Úrval - 01.06.1954, Page 115

Úrval - 01.06.1954, Page 115
Slysfarir s dýraríkinu. Framhald af 4. kápusíðu. geddur, sú minni hálf á kafi í gini þeirrar stærri. Þó það komi fyrir dýr af næst- um öllum tegundum, að þau fari sér að voða með þvi að gina yfir of stórri bráð, þá er þetta þó al- gengast hjá fuglum. Bráðin strandar i koki fuglsins, hann get- ur hvorki kingt henni né losað sig við hana. Það eru mörg dæmi til þess að stórir álar hafi þannig drepið hegra. Áll, sem lendir í hegragini á það til að vefja endanum, sem út úr stendur, um háls hegrans og kyrkja hann. Maður nokkur var vitni að því, að skarfur lenti í þesskonar klípu, en honum tókst þó um síðir að losa sig við álinn. Isfugl hremmdi eitt sinn 15 sm langan ál; állinn vafði sporðinum um háls fuglsins og hálsbraut hann. Cumming segir frá því, að sér hafi eitt sinn verið send topp- önd, sem hafi verið með helm- inginn af sex sm löngu álaseiði í vinstri nösinni, hinn helminginn hafði öndin étið. Stundum tekst bráð, sem gleypt hefur verið lifandi, að brjótast út aftur. Amerisk náttsvala gleypti einu sinni stóra bjöllu, sem slapp aftur með þvi að bora sig i gegn- um háls svölunnar. Þorskur gleypti krabba lifandi. 1 iðrum þorsksins lagði krabbinn þegar af stað í könnunarleiðangur. Hann gróf sig í gegnum kúttmagann og þegar þorskurinn var ristur á kvið, fannst krabbinn í kviðarhol- inu, einna líkastur smurningi (múmíu). Einu sinni fannst for- láta vasahnífur með látúnsskafti i holdi þorsks. Eins og við er að búast, fara mörg vill’t dýr sér að voða með því að éta eitraða fæðu. Fuglar drepast af því að gleypa grammó- fónnáiar, nagla, öngla, glerbrot og ýmsa aðra ómeltanlega hluti, sem særa innyflin og valda sýk- ingu. Grófar plöntutrefjar, snæri eða mjúkur vir, sem fuglar gleypa stundum, geta valdið þarmastíflu. Endur gleypa stundum blýhögl eða skotfæraleifar og drepast þá af blý- eða fosfóreitrun. Flughrað- inn verður fuglum mjög oft að bana. Það kemur að visu sjaldan fyrir, að fuglar rekist á í loftinu, en komi það fyrir, verður það oft- ast beggja bani. Lítilfjörlegasta hindrun nægir oft til að skaða fugl á flugi. Menn vita nokkur dæmi þess, að fuglar hafi lifað áfram, þó að viðarteinungar eða tréflísar hafi rekizt í gegnum þá. Þannig fannst einu sinni flökkudúfa með 23 sm langa beykigrein í gegnum sig. Greinin stóð 'tíu sm upp úr hryggn- um. Sennilega hefur dúfan dottið úr hreiðrinu sem ungi og greinin rekist í gegnum hana. Þegar hún náðist, var hún orðin gömul og greinin mikið veðruð. Til eru all- margar skráðar heimildir um, að storkar hafi komið úr vetrardvöl í Afríku með negraör i gegnum Framhald á 2. kápusíðu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.