Úrval - 01.12.1955, Side 28

Úrval - 01.12.1955, Side 28
2-1 ÚRVAL líf. Vegur hans er krókóttur, dimmur og vandrataður, og það er enginn sem getur vísað hon- um. veginn. Þær stundir koma þegar heimurinn sem hann hef- ur skapað er svo gagntekinn fögnuði og sindrandi af fegurð að ekkert af þessu skiptir neinu máli. Ástarsælan ein þolir sam- anburð við hann. En eins og ástarsælan er hann skammær. Eifiðleikar starfsins segja aftur til sín, orðin fara í felur, setn- ingarnar hnjóta hver um aðra, myndirnar verða óljósar og raddirnar óskýrar. Ef þú gerist lifsförunautur hans, muntu ekki komast hjá því að dragast inn í baráttu hans, og þó að þú fáir að njóta með honum sumra hamingjustunda hans, munu sár hans einnig verða sár þín. 'Ég endurtek því að lokum það sem ég sagði í upphafi: ég ræð þér eindregið frá því að giftast Georg. Og þó — hver veit — ef til vill kemur einhvern tíma sá dagur þegar þér verður innanbrjóst eins og Virginíu Woolf þegar hún gekk eftir götum Lundúna eftir að hafa nýlokið við að skrifa bók. Hún segir að sig hafi langað til að rétta fram hendurnar til allra sem hún mætti og segja: „Sjáið — lítið á hvað ég hef gefið ykkur!“ Þó að þú hafir ekki skrifað bókina, gæti þér fundizt næst- um eins og þú hefðir skrifað hana, því að þú hefur átt mik- inn þátt í að hún varð til. Hve mikinn mun enginn vita nema þú — en ef til vill nægir það til að bæta upp allar fórnirnar. Það er von mín. Þinn Georg. I KIRKJU. Tveii’ enskir sjómenn, sem höfðu tveggja daga viðdvöl í sænskri borg, ákváðu að fara til kirkju. Þeir settust á næst fremsta bekk, og af því að þeir kunnu ekkert í sænsku, ákváðu þeir að haga sér í öllu eins og maður, sem sat á fremsta bekk beint fyrir framan þá. Er nokkuð var liðið á messuna, flutti presturinn söfnuðinum einhvern boðskap og maðurinn fyrir framan sjómennina stóð upp. Sjómennirmr spruttu á fætur líka — en heyrðu þá niðui’- bælt fliss fyrir aftan sig og flýttu sér að setjast aftur. Að lokinni messu heilsaði presturinn sjómönnunum og þegar í ljós kom að hann kunni ensku, spurðu þeir hversvegna söfnuð- urinn hefði farið að flissa. „Ég var að tilkynna skírn," sagði presturinn, ,,og bað föður barnsins að standa upp.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.