Úrval - 01.08.1951, Qupperneq 100
98
ÚRVAL
hið endumýjaða hjónaband
þeirra biði við þetta mikinn
hnekki. Casimir afsakaði sig með
því, að hann yrði að líta eftir
fyrirtækinu, sem hann var orð-
inn hluthafi í. En til mikilla
vonbrigða fyrir Áróru, kom i
ljós, að ,,fyrirtækið“ var í raun-
inni hjákona Desgranges, sem
Casimir hafði náð á sitt vald.
Hin háleita hjónabandshugsjón
hafði orðið honum ofviða.
Áróra og Aurelien héldu á-
fram að skrifast á og ást þeirra
var jafn saklaus og ástríðulaus
sem fyrr. „Áróra, ef ég sæi þig
aldrei framar! Mig hryllir við
þessu hræðilega orði,“ skrifaði
hann í einu bréfinu. ,,Ef ég vissi,
að ég mætti einhverntíma hitta
þig, þó að ég fengi ekki að vera
hjá þér nema einn dag, þó að
það væri ekki fyrr en eftir tíu
ár, þá væri ég hamingjusamur.
Vonin ein myndi halda í mér
Iífinu.“
Og þar kom, að þau hittust.
I september 1828 var hann á
ferðalagi í kaupsýsluerindum og
átti leið fram hjá Nohant. Hann
heimsótti Áróru. Þegar hann
kom inn, var hún að sýsla við
föt á ungbarn. Honum fannst
rödd hennar vera dálítið þving-
uð. þegar hún heilsaði honum.
„Hvað ertu að gera?“ spurði
hann og varð hvumsa, þegar
hann veitti því eftirtekt, að hin
andlega brúður hans var að bví
komin að verða móðir í annað
sinn.
„Þú sérð það,“ sagði hún og
brá á glens. „Ég er að undir-
búa komu gests, sem ætlar að
verða fyrr á ferðinni en ég bjóst
við.“
Aurelien flýtti sér að kveðja.
Á þessu augnabliki sá hann hug-
sjónahöllina, sem hann hafði
verið að reisa í þrjú ár, hrynja
í rústir.
Hinn 14. september ól Áróra
dóttur, sem hlaut nafnið Solan-
ge. Bæði Aurelien og Casimir
voru lítt hrifnir af fæðingu
barnsins; Aurelien vegna þess,
að hann kvaldist af efa út af
faðerninu — hann vissi sem sé
ekki hvort Casimir eða einhver
annar var faðir þess; og Casi-
mir leið heldur ekki sem bezt,
því að hann vissi sig saklaus-
an af að hafa getið barnið.
Stéphane de Grandsaigne
hafði komið í heimsókn til No-
hant seint á árinu 1827. Snemma
á næsta ári sagði Áróra manni
sínum að hún væri þunguð, og
Casimir brá svo við fréttina, að
hann lagðist í drykkjuskap. Eft-
ir að barnið fæddist, drakk hann
stöðugt og varð æ ruddalegri
í framkomu.
*
Eftir að hjónabandið var
þannig farið út um þúfur, varð
Áróra sífellt meira einmana,
enda þótt þau hjónin tækju nú
meiri þátt 1 samkvæmislífinu en
áður. Fjölmennur hópur vina og
kunningja gisti oft Nohant.
Sumir komu til að drekka með
Casimir, aðrir til bess að ræða
við Áróru.