Fréttablaðið - 20.01.2022, Side 96

Fréttablaðið - 20.01.2022, Side 96
Bakkabraut 2-4, Bryggjuvör 1, 2, 3, Þinghólsbraut 77 og 79. Breytt deiliskipulag. Vinnslutillaga. Skipulagsráð Kópavogs samþykkti þann 18. október 2021 að kynna vinnslutillögu að breyttu deiliskipulagi Bakkabrautar 2-4, Bryggjuvarar 1, 2, 3, Þinghólsbrautar 77 og 79. Svæði 13 á þróunarsvæðinu á Kársnesi, ÞR-1 samkv. Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 og samþykktu Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040. Í vinnslutillögunni er gert ráð fyrir að núverandi atvinnu- húsnæði á lóðunum víki og íbúðarhús rísi í þess stað. Skipulagssvæðið afmarkast af Þinghóls- braut og lóðamörkum Þinghólsbrautar 73 og 75 í austri, fyrirhugaðri nýrri vegtengingu milli Borgarholtsbrautar og Bakkabrautar í norðri, fyrirhugaðs nýs hafnarkants til vesturs og suðurs. Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi íbúða á reitnum verði að hámarki 160, á 2-5 hæðum þar sem 5. hæðin verður inndregin. Gert er ráð fyrir 0,75-1 bílastæði pr. íbúð og að u.þ.b. 90% þeirra verði í innbyggðum og niðurgröfnum bílageymslum. Fyrirhugað er að heildarbyggingarmagn á svæðinu verði 26.675 m² ofan- og neðanjarðar með nýtingarhlutfalli 1,9. A-rými ofanjarðar 18.100m². B-rými ofanjarðar 2.595m². A-rými neðanjarðar 2.180m². B-rými neðanjarðar - Bílakjallari - 3.800m². Vinnslutillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:1000 og 1:500 ásamt greinargerð og skýr- ingarmyndum dags. 15. október 2021. Vinnslutillögunni fylgir einnig minnisblað um samgöngur frá VSÓ ráðgjöf dags. 17. febrúar 2021. Nánar er vísað til kynningargagna. Vakin er athygli á því að kynningartími tillögunnar hefur verið framlengdur til 17. febrúar 2022. Jafnframt er vakin athygli á endurskoðuðu fyrirkomulagi kynningarfundar. Opnu húsi/kynningarfundi sem halda átti þann 13. janúar 2022 var frestað. Haldnir verða tveir rafrænir kynningarfundir á Teams þann 3. febrúar 2022 kl. 16:00-17:00 og 17:15-18:15. Þar verður tillagan kynnt og fyrirspurnum svarað. Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig með tölvupósti á netfangið skipulag@kopavogur.is. Ofangreind vinnslutillaga er aðgengileg á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um tillöguna er hægt að senda fyrirspurn á starfsfólk skipulagsdeildar á netfangið skipulag@kopavogur.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 16:00 fimmtudaginn 17. febrúar 2022. Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi. kopavogur.is Auglýsing um deiliskipulag í Kópavogi. Styrkir til rannsókna á ritmenningu íslenskra miðalda - RÍM Í tilefni af því að árið 2019 voru 75 ár liðin frá stofnun lýðveldis á Íslandi, standa forsætisráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðu- neyti, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Snorrastofa í Reykholti fyrir átaksverkefni til fimm ára um þverfaglegar rannsóknir á ritmenningu íslenskra miðalda. Fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytis auglýsir Snorrastofa nú eftir umsóknum um styrki vegna verkefnis- ins fyrir árið 2022. Hlutverk sjóðsins er að styrkja rannsóknir á sviði ritmenn- ingar íslenskra miðalda, m.a. með því að efla rannsóknir á heimildum um ritunarstaði miðaldahandrita á Íslandi og þá sérstaklega á þeim lærdómsmiðstöðvum og klaustrum þar sem ritmenning blómstraði. Verkefnið skiptist í tvo verkþætti: Annars vegar að rannsaka menningarminjar og umhverfi tengt þessum stöðum og hins vegar handrita- og bókmenningu þeirra. Umsóknir verða metnar með tilliti til vísindalegs og menningarsögulegs gildis.Vonir standa til að nákvæmar lýsingar verði unnar á þeim ritmenningar- stöðum, sem verða fyrir valinu og rök færð fyrir menningar- legu vægi þeirra handrita og bókmenntaverka sem stöð- unum tengjast. Áætlað árlegt fé til sjóðsins er 35 m.kr. á tímabilinu 2020 til 2024. Umsóknum um styrki úr sjóðnum skulu fylgja greinargóðar upplýsingar um fyrirhuguð verkefni á þar til gerðum umsóknareyðublöðum. Sé fyrirhugað að sækja um styrk til verkefnis, sem taka mun fleiri en eitt ár að vinna, skal umsækjandi gera grein fyrir heildarmarkmiðum verkefnis, áfangaskiptingu og kostnaðaráætlun hvers áfanga. Styrkveitingu fylgir ekki skuldbinding til að veita styrki til síðari áfanga verkefnis. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunar- reglur, er að finna á heimasíðu Snorrastofu í Reykholti, www.snorrastofa.is – rannsóknir og fræði. Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2022. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun. Úthlutanir úr sjóðnum eru á hendi mennta- og menningar- málaráðuneytis að fenginni umsögn sérstakrar úthlutunar- nefndar. Snorrastofa hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu unnin í samræmi við þær úthlutunarreglur, sem birtar eru á heimasíðu Snorrastofu. Heimilt verður að óska eftir frekari gögnum og upplýsingum frá umsækjendum eftir því sem þurfa þykir. 18. janúar, 2022 Snorrastofa, 320 Reykholt Sími: 433 8000 og 893 1492 www.snorrastofa.is snorrastofa@snorrastofa.is Þjónustuauglýsingar Sími 550 5055 Alla fimmtudaga og laugardaga arnarut@frettabladid.is Geymsluskúrar /gestahús til sölu • Þrjár stærðir 7,5/9,5/14,9 fm. • Veggjagrind út 45x95 timbri. • Pappi og bárustál á þaki. • Rofar og tenglar IP44 rakaheldnir. • Skúrar sem þola veður og vinda. Nánari uppls; reisum@simnet.is eða s. 899 0913 Fríða, www.reisum.is íshúsið S:566 6000 ∑ Smiðjuvegur 4a, 200 Kópavogur viftur.is Viftur ∑ Blikkrör ∑ Aukahlutir ER BÍLSÆTIÐ RIFIÐ ? Hamraborg 5 Kóp, Hamrabrekkumegin S. 544 5750 www.hs@bolstrun.is Formbólstrun Bílsætaviðgerðir-, mótorhjóla og snjósleðasæti. Húsbílaklæðningar og öll almenn bólstrun. Við erum þekktir fyrir fljóta og góða þjónustu. Skoðið video af vinnslu á www.hsbolstrun.is FYRIR EFTIR Varahlutir í lyftara - Toyota - Hyster - Yale - Jungheinrich - OO. Ferðaþjónustuhús Vönduð hús sem henta vel í ferðaþjónustuna, afhendast fullkláruð. Nánari uppl. reisum@simnet.is eða í síma 899 0913 Fríða www.reisum.is 8 SMÁAUGLÝSINGAR 20. janúar 2022 FIMMTUDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.