Heilbrigt líf - 01.06.1947, Page 38
VILMUNDUR JÓNSSON,
landlæknir:
VIÐSJÁRVERÐ SAGNARITUN
Ekki er tiltökumál, að auðtrúa eða óprúttnir skriffinnar
hendi á lofti ýkjufullar þjóðsagnir og birti sem staðreyndir
í blöðum og bæklingum. Á þó slík ritiðja drjúgan þátt í
að heimska landslýðinn. En út yfir tekur, er stétta- og
fagtímarit taka upp þess háttar skrif varðandi sérgrein
sína og innsigla gildi þeirra með því að bera þau á borð
fyrir almenning sem sannfræði. Þetta hefur Ljósmæðra-
blaðið illu heilli hent, er það birtir athugasemdalaust í 3.
tbl. þ. á. frásagnarþátt eftir Ragnar Ásgeirsson
búnaðarráðunaut undir fyrirsögninni „Tveir snillingar".
Vissulega efa ég ekki, að R. Á. beri gott skynbragð á
garðyrkju og e. t. v. ýmsar aðrar búfræðigreinir. Mundi
ég ekki kjósa mig til að deila við hann um þau efni. En
hitt virðist honum bagalega dulið, að sú kunnátta hans
tryggir honum engan rétt til að tala eins og sá, sem vald
hefur, um alls óskyldar sérfræðigreinir, svo sem læknis-
fræði og læknasöguleg efni, enda verður honum hált á
því svelli.
Mun ég nú leitast við að inna þá þegnskyldu af hendi
að sýna fram á, hversu mjög honum fatast um þá sérfræði
í dómum sínum um hina „tvo snillinga", er hann segir
frá í fyrrgreindum frásagnarþætti.
36
Heilbrigt líf