Heilbrigt líf - 01.06.1947, Síða 17
„Eðlilegrar loftræstingar" gætir sérstaklega mikið í
blástri; þegar lygnt er og jafnheitt utanhúss og innan,
verður um enga slíka loftbreytingu að ræða. Sé heitara
úti en inni, eins og kemur fyrir t. d. á vorin, fer loftrennslið
í öfuga átt, og getur það oft fundizt á reykjarstybbu úr
reykháfunum, er hún berst inn í húsið.
Það mun allsstaðar þykja sjálfsögð krafa, að í her-
bergjum, þar sem menn sofa, vinna eða á annan hátt
dvelja í, sé á útvegg gluggi, er má opna. Er þessa krafist
vegna loftræstingar. En til þess að hún geti orðið fljót-
virk og fullkomin, þarf glugginn að vera nægilega stór
(í Kaupmannahöfn er t. d. krafizt, að hann sé aldrei minni
en 1X0,5 m.), sitja hæfilega hátt á vegg, svo að loft-
hreinsunin nái til heita loftsins, sem safnast hefur undir
loftið í herberginu, og helzt þannig fyrir komið að gera
megi gegnumsúg, þegar það er æskilegt. Glugginn á að
vera þannig útbúinn, að hann geti staðið opinn, ýmist lítið
eða mikið, ekki sízt ef annarri loftræstingu í herberginu
er ekki til að dreifa.
Gluggar eru þó engan veginn ætíð einhlítir til loft-
ræstingar, einkum ef þeir eru ekki opnaðir tímunum
og jafnvel dögunum saman, eins og oft vill verða á vetrum.
Þar, sem gluggar og hurðir eru ekki opnaðar í nýjum,
vel byggðum húsum með miðstöðvarhitun, er svo að segja
engin hreyfing eða breyting á loftinu. Undir slíkum
kringumstæðum er nauðsynlegt að hugsað sé á annan hátt
fyrir stöðugu aðstreymi af hreinu lofti og þó einkum, að
séð sé fyrir, að hið óhreina loft sogist burtu. Hafa Svíar
lagt mikla áherzlu á þetta atriði og krefjast (í byggingar-
samþykkt 1945), að loftrenna, sem sogar burt hið óhreina
loft, a. m. k. 150 cm.2 að innanmáli, sé úr hverju íbúðar-
herbergi. Undanskilin þessu ákvæði eru þó stofur, er hafa
opnanlega glugga í tvær eða fleiri áttir, enda séu þær ekki
notaðar sem svefnherbergi. Þar, sem sofið er, krefjast
Heilbrigt líf
15