Úrval - 01.12.1955, Blaðsíða 44
40
ÚRVAL.
Rolligonmn er ökutæki, sem
énn er á tilraunastigi. En hug-
myndin, sem gerð hans byggist
á, er ef til vill merkilegasta nýj-
ung í samgöngutækni, sem f ram
hefur komið síðan hjólið var
fundið upp. Ríkisstjórn Banda-
ríkjanna hefur eytt 20 milljón-
um króna í tilraunir á þessu
sérkennilega ökutæki, sem hún
hyggst nota til herflutninga yfir
veglaus öræfi. Þessar tilraunir
hafa staðfest, að aka má rolli-
goninum yfir snjó, sand, ís, for-
areðju, fenjamýrar, kletta og
runna í hvernig veðri sem er.
Og hann er ekki dýrari í rekstri
en sambærileg ökutæki.
Saga rolligonsins byrjar á
Beringssundi við strönd Alaska
vordag einn árið 1935, þar sem
Albeehjónin vor kennarar í
Eskimóabyggð. Albee var að
koma af rostungsveiðum ásamt
tíu Eskimóum í húðkeip. Þeir
höfðu veitt vel og nú þurfti að
koma veiðinni heim. Albee
horfði á Eskimóana blása upp
þéttsaumaða selskinsbelgi. líka
koddum í laginu. Á þessum
helgjum fluttu þeir fimm lestir
af rostungskjöti upp brattan
malarkamb, býsna stórgrýttan,
eins og leikur væri.
Albee hugsaði ekki frekar um
þetta fyrr en eftir að Kóreu-
stríðið hófst. Bandaríski herinn
var vel búinn að ökutækjum,
en þau komu að litlu gagni á
forarblautum vegum landsins
og hrísgrjónaökrunum, sem
voru að mestu undir vatni.
Wedemeyer hershöfðingi var
góðvinur Williams Albee og
spurði hann eitt sinn að því
hvoi$ >{hann gæti ekki útbúið
eitthvert Ökutæki í svipuðum
dúr og þessir belgir, sem hann
hefði einu sinni sagt sér, að
Eskimóar notuðu. „Væri ekki
hægt að nota einhver þvílík
ökutæki til birgðaflutninga á
hrísökrunum í Kóreu?“ spurði
hann.
Albee keypti sér sex gúmmí-
fótknetti í leikfangabúð og fór
með þá heim til Wedemeyers.
Þar blés hann þá upp, þó ekki
meira en svo að þeir voru linir.
Því næst tóku þeir, hann og
hershöfðinginn, þungt kínverskt
kaffiborð, hvolfdu því og
lögðu það á knettina. Kona
Albees og kona hershöfðingj-
ans komu fyrir allskonar farar-
tálmum á gólfinu: pappírspress-
un, öskubökkum og bókastoð-
um. Því næst stigu hershöfð-
inginn og kona hans upp á
borðið og héldu sér í fæturna,
en Albee ýtti borðinu hægt
fram og aftur eftir gúmmí-
knöttunum og yfir torfærurn-
ar.