Úrval - 01.08.1951, Síða 7
DRAUMAVERKSMIÐJAN HOLLYWOOD
5
ráðið um hvort saga er talin
kvikmyndahæf, hvernig lausn
söguefnisins er. Ef synd eða
glæp er látið órefsað, er sagan
óhæf. Þegar úrskurðað hefur
verið, að söguefnið sé hæft,
er eftir að rannsaka hvort sam-
töl og einstök sýningaratriði
samræmist siðareglunum.
Starfsmenn skrifstofunnar gefa
framleiðendunum oft bending-
ar um breytingar, sem gætu
orðið til þess að myndin fengi
vottorð. En vottorðið er þó aldr-
ei gefið fyrr en myndin er full-
gerð og hefur verið skoðuð.
En þrátt fyrir allar breyting-
ar og þó að vottorðið sé fengið,
er í hæsta máta vafasamt, að
meirihluti kvikmyndanna sé sú
„rétta skemmtun", sem skil-
greind er 1 formála að siðar-
reglunum — skemmtun sem sé
„göfgandi fyrir alla þjóðina"
— eða þær nái því takmarki
„að endurnæra og hressa fólkið,
sem farg veruleikans hvílir á
eins og mara.“ Þrátt fyrir hina
göfugu hljóðan þessara for-
málsorða er ástæða til að spyr ja,
hvort tekizt hafi með siðaregl-
unum að hamla á móti spillandi
áhrifum kynóra, glæpa og of-
beldis í kvikmyndunum. Alíir
vita, í Hollywood jafnt sem
annarsstaðar, að kynþokki er
nauðsynlegur eiginleiki öllum
kvikmyndaleikurum og ástamál
eitt megin efni allra kvikmynda,
og að glæpir og ofbeldi eru uppi-
staða í ótölulegum fjölda mynda.
Mannfræðingurinn leyfir sér
að efast um, að með siðareglun-
um sé verið að hugsa fyrir sið-
gæðinu. Sannleikurinn er venju-
lega talinn nauðsynlegur þáttur
siðgæðis, en heiðarleiki í kvik-
myndum telst áreiðanlega til
undantekninga. Hvorki handhaf-
ar siðareglnanna né kvikmynda-
framleiðendur láta sig neinu
skipta hvort persónumar eru
sýndar sem menn á taflborði,
fluttar til eftir þörfum sögu-
efnisins eða sjálfstæðir einstakl-
ingar, gæddir mannlegum virðu-
leik; eða hvort lausn vandamáls
er ósönn eða heiðarleg.
Skýringuna á því hve árang-
urinn af siðareglunum er slæm-
ur, er að nokkru leyti að finna
í framkvæmd þeirra. Þeim er
einkum ætlað að koma í veg
fyrir að nokkur láti leiðast til
kynferðislegra eða glæpsam-
legra athafna fyrir áhrif kvik-
mynda, og að ekki séu særðar
tilfinningar neins flokks manna
með túlkun í kvikmynd. Tak-
marki þessu reynir Sambandið