Heilbrigt líf - 01.06.1947, Page 62
SlN ÖGNIN AF HVERJU
Útvarpsfrétt 7/10 1946: Flugvél lirapaði í dag erlendis og lenti á skóla.
Atta drengir biðu bana. — Nýlega niæltu flugmenn fastlega með því í
tímaritinu „Flug“ að láta Reykjavíkurflugvöllinn standa óliaggaðan. En ef
flugvél skyldi hrapa? Þær eru stundum Iágt yfir búsþökunum.
Handa flugmönnum Bandaríkjanna voru á stríðsárunum saumaðir 200 000
fatnaðir, er mátti hita með rafmagni ■— jakka, brækur, vettlinga og stígvél.
Það kom sér vel, þegar flogið var í liáloftum í miklum gaddi.
Stríðsárin böfðu brezkir flugmenn jafnaðarlega með sér bréfdúfur. Það
vildi til, að þeir þurftu að nauðlenda, en loftskeytatæki biluðu. Þá var
dúfa send út með boð um, hvað í efni var.
----o----
Dánartala í Bandaríkjunum vegna bráðrar botnlangabólgu hefur lækkað
um belming á fjórum árum. Orsakir: Það hefur verið brýnt fyrir fólki að
laxera ekki, en leita sem fyrst inn í sjúkrahús til uppskurðar.
----o----
í Kaupmannahöfn sér bæjarstjórnin um ókeypis tannlækningu á 3-6
ára gömlum börnum. Eftir þann tíma taka skólatannlækningar við.
----o----
Hrossalækning: Úr berbúðum náttúrulækninganna (8 dálka „Vísis“-
grein í des.) er mænusóttarsjúklingum ráðlagt að leggjast á 4 fætur
tvisvar á dag, og sé þá 2 lítrum af vatni rennt inn í endaþarminn!
Radium er notað til þess að örva vöxt penicillin-myglunnar.
----o----
Jólahugleiðingar á Alþingi: Rétt fyrir liátíðir fóru fram umræður um
það í þingsölunum, að því er blöðin herma, hvort þingmenn hefðu verið
við skál á Alþingi. O tempora, O mores!
----o----
I latínuskólanum á Hólavöllum í Reykjavík (byrjaði 1786) var fyrst
tekið að nota landabréf við kennsluna. Það hafði ekki tíðkazt á Hólum
eða í Skálholti.
Stiftsyfirvöld í einu biskupsdæmi í Svíþjóð bafa nýlega lagt til við
60
Heilbrigt líf