Úrval - 01.12.1955, Blaðsíða 54
50
ÚRVAL,
franskur læknir, dr. Suzanne
Serin, við mig, og hún bætti
við: „Óhófleg víndrykkja barna
er algeng. Mörgum foreldrum
finnst það eins og að svifta
bömin gómsætum ábæti að
neita þeim um vín.“
f skýrslu dr. Serin til franska
læknaráðsins eru tilgreind þrjú
dæmi: Nítján mánaða gamalt
barn dó í sjúkrahúsi úr drykkju-
æði (delerium tremens). Lucien,
5 ára drengur, var rekinn úr
smábarnaskóla vegna vanstill-
ingar, drakk hálfan lítra af
víni á dag, af því að faðir
hans sagði, að vatn væri óhollt,
„fullt af mænusóttarsýklum.“
Áfengissjúklingur. — Pierre, 7
ára drengur, greindúr og gæf-
lyndur, varð allt í einu önug-
lyndur og vanstilltur. Sagði við
geðlækni: „Á nóttunni sé ég
vængi — nei, hendur — eitt-
hvað hvítt sem dansar á sæng-
inni minni. Það er hræðilegt!“
Drengurinn drakk „aðeins
hreint vín,“ um eina flösku á
dag og á kvöldin glas af port-
víni með tveim hrærðum eggj-
um, af því að „hann er svo
órólegur,“ sögðu foreldrar hans.
Hve alvarlegt ástandið er má
ráða af einni tillögu dr. Serins
til læknaráðsins. Hún er sú,
að „það ætti að banna börnum
að koma með vín í skólann til
að drekka með miðdegismatn-
um sínum.“
Andróðurinn gegn áfengis-
neyzlu, sem hafin var í stjórn-
artíð Mendés-France, virðist þó
loks vera farinn að opna augu
þjóðarninar fyrir alvöru máls-
ins. Um leið þykjast menn hafa
fundið sökudólgana: hina lög-
giltu heimabruggara sem eru
um 3.650.000 talsins. Þeir hafa
heimild til að brugga 40 millj-
ónir lítra af brenndum vínurn
skattfrjálst. Hugmyndin er sú,
að sem bændur hafi þeir rétt til
að búa til brennivín úr úrgangs-
ávöxtum sínum. Hreppstjórar
veita þessi leyfi samkvæmt um-
sóknum. Að áliti dr. May eima
þessir bændur annað eins í
óleyfi. En þeir sem kenna
brennivínsbruggi bænda um of-
drykkjuvandamálið gleyma, að
meira en helmingur franskra
ofdrykkjumanna drekkur nær
eingöngu létt vín.
1 lok ársins 1954 gaf stjórn
Mendés-France út 11 reglugerð-
ir og lagði fram 8 lagafrumvörp
í þinginu, er miðuðu að því að
fækka heimabruggurum og
vínsölustöðum. Sum þessara
ákvæða munu nú vera gengin
í gildi, t. d. um lokun vínsölu-
staða einn dag í viku- hærri
sektir fyrir ölæði á almanna-
færi, hækkun á áfengistolli og
fækkun vínsölustaða. Hver sá
sem sækir um leyfi til að opna
vínsölubúð, verður að skila
tveim vínsöluleyfum, sem hanrr
hefur keypt. Þannig er tveim
vínsölustöðum lokað fyrir hvern
einn, sem opnaður er.
Mendés-France gerði ýmis-
legt fleira til að draga úr áfeng-
isneyzlu en að semja lög og gefa