Úrval - 01.08.1951, Qupperneq 42
Lyf, sem örva vöxt alidýra.
Grein úr „Science News Letter“,
eftir J. D. Ratcliff.
T^YRIR minna en tíu árum var
penisillín dýrt og fágætt
furðuefni, og oft ófáanlegt þótt
líf lægi við. Nú er það orðið svo
ódýrt og auðfengið, að hyggnir
bændur eru farnir að gefa það
alidýrum sínum, svínum, kalk-
únum og kjúklingum — og á-
rangurinn er ótrúlegur. Peni-
sillín, aureomycin, terramycin,
bacitracin og fleiri sýklaskæð
lyf örva með einhverju móti
vöxt þessara dýra. Þau komast
fyrr á markaðinn og þurfa
minna fóður en ella.
Þessi merkilegu vaxtaráhrif
hinna sýklaskæðu lyfja munu
áreiðanlega verða talin meðal
merkustu uppgötvana í fóðrun
dýra. Með því að blanda í fóð-
urskammt, sem kostar 100 krón-
ur, lyfjum fyrir kr. 1.60, er
hægt að örva vöxt svína um
30%, kalkúna um 20% og kjúkl-
inga um 10%. Við þetta bætist
svo, að lyfin draga mjög úr
dýrasjúkdómum, sem valda
bændum miklu tjóni árlega.
Uppgötvun þessi var að miklu
leyti gerð af tilviljun. Bændur
höfðu lengi vitað, að svín, kalk-
únar og kjúklingar þrífast ekki
á kornmat eingöngu. Þau verða
að fá til viðbótar eggjahvítuefni
úr dýraríkinu — undanrennu,
fiskimjöl eða kjötúrgang. Fram
til ársins 1948 vissu menn ekki
hvað það var í dýraeggjahvítu-
efnunum, sem hafði þessi áhrif,
en þá uppgötvaðist, að það var
B.=-vítamín.
1 súpu, sem unnin eru úr
sýklaskæð lyf, er mikið af B«-
vítamíni og var það nú laus-
lega unnið úr slíkri súpu og
gefið kjúklingum og öðrum ali-
dýrum. Vöxtur þeirra örvaðist
mikið. Þriggja til fjögra vikna
kjúklingar voru allt að 45%
þyngri en meðalkjúklingar á
sama aldri. Vísindamennirnir
þökkuðu þetta vítamíninu, en
svo var kjúklingum gefið hreint
B.i-vítamín og hafði það engin
áhrif á vöxtinn. Það var ber-
sýnilega eitthvað annað í hin-