-
færi eru stöðugt að skapast. Sama
hvaða bakgrunn þær hafa: opna
hugann og taka þátt. Okkur vantar
fólk sem er tilbúið til að leggja
sig fram, læra og öðlast reynslu.
Víðsýnt fólk sem skilur samhengi
hlutanna,“ segir Valgerður að
lokum.
Stöðug þróun og nýsköpun
Sigurborg Gunnarsdóttir, Júlía
Pálmadóttir Sighvats og Íris
Stefánsdóttir hafa allar starfað
lengi í upplýsingatækni. Þær
eru sammála um að konum hafi
fjölgað í geiranum en hafi þó átt
von á að þetta væri komið lengra
en raunin sé.
„Það hefur í gegnum tíðina þurft
ákveðið hugrekki hjá konum til að
velja tæknigeirann og sigla þannig
á móti straumnum. Þetta hefur
Sensa fagnar tuttugu ára afmæli
Valgerður Hrund Skúladóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri upplýsingatæknifyrirtækisins Sensa. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR