Úrval - 01.06.1954, Page 104

Úrval - 01.06.1954, Page 104
102 tJRVAL kona Bills. Þau höfðu auðvitað ekkert húsnæði og fluttu því til mín til bráðabirgða. Enda þótt ég óttaðist að sambúðin yrði ekki upp á marga fiska, rættist betur úr en ég bjóst við. Elín var mér ákaflega góð og sagðist næstum geta sætt sig við að ég væri faðir Bills. Andy kom sér fyrir í New York, en heimsótti okkur um helgar. Gamla drunga- lega húsið var gerbreytt frá því sem áður var. Enda þótt ég færi á hverjum degi í skrifstofuna, fylgdist ég lítið með því sem gerðist í þorp- inu. Ef ég hefði verið spurður, mundi ég hafa svarað að mjög lítið gerðist — það voru aðeins gömlu vandræðin með biluðu leiðslurnar og olíuofnana. Ég hafði séð Rústu þegar hún var á leið til vinnu sinnar eða á leið- inni heim til þess að hugsa um matinn fyrir Jim. Ég vissi að Jim var á fótum, því að ég hafði mætt honum. En það var eins og hann forðaðist mig. Hann var grindhoraður og úttaugaður að sjá. Eitt kvöldið sátum við Arn- old deildarforseti og ég heima hjá mér og ræddum um hvernig nemendurnir úr Hermannaþorp- inu hefðu staðið sig. ,,Ég er ekkert áhyggjufullur út af af sumum piltunum, enda þótt þeim hafi ekki gengið vel,“ sagði hann. „Þeir hafa fengið tóm til að átta sig og kynnast nýjum viðhorfum. Þannig er það með Field. Hann man það sem hann hefur lært hér. Fyrir þá sök verður hann bæði betri vél- virki og betri maður. Aðrir hafa ekki gert annað en að eyða tím- anurn fyrir sér og öðrum. Það varð ekki hjá því kornizt að sú yrði reyndin. En það eru einn eða tveir sem eru á hættulegri braut — Allan Harding og Jim Farr ■— — tveir beztu piltarnir —“ Ég yljaði mér á höndunum við arineldinn. „Hvað er um þá?“ spurði ég. „Harding drekkur of mikið. Það væri búið að reka hann úr skólanum fyrir mörgum vikum, ef hann hefði ekki fengið þetta heiðursmerki og ætti ekki móð- ur, sem mér skilst að hafi fórn- að svo miklu fyrir hann. Þar fer illa gott mannsefni. Eitthvað hefur farið úr skorðum, hvað það er vitum við ekki. En mál hans liggur að öðru leyti ljóst fyrir. Það er þyngri þrautin að skilja hvað gengur að Jim Farr. Honurn gekk prýðisvel í skóla. Og það kemur fyrir að hann stendur sig ágætlega. En annað veifið er hann gersamlega utan við sig. Ég býst við að hann hafi komið hingað of fljótt. Hann hefði þurft að hvíla sig í eitt ár. Og svo er það þessi kona hans.“ „Hvað er að henni?“ spurði ég snöggt (því að þegar hér var komið var mér ekki orðið sama um Rústu). „Hvað er að henni að finna?“ „Ekkert. Nema ef liún skyldi vera of dugleg. Rústa Farr er
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.