Heilbrigt líf - 01.06.1947, Blaðsíða 69
frá Noregi og Danmörku, þó að misjafnlega hafi verið
þakkað, að fjöldi manna átti þar öruggt griðland. En
þeir komu víðar að, m. a. frá Þýzkalandi og ekki sízt úr
Eystrasaltslöndum, þegar Rússar hertóku þau smáríki og
stjórnuðu þeim eftir sínu höfði. Og Svíar hafa ekki gert
endasleppt við þetta fólk, því að þeir halda enn hendi
sinni yfir fjölda flóttamanna, t. d. frá Eistlandi, þó að
stjórnin í Kreml heimti ýmsa þeirra í sínar hendur.
Það gegnir allt öðru máli með flóttafólkið í Danmörku.
Þegar allt var að fara yfrum hjá nazistum, fluttu þeir
til Danmerkur fjöida manns, sem flosnaði upp frá heim-
ilum sínum í Þýzkalandi, og sitja Danir enn uppi með
mest af þeim manngrúa. Fólk þetta er geymt í fanga-
búðum.
Flóttafólkið í Svíþjóð er af allt öðru tagi. Þangað forð-
uðu sér aðallega menntamenn, sem ekki vildu una harð-
stjórninni, eða þeir, sem af stjórnmálalegum ástæðum
þurftu að forða sér að heiman. Landflótta menntamenn
frá ýmsum löndum, er nú dveljast í Svíþjóð, nema nú
nokkrum þúsundum, og eru ekki líkur til, að obbinn af
þeim muni eiga afturkvæmt til ættlands síns á næstunni.
Svíum kemur ekki til hugar að vísa þessu fólki úr landi.
En þá er eftir að útvega þeim lífvænleg kjör og atvinnu,
því að flestir hafa farið frá öllu sínu í heimalandinu, en
komið til Svíþjóðar slyppir og snauðir. Þessir flóttamenn
eru ekki atvinnuleysingjar í venjulegri merkingu. Ýmsir
þeirra hafa verið embættismenn eða stundað vísindaleg
störf í föðurlandi sínu og eru því liðtækir á öðru sviði
en þeir, sem að jafnaði teljast til atvinnuleysingja. Margir
eru fjölskyldumenn og þurfa að sjá konu og börnum
farborða.
Hilding Nordström hefur nýlega ritað um þetta
vandamál (H. T. 28. sept. ’46). Hann getur þess, að ekki
sé erfitt að útvega iðnaðarmönnum atvinnu. En þeir eru
tiltölulega fáir í þessum hóp og erfiðismenn engir. En málið
er vandasamara, hvað menntamennina snertir. Flestir
þeii'ra hafa aldrei unnið nema á þröngu sérfræðisviði og
eru ófærir til annarra starfa. Sumir eru komnir að gamals
aldri og farnir að bila á heilsu. Kemur þar m. a. til greina
Hcilbrigt líf
67