Úrval - 01.12.1955, Blaðsíða 42
38
ÚRVAL
angi, sem fæddur var fyrir tím-
ann, var látinn í fósturkassa
hjá miklu stærra barni, af því
að annar kassi var ekki laus.
Litli anginn fann fót rekkju-
nautar síns við kinn sér, kom
upp í sig stóru tánni og saug
hana sæll og ánægður, bæði
ljósmóðurinni og móðurinni til
mikillar gleði, því að þetta var
merki um heilbrigðan lífsþrótt.
Svo virðist sem það fari nokk-
uð eftir löndum hve algengt það
er að mæður geta ekki haft
börn á brjósti. Hvergi mun
þetta getuleysi jafnalgengt og í
Bandaríkjunum. 1 Svíþjóð hafa
9 af hverjum 10 mæðrum börn
sín á brjósti. Þar er talið sjálf-
sagt, að móðirin hafi barn sitt
á brjósti. Móðirin vill það og
barnið líka, og þeim verður
báðum að ósk sinni. Og bæði
njóta þessa náttúrlega, nána
samneytis.
Það er mikið um það talað,
að það sé nauðsynlegt fyrir
eðlilegan geðþroska barnsins að
það fái að sjúga móður sína.
Þetta er vafalaust rétt, en það
mætti líka gjarnan leggja á-
herzlu á þau góðu áhrif sem
brjóstgjöfin hefur á mó'ðurina.
Brjóstgjöfin er líkamlega ná-
tengd fæðingunni. Þegar litli
munnurinn togar í brjóstvört-
una, hefur það þau áhrif, að
legið dregst saman — sem er
mikilvægur þáttur í viðleitni
náttúnmnar til að koma sköpu-
Iagi móðurinnar aftur í
réttar skorður. (Athuganir
benda til, að þessir háttbrmdnu
samdrættir haldi áfram í 20
mínútur eftir að barnið byrjar
að sjúga.)
Brjóstagjöfin örvar myndun
hormóna, ekki aðeins fyrir leg-
ið og brjóstin, heldur fyrir allan
líkamann. Líffræðilega er þetta
þáttur í hinum háttbundnu
sveiflum í líffærastarfsemi kon-
unnar. ,,Brjóstgjöf,“ segir dr.
C. Anderson Aldrich í grein í
Ameríska Iæknablaðinu, ,,er
þáttur í sálrænu þroskaferli
konunnar.“ Æxlunai’hlutverki
konunnar er þá fyrst lokið, þeg-
ar getnaður, fæðing og eðlileg
brjóstgjöf hefur farið fram.
Heilbrigðar mæður, sem hafa
börn sín á brjósti, eru á einu
máli um, að brjóstgjöfinni
fylgi vellíðan, beinlýnis unaður,
er sé bæði líkamlegs og sálræns
eðlis. Hversvegna svifta svo
margar mæður sig einhverri
þeirri fegurstu líkamlegu
reynslu, sem lífið hefur að
bjóða þeim? Blátt áfram af því
að þær þekkja hana ekki og
þeim er ekki sagt frá henni.
Blöð og kvikmyndir eru of önn-
um kafin að lofsyngja brjóstin
sem útvortis kyntákn, er séu
til þess eins að lokka karl-
mennina.
Sem betur fer eru enn til
margir eiginmenn, sem eru
stoltir af að sjá konu sína með
barn á brjósti. Með barn sitt á
brjósti er konan í augum þeirra
fegursta madonna í heimi. Það
er blátt áfram óhugnanlegt, að