Úrval - 01.06.1954, Page 62

Úrval - 01.06.1954, Page 62
60 TJRVAL raenn er ekki hægt að dáleiða. Freud fann þá upp aðra aðferð til að fá sjúklingana til að leysa frá skjóðunni — aðferð, sem síðan hefur verið geysimikið notuð. Aðferðin er í því fólgin, að læknirinn lætur sjúklinginn leggjast á legubekk í hálfrokknu herbergi. Sjálfur kemur hann sér fyrir aftan við höf ðalag legu- bekksins, þannig að sjúklingur- inn sér hann ekki. Rökkrið og hvílan hafa sefandi áhrif á sjúk- linginn, það slaknar á spennunni í brjósti hans. Því næst segir læknirinn sjúklingnum að tala hömlulaus um allt það, sem kemur upp í huga hans. Smám saman og með hjálp læknisins dregur sjúklingurinn meira og meira upp úr dulvitund sinni. Tilgangurinn með þessu er ekki aðeins sá að hjálpa læknin- um til að finna rótina að erfið- leikum sjúklingsins, heldur er það lækning í sjálfu sér. Við það að tala, með því að létta á hjarta sínu, opnast augu sjúklingsins fyrir því hvaðan erfiðleikar hans stafa. Hann lærir að líta raun- særri augum á sjálfan sig, og kemst ef svo mætti segja í sátt við hin duldu öfl innra með sér. Fyrst þegar Freud byrjaði að nota þessa aðferð, var hann von- góður um, að hún mundi koma flestum ef ekki öllum sjúkling- um að liði. En hann komst brátt að þeirri niðurstöðu, að sálkönn- unin var ekki allra meina bót. Hún hefur ekki komið að miklu liði við geðveiki, og hún læknar ekki alla þá, sem þjást af tauga- veiklun. Hún er mjög dýr læknis- aðferð og tekur langan tíma, stundum allt upp í tvö ár með vikulegum vitjunum. Tiltölulega mjög fáir sjúkling- ar eiga þess kost að fá full- komna sálkönnun; geðlæknar nota miklu fljótvirkari aðferðir við flesta sjúklinga sína. Eigi að síður hefur legubekkur sálkönn- uðarins reynzt mikilvæg „smá- sjá“ til þess að skyggnast niður í djúp mannshugans. Án hans, og án Freuds, værum vér næsta fáfróðir um þau öfl, sem eru að verki í mannshuganum. Freud átti næstum alla starfs- ævi sína heima í Vín, önnum kaf- inn við rannsóknir, ritstörf og geðlækningar. Andúðin á þeirri dirfsku hans að draga fram í dagsljósið þá hlið mannsins, sem alla tíð haf ði verið hulin í myrkri þagnarinnar, var svo mikil, að hann fékk aldrei boð frá neinum læknaskóla (nema að honum var einu sinni boðið að halda fyrir- Iestra við Vínarháskóla, áður en hann hóf rannsóknir sínar á dul- vitimdinni). Honum var í rauninni engin viðurkenning eða heiður sýndur fyrr en 1930, þegar hann, 75 ára gamall, hlaut Goethe-verðlaunin í bókmenntum. Heiðursfélagi American Psychiatric Associa- tion var hann kjörinn 1936, þá áttræður. Og aðeins fáum vikum áður en hann dó, var hann kjör-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.