Úrval - 01.06.1953, Page 99

Úrval - 01.06.1953, Page 99
SKARTGRIPASKRÍNIÐ 97' á hana, get ég áreiðanlega kennt þér talsvert . . . Sjáðu bara, er ekki gaman að horfa á þetta héma?“ Tanjusjka ætlaði alveg að gleypa það með augunum, og gamla konan hló að henni. „Ertu nú búin að horfa nóg á handavinnuna mína, bamið gott? Og langar þig til að læra að búa til svona hluti?“ „Já, það langar mig!“ sagði stúlkan. Nastasia sagði: „Varaðu þig! Maður fær ekk- ert ókeypis í þessum heimi, og samt ætlar þú að sauma í með silki. „Það kostar peninga að útvega sér efnið.“ „Berðu ekki kvíðboga fyrir því, móðir góð!“ sagði beininga- konan. „Það verða engin vand- ræði með efnið. I þakklætisskyni fyrir að ég fæ að vera hjá ykk- ur, ætla ég að skilja eftir svo mikið, að það nægi nokkuð lengi. Sjáðu bara sjálf. Fólk borgar vel fyrir svona hluti. Þú skalt ekki halda, að við þurfum að vinna kauplaust. Maður verður að minnsta kosti að vera mat- vinnungur." Þá varð Nastasia að láta sig. „Ef þú gefur henni efnið líka, þá er ekkert við því að segja. Láttu hana bara læra eins mikið og hún getur. Og ég er þér meira að segja þakklát.“ Síðan fór konan að kenna Tanjusjku. Og stúlkan var svo fljót að læra hannyrðirnar, að það var engu líkara en hún hefði kimnað talsvert áður. Og það sem meira var — Tanjusjka kom ekki fram við konuna eins og hún væri ókunnug, gestkomandi manneskja. Hún var þvert á móti svo hrifin af henni, að Nas- tasia fór að gefa þeim horn- auga og hugsa með sjálfri sér: „Krakkinn ætlar víst að krækja sér í nýja ættingja. Móð- ir hennar nægir ekki lengur. En hún getur hangið í pilsunum á svona flökkukerlingu.“ Hún varð gröm út í konuna. Hún kallaði Tanjusjku alltaf litlu stúlkuna eða elsku barnið sitt, og aldrei nefndi hún hana með réttu nafni. Tanjusjka tók eftir því að móðir hennar var reið, en hún réði ekki við sig. Hún bar svo mikið traust til aðkomukonunnar, að hún sagði henni frá skríninu. „Við eigum afskaplega falleg- an hlut, sem við erfðum eftir hann pabba. Ósvikið malakít- skrín!“ sagði hún. „Og í því eru gimsteinar! Maður getur horft á þá endalaust." „Sýndu mér það, barnið gott!“ sagði konan. „Ég skal sýna þér það, þegar við erum einar heima!“ sagði' hún. Strax og tækifæri bauðst fór Tanjusjka með konuna niður f kjallarann. Hún gróf skrínið upp og sýndi henni það. Konan horfði stundarkorn á það og sagði síðan: „Settu gripina á þig, þá se ég þá betur!“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.