Heilbrigt líf - 01.06.1947, Side 109
af þessum milljónum gerla vera mjólkursýru-bakteríur.
En skyldi ekki eitthvað slæðast með af sýklum? Þetta er
ógóð vara, en mjög eftirsótt af börnum og unglingum.
Langlundargeði heilbrigðisnefndar er viðbrugðið, en þó
mun hún hafa neyðst til að taka fyrir sölu á rjómaís í
eitt eða fleiri skipti.
Húsakynni og þrifnaður.
Allmjög finnst ýmsum héraðslæknum þrifnaði ábóta
vant, einkum utan stafs. Vafalítið standa húsbændur að
baki húsfreyjum að því leyti. Salernaleysið er gömul og
ný saga hér á landi. Einkum tíðkast það í sveitum, að
vanhús vanti og er þá farið í fjósið til örna sinna, þar
sem nýmjólkin er framleidd. T. d. eru á 200 býlum í
Dalasýslu aðeins 50-60 salerni, samkvæmt skýrslum
oddvitanna. Vitanlega hlýtur þetta að lagast smám saman.
Nokkrir héraðslæknar geta og ánægjulegra framfara í
þrifnaðarmálum. Einkum má geta þess, að skolpveita er
gerð í tveim kauptúnum, Flateyri og Bolungavík, og rekur
vonandi að því, að menn láti ekki við það sitja að leggja.
vatnsveitu eina, eins og tíðkazt hefur víða. — Á lúsina
hefur verið minnzt á öðrum stað. Hún á hér öruggt grið-
land, þó að vandalítið ætti að vera að ráða niðurlögum
hennar með nútíma lyfjum, ef viljinn er til að leggja í
það fé og fyrirhöfn. — Mikil vandræði stafa af húsnæðis-
leysi. Kjallaraíbúðir þykja og ófullkomnar. En hvers vegna
eru Islendingar yfirleitt að grafa sig lifandi ofan í jörðina
og búa í kjöllurum?
Úr Norðfjarðarhéraði: „Hreinlæti almennings tekur
hægum framförum. Mér gengur bezt að trúa og vona, að
alþýðuskólarnir muni vinna eitthvert þarft verk þar. En
er láandi, þó að spurt sé: Er enn séð svo fyrir uppeldi og
menningu kennaranna, að slíkt megi ske?“
Heilbrigt líf
107