Úrval - 01.12.1955, Side 13

Úrval - 01.12.1955, Side 13
ÆVINTÝRIÐ UM „APAFÓSTRIÐ" 9 in hjá öðrum tegundum lífvera. Mannleg skynsemi, vitund og mál verða að teljast algerlega einstæð fyrirbrigði, utan við hina almennu rás þróunarfyrir- brigða. Það er tiltölulega auð- velt að taka gilda myndunar- fræðilega og líkamlega þróun annarra tegunda, af því að mun- urinn frá einu stigi til annars er ekki — eða virðist að minnsta kosti ekki vera — til- takanlega mikill. En milli dýranna og manns- ins er regindjúp. Vísindamenn- irnir virðast hafa lagt yfir þetta djúp brú, sem er svo veikbyggð og ótraust að mörgum heiðar- legum og skynsömum mönnum virðist hún lítið annað en blekk- ing. Hefur aldrei sótt að yður efi um sannleiksgildi þeirra skýringa sem vísindin gefa á umbreytingu dýrs í mann? J. R.: Þeirri spurningu get ég strax svarað afdráttarlaust neitandi. Ég hef efast um — og efast enn um — ýmislegt í líffræði og í mörgum atriðum hef ég breytt um skoðun um ævina; í sumum efnum hef ég jafnvel skipt um skoðun oft á dag. Þér munið að Renan sagði þetta um skoðanir sínar á nokkrum mikilvægum heim- spekilegum vandamálum — svo að þér sjáið að ég syndga í góðum félagsskap. En um þá kenningu, að mað- urinn sé kominn af dýrunum, hef ég aldrei efast. Og ég fæ ekki séð hvernig nokkur maður getur efast um hana, einkum þegar þess er gætt hve margar millistigstegundir hafa fundizt. Við höfum áþreifanlegar sann- anir fyrir því að þessi dýr lifðu hér á jörðinni, eins ótvíræðar sannanir og ef þau væru lifandi enn í dag. Við höfum sama rétt til að draga ályktanir eins og ef við hefðum þekkt þessi dýr, séð þau og alið í dýragörðum okk- ar — dýr sem voru næstum menn; verur sem greindu í þoku það sem okkur er skýrt fyrir sjónum. Og djúpið sem þér sögðuð að væri milli mannsins og annarra dýra, þetta djúp hef- ur þegar verið brúað, því að það er næstum víst að taung- apinn og Javamaðurinn, sem víð vorum að tala um áðan, voru millistig eða tengiliðir, bæði í andlegu og líkamlegu tilliti, milli mannsins og annarra dýra. Það hafa ekki fundizt eftir þá nein áhöld, en þeir hafa að öllum líkindum verið gæddir meiri hugvitssemi en apar. Hafi þessi dýr ekki gert áhöld, virð- ist efalaust að þau hafa notað náttúrlega hluti sem áhöld, mis- jafnlega mikið löguð til. Ekkí er heldur óhugsandi að þau hafi verið byrjuð að tala, hafi raun- verulega verið farin að sýna þá sérstöku mannlegu hæfileika sem áttu eftir að hafa jafn- stórkostlegar afleiðingar og: raun varð á. P. B.: Af hverju geta apar ekki talað? Mundi vera hægt að kenna þeim að tala?
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.