Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 59
OsteoStrong fagnar þriggja
ára starfsafmæli sínu um
þessar mundir. Um 500
manns stunda æfingar
vikulega hjá OsteoStrong.
Heimsóknin tekur aðeins
20 mínútur í heildina, einu
sinni í viku, og þannig bæta
meðlimir styrk vöðva, auka
jafnvægi, lækka blóðsykur
og minnka verki í liðum og
baki.
„Við vorum fimmta landið í heim-
inum til þess að bjóða upp á þessa
þjónustu en nú er OsteoStrong
komið alls staðar í Skandinavíu
og búið að staðfesta samninga í
þrettán löndum. Það er verið að
gera mjög ýtarlega rannsókn á
Karolinska Institutet í Svíþjóð á
virkni þessarar leiðar til þess að
virkja líkamann og sjálf höfum við
á þessum þremur árum fengið svo
ofboðslega góða innsýn inn í það
hvernig þetta æfingakerfi getur
bætt lífsgæði hjá fólki á öllum
aldri. Þá er maður heldur betur
kominn með góða ástæðu til að
vakna á morgnana,“ segir Svanlaug
Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri
OsteoStrong.
Stress á Íslandi
„Við kynntumst OsteoStrong á
námskeiði í Bretlandi þegar við
vorum nýflutt heim til Íslands frá
Spáni. Þá fannst okkur svo mikið
stress hérna heima og álagið á
heimilum mikið. Okkur fannst að
með því að bjóða upp á þjónustu
OsteoStrong sem tæki stuttan
tíma en byði upp á góðan árangur
værum við að gera þjóðþrifaverk
sem allir gætu grætt á,“ bætir hún
við.
Styður til vaxtar
„Það eru margir sem hafa valið að
gera OsteoStrong hluta af sínum
lífsstíl en sumir koma reglulega
í nokkra mánuði. Mér finnst
bara skipta mestu máli að fólki
geri þetta nákvæmlega eins og
styður það sjálft best. Sumir eru
að undirbúa sig fyrir einhver afrek
og þá getur OsteoStrong stutt við
þá á leiðinni og minnkað líkur á
meiðslum, sumir blanda saman
OsteoStrong og annarri hreyfingu
og svo er annar hópur sem getur
ekki stundað aðra hreyfingu en
þessa en nær samt að vaxa og
styrkja sig. Það gleður mig að sjá
alla þessa hópa hlið við hlið,“ upp-
lýsir Svanlaug.
Munur á milli landa
„OsteoStrong er franchise frá
Bandaríkjunum en á sama tíma
Fagnar opnun nýrrar stöðvar
OsteoStrong í Ögurhvarfi
Svanlaug Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri OsteoStrong, er þakklát fyrir allar árangurssögur meðlima sinna.
MYNDIR/ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR
OsteoStrong
er að bæta við
sig stöðvum til
að geta þjónað
fleirum. Þau
eru í Hátúni 12
og opna brátt í
Ögurhvarfi.
Nýja stöðin í Ögurhvarfi verður í glæsilegu húsnæði. MYND/AÐSEND
grasrótarfyrirtæki í vexti og í
raun fjölskyldufyrirtæki á Íslandi.
Við erum með einkaleyfi fyrir
rekstrinum á Íslandi og fengum því
frá fyrirtækinu þennan virðulega
titil „Masters of Iceland“. Það er
mikill munur á því hvað hentar á
milli landa og munur á því hvað
má segja í markaðsefni. Þess
vegna höfum unnið okkar efni að
mestu leyti frá grunni með aðstoð
David Young hönnuði. Það er
bæði skemmtileg pælingavinna og
gaman að fá að deila alvöru sögum
frá alvöru fólki.“
Græn þjónusta
„Rekstur OsteoStrong hefur þann
frábæra kost að hann er næstum
því rusl-frír. Við fáum stóru tækin
send við opnun hverrar stöðvar
frá Bandaríkjunum en eftir það er
næstum eina ruslið sem til fellur við
starfsemina bara kaffikorgur frá
kaffistofu starfsmanna. Við leitum
leiða og þvoum til dæmis klúta í
staðinn fyrir að nota bréfþurrkur
til þess að sótthreinsa. Mér þykir
verðmætt að fá að vera í þannig
rekstri. Vita það að við seljum upp-
byggingu og lífsgæði og pökkum
því inn í góða þjónustu með hlýju
og nærgætni,“ segir Svanlaug.
„Maður getur verið með svo
mikið af góðum hugmyndum
um það hvernig maður vill hafa
fyrirtækið sitt en það er til lítils ef
maður fær ekki gott starfsfólk til
þess að starfa með sér. Við erum
alveg ótrúlega heppin með okkar
starfsfólk. Það hefur staðið eins
og klettur við bakið á okkur í
gegnum þessa ótrúlega skrýtnu
tíma og enn hefur enginn smitast
í OsteoStrong. Ég hvet þá sem telja
að þeim geti liðið vel í starfi hjá
okkur að hafa samband sem fyrst -
því við erum tilbúin.“
Hugrakkir meðlimir
„Ég hugsa svo oft hlýlega til fólksins
sem var mætt á húninn hjá okkur
sama dag og við opnuðum og velti
því fyrir mér hvað þau voru rosa-
lega hugrökk. Þá hafði bara einn
Íslendingur fyrir utan okkur heyrt
um OsteoStrong en í dag mæta
flestir af því að vinir þeirra eða ætt-
ingjar hafa fengið góðan árangur af
því að stunda OsteoStrong. Til að
byrja með getur verið erfitt að trúa
því að það sé hægt að fá árangur
af því að gera eitthvað sem tekur
ekki meiri tíma og þá getur hausinn
aðeins farið að flækjast fyrir manni.
En við fáum árangurs- og gleði-
sögur á hverjum degi: „Veistu hvað
mér tókst á gera?“ Þessar sögur geta
gert gæfumuninn þegar að maður
er þreyttur eftir daginn því þá á
maður alltaf óvænt smá auka orku
til.
Ný stöð í Ögurhvarfi
Núna í janúar eru þrjú ár síðan
að við hófum rekstur. Vikulega
mæta um 500 meðlimir til þess
að styrkja sig og auka orku og
við erum alltaf að bæta við. Til
viðbótar við stöðina í Hátúni 12
opnum við nýja stöð í byrjun
febrúar í Ögurhvarfi 2. Þannig
geta enn fleiri nýtt sér þjónustu
OsteoStrong og leiðin er styttri
fyrir þá sem koma til dæmis frá
Selfossi og Borgarnesi. Við erum
mjög spennt yfir möguleikanum á
því að fá að þjóna fleiri svæðum á
Íslandi og erum alltaf spennt yfir
að tala við mögulega samstarfsað-
ila,“ segir Svanlaug og bætir við:
„Við stefnum á að opna eina stöð á
ári í 10 ár þannig að það er eins og
gott að halda sér við efnið.“ n
kynningarblað 39FIMMTUDAGUR 20. janúar 2022 FÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU