Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 64
Með aukinni
flugumferð þurf-
um við líka að fjölga í
framlínu okkar og því
erum við reglulega að
leita að fólki til að taka
þátt í að veita sam-
starfsfólki, farþegum,
flugfélögum og við-
skiptafélögum okkar
góða þjónustu á Kefla-
víkurflugvelli.
Ingibjörg Arnarsdóttir
Þórhildur Rún Guðjóns-
dóttir er forstöðumaður
viðskipta- og markaðsmála
hjá Isavia. Hún telur að
helstu áskoranirnar þegar
hún tók við starfinu hafi
verið að byrja í miðjum
heimsfaraldri og vera ábyrg
fyrir viðskiptatekjum, þegar
engir farþegar voru í húsi
og áskorun að halda uppi
þjónustustigi þegar erfiður
rekstrargrundvöllur er fyrir
rekstraraðilana.
,,Mínar deildir bera ábyrgð á
tekjum Isavia frá öðru en sjálfu
fluginu, aðallega frá verslunum,
veitingum, samgöngum, bíla-
stæðum og húsaleigu.Við höldum
utan um viðskiptaþróun og erum
því sífellt að meta þarfir farþega
og heppilegt þjónustuframboð til
að upplifun farþega sé góð af flug-
vellinum, “ segir Þórhildur.
„Það hefur komið mér á óvart
hvað umhverfið er hvikult og
breytist hratt og hvað þeir sem
starfa á flugvellinum þurfa að geta
brugðist skjótt við þegar t.d. far-
þegafjöldi breytist eða regluverk.
Það er þó þessi lifandi geiri sem
gerir það einmitt spennandi að
starfa á Keflavíkurflugvelli.
Mikil tækifæri fram undan
„Fram undan eru mikil og spenn-
andi tækifæri í aðstöðu fyrir
mögulega viðskiptafélaga. Við
erum að stækka flugstöðina og við
það skapast fjöldi rýma sem verða
boðin út fyrir spennandi rekstur.
Á þessu og næsta ári eru jafnframt
margir samningar að renna út
svo ný útboð á núverandi aðstöðu
opnast einnig. Öll ný viðskipta-
tækifæri fara í gegnum opið og
gagnsætt útboðsferli samkvæmt
alþjóðlegum reglum um veitingu
sérleyfa. Ég vona að fyrirtæki séu
að fylgjast með þeim tækifærum
sem bjóðast fyrir rekstur á Kefla-
víkurflugvelli. “
,,Við höfum því miklar vænt-
ingar um að Ísland verði aftur
mjög áhugaverður staður til að
heimsækja og fundum það strax
sl. sumar að áhugi f lugfélaga og
ferðamanna er til staðar. Við
erum að búa okkur undir að
taka á móti þeim og höfum því
ráðist í stækkun til að geta annað
eftirspurn í framtíðinni. Með
því munum við geta tekið á móti
f leiri farþegum og ferðamönnum,
sem hefur jákvæð áhrif á efnahag
Íslendinga,“ segir Þórhildur að
lokum.
Mjög fjölbreytt starfsemi
Auður Ýr Sveinsdóttir gegnir
stöðu forstöðumanns f lugverndar
á Keflavíkurflugvelli. Þegar
hún tók við starfinu voru helstu
áskoranirnar að taka við stórum
hópi starfsmanna án þess að fá
tækifæri til að hitta þá reglulega
vegna Covid-takmarkana sem
hafa verið í gildi.
Til að tryggja samfellu í rekstr-
inum var starfseminni skipt upp
í hópa og hefur samgangur milli
vaktahópa verið lítill í langan
tíma sem hefur vitanlega áhrif á
allt starfsfólk.
Aðspurð segir Auður að margt
hafi komið henni skemmtilega á
óvart:
„Ég þekkti lítið til starfsem-
innar áður en ég réði mig til starfa
og það hefur komið á daginn
að hér er einstakt starfsfólk og
spennandi verkefni sem þarf að
sinna í síbreytilegu f lugumhverfi,“
segir Auður. „Starfsemin á Kefla-
víkurflugvelli er mjög fjölbreytt,
áskoranirnar margbreytilegar
og því engir tveir dagar eins og
það á einstaklega vel við mig. Þá
kom það mér skemmtilega á óvart
að ég get tengt margt úr mínum
fyrri störfum hjá hinu opinbera, í
áliðnaði, sjávarútvegi og hátækni-
iðnaði, við starfsemina hér og
er virkilega gaman að sú reynsla
komi sér vel í nýja starfinu.“
Erum í skemmtilegum
uppbyggingarfasa
„Ég hóf störf hjá Isavia á Kefla-
víkurflugvelli í byrjun febrúar
2021. Þetta var á þeim tíma sem
fréttir voru um að þróun fyrsta
bóluefnisins væri loksins lokið og
flestir bjartsýnir um að nú færi að
rofa til og betri tímar væru fram
undan. Starfsmannafjöldi í f lug-
vernd var mjög lítill vegna skertrar
flugumferðar og því var farið strax
í það skemmtilega verkefni að
ráða stóran hóp af fyrrverandi og
nýjum starfsmönnum til að geta
þjónustað aukinn fjölda ferða-
manna og meiri f lugumferð. Flug-
vernd er stærsta deild Isavia með
um 300 starfsmenn í dag.
Eins og gefur að skilja þá er
mikil áskorun fólgin í því að elta
sífelldan breytileika í f lugumferð
undanfarin 2 ár. Nú erum við í
skemmtilegum uppbyggingarfasa,
jákvæð og spennt fyrir framtíðinni
og með fullt af frábæru starfsfólki.
Allt starfsfólk fyrirtækisins er á
sameiginlegri vegferð sem snýr
að því að koma auga á tækifæri til
að bæta samskipti og menningu
félagsins. Ég er fullviss um að sú
vinna muni skila sér í framúrskar-
andi vinnustað sem mun bjóða
viðskiptavinum og samstarfsfyrir-
tækjum Isavia upp á spennandi
ferðalag.“
Fjölbreytileiki og metnaður
Ingibjörg Arnarsdóttir er
framkvæmdastjóri fjármála og
mannauðs hjá Isavia og hóf störf
hjá fyrirtækinu fyrir rúmu ári
síðan, þegar nær allt f lug lá meira
og minna niðri vegna Covid. Að
hennar sögn var það áskorun í
sjálfu sér að halda flugvellinum
opnum og starfseminni gangandi.
Hún valdi þó að horfa fyrst og
fremst á þessa stöðu sem tækifæri
til að byggja fyrirtækið upp aftur –
að hugsa hlutina upp á nýtt.
„Við þurftum því miður að horfa
á eftir frábæru samstarfsfólki út af
Covid, en höfum hægt en örugg-
lega verið að endurráða í bland við
nýráðningar, þar sem við höfum
leitast við að laða nýja þekkingu
til fyrirtækisins. Covid hefur
virkað sem hraðall fyrir mörg
umbreytingarverkefni hjá Isavia
og svo bætast við framkvæmdir á
Keflavíkurflugvelli. Hvort tveggja
eykur fjölbreytileika og tækifærin
sem liggja í þeim störfum sem við
bjóðum upp á. Enda finnum við
fyrir ásókn í að taka þátt í þeim
verkefnunum sem eru fram undan
hjá félaginu og þar mun reyna á
okkar flotta mannauð, sem stýrir
þeirri vinnu af mikilli festu,“ segir
Ingibjörg.
Umfangsmikil starfsemi
„Það er gott að upplifa þann
fjölbreytileika og metnað sem
einkennir mannauð Isavia. Hjá
félaginu starfar fólk með ótrúlega
fjölbreytta þekkingu og bak-
grunn, sem endurspeglar fjöl-
breytt hlutverk félagsins – hvort
sem það er á sviði daglegs reksturs,
hugbúnaðargerðar eða mann-
virkjagerðar. Það er skemmtilegt
að upplifa hversu mikla ástríðu
starfsfólkið hefur fyrir flugrekstri
– þótt starfsemin sé umfangsmikil
og við komum úr ólíkum áttum þá
finnum við öll svo sterkt fyrir sam-
eiginlegu hlutverki, að koma fólki
á áfangastað, og það er hreinlega
smitandi.
Við höfum eins og önnur fyrir-
tæki sem starfa við ferðaþjónustu
þurft að haga seglum eftir vindi.
Engu að síður hefur okkur tekist
vel til við að halda rekstrinum
gangandi, þrátt fyrir litlar sem
engar flugsamgöngur á tímabili
og tekist að nota tímann vel til að
endurhugsa og endurskipuleggja
það sem betur mátti fara.
Við vinnum að umfangsmiklum
og mikilvægum framkvæmdum
á Keflavíkurflugvelli, þar sem við
erum að stækka bæði flugstöðina
og vinna að uppbyggingu á flug-
vallarsvæðinu. Svona stór fram-
kvæmd kallar á að við þurfum að
ráða töluverðan fjölda af háskóla-
menntuðu fólki, ekki síst ein-
staklinga með verk- og tæknifræði-
menntun. Störf við framkvæmdir
af þessari gerð og stærðargráðu eru
fátíð á Íslandi og þau eiga án efa
eftir að opna mörgum tækifæri inn
í framtíðina, bæði hér heima og
erlendis.
Með aukinni flugumferð
þurfum við líka að fjölga í framlínu
okkar og því erum við reglulega
að leita að fólki til að taka þátt í
að veita samstarfsfólki, farþegum,
flugfélögum og viðskiptafélögum
okkar góða þjónustu á Keflavíkur-
flugvelli. Við auglýstum til dæmis
nýlega eftir starfsfólki í sumarstörf
á flugvellinum sem er frábært
tækifæri fyrir ungt fólk að sækja
sér reynslu og á sama tíma að
vinna á lifandi og skemmtilegum
vinnustað.“
Að lokum segir Ingibjörg að þau
starfstækifæri sem Isavia býður
upp á spanni eins vítt svið og hægt
er að ímynda sér. ■
Reiðubúin fyrir eftirspurn framtíðarinnar
Auður Ýr Sveins-
dóttir, Ingibjörg
Arnarsdóttir og
Þórhildur Rún
Guðjónsdóttir
starfa allar sem
stjórnendur hjá
Isavia.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
44 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU