Úrval - 01.12.1955, Síða 71
MERKILEGT HÁTTERNI MAURA
6T
höfðu utan um hvern bita fyrir
sig. Kringum minnsta bitann
voru 28 maurar, kringum annan
bitann 44 og kringum þann
stærsta 89. Fjöldahlutföllin
svöruðu þannig nokkurn veginn
til stærðarhlutfalla bitanna.
Hver maur hafði þannig tekið
með sér liðsauka, sem svaraði
til stærðar þess bita, sem hann
hafði fundið.
Maurarnir geta, eins og hinir
tvifættu og raunar einnig fer-
fættu ættingjar þeirra, orðið
,,taugaveiklaðir“ ef þeir komast
í vanda, sem þeir geta ekki ráð-
ið fram úr. Frá einu slíku dæmi
segir dr. Derek W. Morley, sem
vinnur við dýrakynbótastofnun-
ina í Edinborg.
Dr. Morley hefur maurabú í
rannsóknarstöðsinni. Til þess að
prófa greind þeirra, lætur hann
þá fara í gegnum völundarhús,
af svipaðri gerð, en að sjálf-
sögðu minna en það, sem notað
er til að prófa rottur.
Einu sinni setti hann einn af
skynsömustu maurunnm sínum
aftur inn í völundarhúsið strax
eftir að hann hafði komizt
klakklaust gegnum það. En bá
villtist maurinn og lenti í lokuð-
um gangi. í stað þess að snúa
aftur og reyna að finna rétta
leið hélt hann kyrru fyrir í enda
gangsins. Hann þuklaði alla
þrjá veggina og varð sífellt óró-
legri. Sérstaklega áberandi
kvíðaeinkenni voru kippir í fót-
unum og fálmurunum. Að lok-
um stóð hann þó þannig að höf-
uðið vissi fram ganginn, en þá
hafði hann misst alla stjóm á
sér og gekk með rikkjóttum
skrefum í sífellda hringi.
Dr. Morley bjargaði maui’n-
um, lét renna yfir hann kalt
vatn í nokkrar sekúndur og setti
hann svo í hreiðrið sitt; jafn-
aði hann sig þar brátt og gat
gengið eðlilega.
Af steingerðum mauram, sem
fundizt hafa í jarðlögum, hafa
menn getað ráðið, að fyrir að
minnsta kosti 30 miiljónum ára
hafi verið til maurar sem lifðu
eins og maurar lifa enn í dag..
í stórum samfélögum þar sem
ríkir stétta- og vinnuskipting.
„Þegar við athugum siði
mauranna," skrifaði Avebury
lávarður, brautryðjandi maura-
rannsókna í Bretlandi, „þjóð-
skipulag þeirra, bústaði, vegi.
húsdýrarækt og jafnvel þræla-
hald, verðum við að viðurkenna
að þessi merkilegu dýr eru gædd'
furðulegri eðlisgreind.“
Þessari eðlisgreind geta menn
kynnzt um allan heim. Maurar
lifa allsstaðar: í frumskógum
og eyðimörkum, í hjarta Lund-
úna, New York og Parísar, í'
hlíðum Klettafjallanna, Hima-
laja og Andesfjalla. Vísinda-
mönnum eru kunnar 3500 teg-
undir.*)
*) Ekki hefur þessi eðlisgreind þó-
vísað maurunum til Islands. Hér á.
landi eru engir maurar. — Þýð.