Heilbrigt líf - 01.06.1947, Blaðsíða 32
kímnigáfu hafa, geta oft skopast að sjálfum sér, en ungum
mönnum hættir til að taka sig alvarlega um of. Hafa menn
t. d. veitt eftirtekt Ijósmyndum af „nýkosnu Stúdenta-
ráði“, sem við og við birtast í blöðunum ? Það hvílir alvara
og þungi yfir samkomunni. Engum stekkur þar bros.
Það lítur út fyrir, að útvarpsráðið misskilji ungt fólk,
því að þátturinn „lög og létt hjal“ útheimtir mikla fyrir-
höfn af víðmenntuðum, glaðlyndum og helzt líka músikölsk-
um manni, sem ætti jafnframt að vera vel kunnugur meðal
æskumanna. Þessar kvöldstundir til skemmtunar heimta
talsverðan undirbúning, ef þær eiga að vera einhvers virði.
Það er minnstur vandinn í málinu að setja í gang jass-
plötu, og óþarft að auglýsa eftir fólki í því skyni.
Ritstj. hefur tekið svo eftir, að í brezka útvarpinu sé það
fullorðinn og fær maður, sem stjórnar þætti, svipuðum
þeim, er hér um ræðir, t. d. keppni milli ungs fólks úr
ýmsum skólum, sem hann leggur fyrir spaugilegar spurn-
ingar o. þvíl. Það er ekki ætlunin að gera lítið úr glaðværð
og áhuga ungra manna. En það má ekki heldur ætlazt
til of mikils af þeim.
Dansleikurinn Iðulega birtast tilkynningar í höfuð-
hefst kl. 10. staðarblöðunum um opinberar danssam-
komur, sem ekki hefjast fyrr en um
háttatíma. Það er víða, sem þessar dansskemmtanir fara
fram, a. m. k. um helgar. Ekki einasta í höfuðstaðnum,
heldur líka á Suðurnesjum og fyrir austan Fjall. Væntan-
lega er aðsóknin ekki lakari á þeim slóðum, því að, eins
og héraðslæknirinn í Blönduóshéraði getur í nýlega út-
gefnum Heilbrigðisskýrslum, þykir mest varið í að fara
að skemmta sér í öðrum hreppum. Brekánsböllin eru einn
helzti liðurinn í skemmtanalífi almennings. Ekki þykir
af veita að auglýsa: „Ölvuðum mönnum bannaður að-
gangur“. Væntanlega gengur þó misjafnlega að bægja
30
Heilbrigt líf