Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 96
Bakkabraut 2-4, Bryggjuvör 1, 2, 3, Þinghólsbraut 77 og 79. Breytt
deiliskipulag. Vinnslutillaga.
Skipulagsráð Kópavogs samþykkti þann 18. október 2021 að kynna vinnslutillögu að breyttu
deiliskipulagi Bakkabrautar 2-4, Bryggjuvarar 1, 2, 3, Þinghólsbrautar 77 og 79. Svæði 13 á
þróunarsvæðinu á Kársnesi, ÞR-1 samkv. Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 og samþykktu
Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040. Í vinnslutillögunni er gert ráð fyrir að núverandi atvinnu-
húsnæði á lóðunum víki og íbúðarhús rísi í þess stað. Skipulagssvæðið afmarkast af Þinghóls-
braut og lóðamörkum Þinghólsbrautar 73 og 75 í austri, fyrirhugaðri nýrri vegtengingu milli
Borgarholtsbrautar og Bakkabrautar í norðri, fyrirhugaðs nýs hafnarkants til vesturs og suðurs.
Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi íbúða á reitnum verði að hámarki 160, á 2-5 hæðum þar sem 5.
hæðin verður inndregin. Gert er ráð fyrir 0,75-1 bílastæði pr. íbúð og að u.þ.b. 90% þeirra verði í
innbyggðum og niðurgröfnum bílageymslum. Fyrirhugað er að heildarbyggingarmagn á svæðinu
verði 26.675 m² ofan- og neðanjarðar með nýtingarhlutfalli 1,9. A-rými ofanjarðar 18.100m².
B-rými ofanjarðar 2.595m². A-rými neðanjarðar 2.180m². B-rými neðanjarðar - Bílakjallari -
3.800m².
Vinnslutillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:1000 og 1:500 ásamt greinargerð og skýr-
ingarmyndum dags. 15. október 2021. Vinnslutillögunni fylgir einnig minnisblað um samgöngur
frá VSÓ ráðgjöf dags. 17. febrúar 2021.
Nánar er vísað til kynningargagna.
Vakin er athygli á því að kynningartími tillögunnar hefur verið framlengdur til 17. febrúar
2022.
Jafnframt er vakin athygli á endurskoðuðu fyrirkomulagi kynningarfundar.
Opnu húsi/kynningarfundi sem halda átti þann 13. janúar 2022 var frestað.
Haldnir verða tveir rafrænir kynningarfundir á Teams þann 3. febrúar 2022 kl. 16:00-17:00
og 17:15-18:15. Þar verður tillagan kynnt og fyrirspurnum svarað.
Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig með tölvupósti á netfangið skipulag@kopavogur.is.
Ofangreind vinnslutillaga er aðgengileg á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is.
Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um tillöguna er hægt að senda fyrirspurn á starfsfólk
skipulagsdeildar á netfangið skipulag@kopavogur.is.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdir
og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða
á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 16:00 fimmtudaginn 17. febrúar 2022.
Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi.
kopavogur.is
Auglýsing um
deiliskipulag í Kópavogi.
Styrkir
til rannsókna á ritmenningu
íslenskra miðalda - RÍM
Í tilefni af því að árið 2019 voru 75 ár liðin frá stofnun
lýðveldis á Íslandi, standa forsætisráðuneyti, fjármála-
og efnahagsráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðu-
neyti, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og
Snorrastofa í Reykholti fyrir átaksverkefni til fimm ára um
þverfaglegar rannsóknir á ritmenningu íslenskra miðalda.
Fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytis auglýsir
Snorrastofa nú eftir umsóknum um styrki vegna verkefnis-
ins fyrir árið 2022.
Hlutverk sjóðsins er að styrkja rannsóknir á sviði ritmenn-
ingar íslenskra miðalda, m.a. með því að efla rannsóknir
á heimildum um ritunarstaði miðaldahandrita á Íslandi og
þá sérstaklega á þeim lærdómsmiðstöðvum og klaustrum
þar sem ritmenning blómstraði. Verkefnið skiptist í tvo
verkþætti: Annars vegar að rannsaka menningarminjar og
umhverfi tengt þessum stöðum og hins vegar handrita-
og bókmenningu þeirra. Umsóknir verða metnar með tilliti
til vísindalegs og menningarsögulegs gildis.Vonir standa
til að nákvæmar lýsingar verði unnar á þeim ritmenningar-
stöðum, sem verða fyrir valinu og rök færð fyrir menningar-
legu vægi þeirra handrita og bókmenntaverka sem stöð-
unum tengjast. Áætlað árlegt fé til sjóðsins er 35 m.kr. á
tímabilinu 2020 til 2024.
Umsóknum um styrki úr sjóðnum skulu fylgja greinargóðar
upplýsingar um fyrirhuguð verkefni á þar til gerðum
umsóknareyðublöðum. Sé fyrirhugað að sækja um styrk
til verkefnis, sem taka mun fleiri en eitt ár að vinna, skal
umsækjandi gera grein fyrir heildarmarkmiðum verkefnis,
áfangaskiptingu og kostnaðaráætlun hvers áfanga.
Styrkveitingu fylgir ekki skuldbinding til að veita styrki til
síðari áfanga verkefnis.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunar-
reglur, er að finna á heimasíðu Snorrastofu í Reykholti,
www.snorrastofa.is – rannsóknir og fræði.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2022. Umsóknir
sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita
við úthlutun.
Úthlutanir úr sjóðnum eru á hendi mennta- og menningar-
málaráðuneytis að fenginni umsögn sérstakrar úthlutunar-
nefndar. Snorrastofa hefur eftirlit með að styrkt verkefni
séu unnin í samræmi við þær úthlutunarreglur, sem birtar
eru á heimasíðu Snorrastofu. Heimilt verður að óska eftir
frekari gögnum og upplýsingum frá umsækjendum eftir því
sem þurfa þykir.
18. janúar, 2022
Snorrastofa,
320 Reykholt
Sími: 433 8000 og 893 1492
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Þjónustuauglýsingar Sími 550 5055
Alla fimmtudaga og laugardaga arnarut@frettabladid.is
Geymsluskúrar /gestahús til sölu
• Þrjár stærðir 7,5/9,5/14,9 fm.
• Veggjagrind út 45x95 timbri.
• Pappi og bárustál á þaki.
• Rofar og tenglar IP44 rakaheldnir.
• Skúrar sem þola veður og vinda.
Nánari uppls; reisum@simnet.is eða
s. 899 0913 Fríða, www.reisum.is
íshúsið
S:566 6000 ∑ Smiðjuvegur 4a, 200 Kópavogur
viftur.is
Viftur ∑ Blikkrör ∑ Aukahlutir
ER BÍLSÆTIÐ RIFIÐ ?
Hamraborg 5 Kóp, Hamrabrekkumegin S. 544 5750 www.hs@bolstrun.is
Formbólstrun
Bílsætaviðgerðir-, mótorhjóla og
snjósleðasæti. Húsbílaklæðningar
og öll almenn bólstrun. Við erum
þekktir fyrir fljóta og góða
þjónustu. Skoðið video af vinnslu
á www.hsbolstrun.is
FYRIR EFTIR
Varahlutir í lyftara
- Toyota
- Hyster
- Yale
- Jungheinrich
- OO.
Ferðaþjónustuhús
Vönduð hús sem henta
vel í ferðaþjónustuna,
afhendast fullkláruð.
Nánari uppl. reisum@simnet.is
eða í síma 899 0913 Fríða
www.reisum.is
8 SMÁAUGLÝSINGAR 20. janúar 2022 FIMMTUDAGUR