Úrval - 01.12.1955, Blaðsíða 41
ÖFGAFULL DÝRKUN KONUBRJÖSTANNA
37
áherzla er lögð á þetta einkenni
konunnar.
Þeim auglýsingum í blöðum
f jölgar stöðugt, sem bjóða kon-
um hverskyns ráð til að stækka
brjóst sín og fjölbreytninni í
gerð brjósthalda með svamp-
gúmmí og öðrum tilfæringum
eru lítil takmörk'seft. Er þet'ta i
hvorttveggja ótvíræður vitnis-
burður um það hve „brjóstdýrk-
unin“ er komin út í öfgar í þjóð-
félagi voru. Flestir læknar munu
geta staðfest, að tvær af hverj-
um þrem konum, sem hafa eðli-
lega þroskuð brjóst, reyna að
hressa upp á handarverk skap-
arans með því að nota gúmmí-
brjóst. Og alltof margar konur
grípa til þeirra varhugaverðu
úrræða að láta gera skurðað-
gerð á brjóstum sínum, dæla í
þau paraffíni, eða annað þvílikt.
Að konan sé sköpuð til að vera
móðir frekar en til að fullnægja
kynhvöt sinni og manns síns,
það virðist næstum gleymt spak-
mæli. Vaxandi óbeit ungra
mæðra á því að hafa börn sín
á brjósti er einn þátturinn í
þeirri óeðlilegu áherzlu, sem
nútíminn leggur á þetta frjó-
vana kynhlutverk konunnar. Á-
stæðan, sem fram er færð fyrir
því að ungar mæður færast
undan að hafa börn sín á brjósti,
er sú, að þær séu of latar eða
ófúsar að binda sig vegna þarfa
barnsins. En ég er hræddur um,
að umhyggjan fyrir útliti
brjóstanna eigi ekki minni þátt
í því.
Bersýnilegt er, að margar
konur óttast, að brjóstin verði
slöpp og lafandi af því að hafa
barn á brjósti. Þetta er alrangt.
Það er svo fjarri því, að brjóst-
gjöf' hafi Skaðleg áhrif á útlit
brjóstanna, að mörg dæmi eru
til þess iað flatbrjósta ungar
konur hafa fengið bústin brjóst
eftir að hafa haft fyrsta barn
sitt á brjósti.
Að gefa barni brjóst er betra
fyrir heilbrigði og fjaðurmagn
brjóstanna heldur en sú ónátt-
úrlega aðferð að binda upp
brjóstin eða gefa hormóna til
að stöðva náttúrlegt mjólkur-
rennsli til þeirra. Sumar rann-
sóknir benda til, að þær konur,
sem hliðra sér hjá að nota
brjóstin til þess, sem þau eru
sköpuð til, eigi öðrum fremur
á hættu að fá krabbamein í
brjóst. Þetta er að vísu enn
ósannað, en hitt er á vitorði
allra lækna, að brjóstum, sem
fá ekki að gegna hlutverki sínu,
er hættara við sjúkdómum en
öðrum brjóstum.
Margar mæður, sem ekki hafa
börn sin á brjósti, kenna því
um að þær mjólki ekkert, eða
að barnið vilji ekki brjóstið.
Sannleikurinn er hinsvegar sá,
að nýfætt heilbrigt barn leitar
ósjálfrátt eftir brjósti móður
sinnar. Eitt hið fyrsta sem það
gerir er að reyna að koma ein-
hverju mjúku upp í soltinn
munn sinn. Fyrir nokkrum dög-
um kom það fyrir á spítalanum
hjá okkur, að fjögra marka