Úrval - 01.06.1954, Síða 107

Úrval - 01.06.1954, Síða 107
HETJUR 1 STRlÐI OG FRIÐI 105 væri að hlæja að sjálfum sér og öllum heiminum. „Þeir hafa auðvitað boðið Möggu líka. En hún vill ekki fara. Hún veit hvaða álit mamma hefur á henni — að hún hafi krækt í mig þegar ég var varla með sjálfum mér, að hún hafi eyðilagt líf mitt. Hún vill ekki varpa skugga á Allan Harding. Það er ekki henn- ar eigið stolt sem hún er að hugsa um — það er heiður minn.“ Hann nam staðar. „Mér fannst ég verða að segja þér frá þessu, Rústa,“ sagði hann. Þau stóðu þarna góða stund og störðu hvort á annað. Skyndi- lega fór hún að gráta, bæði af hryggð og reiði. Hann lagði höndina á öxl hennar. „Líttu eftir Möggu fyrir mig,“ sagði hann. „Ef eitthvað kemur fyrir, þá verður þú að koma í veg fyrir að mamma læsi í hana klónum — Hún lofaði því líka. Svo ýtti hann henni allt í einu frá sér og hvarf í þokuna. Hún stóð ein eft- ir, dauðskelfd og fór að hugsa um loforðin tvö. Hún sagði mér frá þessu öllu seinna þegar annað loforðið hafði ógilt hitt. * Einliver kastaði steini í upp- ljómaðan gluggann á bókaher- berginu mínu. Auðvitað var það Rústa. Hún stóð úti í garðinum í rigningunni og brosti til mín. „Hvað gengur nú á?“ spurði ég. „Af hverju hringið þið ekki eins og siðaðar manneskjur?“ „Síminn er bilaður. Hver held- ur þú að sé veikur?“ „Hann Ruffles litli,“ sagði ég. „Alveg rétt. Hann er með hósta. Ef þú kemur ekki strax, þá lifa Alice og Trevor ekki til rnorguns.“ Mér varð skapbrátt og ég skellti aftur glugganum. En þegar ég var kominn út í garðinn til Rústu, var mér runnin reiðin. Mér var ljóst, að þegar eitthvað gekk að Ruffies hegðuðu Alice og Trevor sér eins og geðbilaðar manneskjur. En þannig hegða foreldrar sérávallt þegar fyrsta barnið á í hlut. Alice og Trevor sátu áhyggju- full við sjúkrabeð drengsins, sem var steinsofandi. Eg leit á barn- ið og gat ekki séð að neitt gengi að því. „Hann hóstaði,“ hvíslaði Alice. „Við héldum að hann myndi kafna.“ Þetta var kyrrlátt vetrar- kvöld. Ekkert heyrðist nema andardráttur okkar. Það vareins og allt þorpið væri í fastasvefni, eða væri að bíða eftir einhverju, eins og mér fannst seinna. Allt í einu heyrðust raddir. Þær bárust yfir götuna og við þekktum þær. Það voru raddir Möggu og Allans. Þau voru að hnakkrífast. Við heyrðum ekki hvað þau sögðu, en allt í einu hrópaði Magga: „Gerðu þetta ekki,“ — og í sama bili heyrð- ist högg og stuna eins og hann
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.