Úrval - 01.12.1955, Side 33
SILICONIN ERU UNDARLEGRAR NÁTTÚRU!
29
til að húða innan penisillínglös
svo að ekkert sitji eftir í þeim
þegar sogið er upp í sprautuna,
og til að húða steinsteypu og
terrassó til varnar gegn regni,
snjó og óhreinindum.
Af tilviljun uppgötvaðist, að
ein tegund fljótandi silicons
kom í veg fyrir myndun froðu í
heitum vökvum, einkum gljá-
kvoðu, ef örlitlu af því var bætt
út í. Froðueyðandi silicon er nú
notað við framleiðslu sýróps,
sultu, ávaxtahlaups o. fl. Þau
eru jafnvel notuð sem kúalyf.
Ef kýr éta mikið af hálfsprottn-
um, votum smára, veldur það
loftmyndun í maga þeirra, sem
getur orðið svo mikil, að kýrnar
drepist af henni. Siliconefna-
fræðingur stakk upp á því, að
reynt yrði að gefa kú með
þannig þembu froðueyðandi sili-
con. Árangurinn lét ekki á sér
standa, kýrin ropaði hraustlega.
og batnaði þemban. Af 155 kúm,
sem gefið var silicon við þembu,
batnaði 115 alveg, mörgum á
ótrúlega skömmum tíma.
Með nýjum uppgötvunum ■—-
sem sumar eru gerðar af tilvilj-
un en aðrar samkvæmt áætlun-
um — er sífellt verið að finna
ný svið fyrir notagildi silicona.
Fáein dæmi: þau eru notuð í
vökvaþrýstitæki, sem smurn-
ingsolía í innsigluðum raf-
magnsmótorum, t. d. í raf-
magnsrakvélum, klukkum, vift-
um, þvottavélum, ísskákum o.
fl., 1 málningu sem þolir miklu
meiri hita en önnur málning, til
að gera við Ijósmyndafilmur
sem hafa rispast eða fengið á
sig fingraför, og sem gúmmí í
ýmiskonar myndum, er fram-
Íeiðendur bíla, flugvéla benzín-
hreyfla, þrýstiloftshreyfla og
fjarstýrðra flugskeyta nota nú
orðið í stað venjulegs gúmmís.
Og eftir tíu ára þrotlausar
tilraunir hefur nú siliconein-
angrun í rafmagnsmótorum
hlotið viðurkenningu. Ljóst
verður hvílíka framför hér er
um að ræða þegar þess er gætt,
að siliconeinangraðir hreyflar
eru helmingi léttari og taka
helmingi minna pláss en eldri
hreyflar.
„Fræðilega séð er hægt að
búa til milljónir siliconefnasam-
banda með því að breyta bygg-
ingu atómkeðjunnar,“ segir dr.
Charles Reed, forstjóri silicon-
deildar General Electric verk-
smiðjanna. „Aðeins nokkur þús-
und hafa enn verið rannsökuð,
sem merkir í raun og veru, að
siliconiðnaðurinn er enn á byrj-
unarstigi."
Samvizka Englendingsins kemur ekki i veg fyrir að halm
sjrndgi; hún kemur aðeins í veg fvrir að hann njóti syndarinnar.
-— Salvador de Madariage.