Úrval - 01.12.1955, Page 107

Úrval - 01.12.1955, Page 107
UPPREISN UM BORÐ 103 með því að veita mótspyrnu, voru þeir að hrinda af stað al- mennu blóðbaði. Þaðvoru að minnstakostitveir af eyjarskeggjum, sem sáu hvað var í aðsigi. Það voru hjónin, sem William Lay var í vinfengi við. I stað þess að taka þátt í árásinni, smugu þau gegnum mannþyrpinguna, náðu í Lay og drógu hann bókstaflega út úr þvögunni. Allt var komið í uppnám. Hróp og blótsyrði hinna særðu hvalveiðimanna yfirgnæfðu her- óp eyjarskeggja. Þegar Lay leit um öxl, sá hann félaga sína hníga í valinn, hvern um annan þveran, umkringda iðandi kös blökkumannanna. Þegar hjónin komu með Lay til þorpsins, lokuðu þau hann þegar inni í kofa sínum. Þar hímdi hann og hlustaði á óhljóð- in úti fyrir, þegar árásarmenn- irnir komu sigurglaðir heim eft- ir blóðbaðið á ströndinni. Lay reyndi að skríða inn í myrkasta skotið í klefanum og velti því fyrir sér, hve lengi hann gæti leynzt. Hann þurfti ekki að bíða lengi, því að von bráðar kom gamli maðurinn inn í kofann og leiddi Lay út. Lay bjóst við öllu hinu versta. Hann sá hóp eyjarskeggja stefna til kofans og í miðjum hópnum var hvítur maður. Þetta var Cyrus Hussey. Vinur hans hafði bjargað hon- um á svipaðan hátt og gömlu hjónin höfðu bjargað Lay. Enda þótt skipsfélagarnir tveir væru farnir að skilja hrafl í tungu eyjarskeggja, var há- vaðinn svo mikill í kringum þá, að þeir gátu ekki greint hvað var á seiði. Allt í einu voru þeir skildir að; Lay var aftur leidd- ur inn í kofann, en Hussey var búinn dvalarstaður í hinum enda þorpsins; það var auðséð. að eyjarskeggjar ætluðu ekki að láta þá brugga nein launráð. Lay og Hussey lágu báðir and- vaka þessa nótt, hvor í sinurn kofa. Fyrir hugskotssjónum sín- æm sáu þeir blóðbaðið hryllilega, sem þeir höfðu orðið vottar að niðri á ströndinpi. Þannig vildi það til, að tveir ungir hvalveiðimenn frá Nýja Englandi, þeir William Lay og Cyrus Hussey, dvöldu hálft ann- að ár meðal villimanna á Mili- eyju á Kyrrahafi. Þeir gátu aldrei gleymt hinum hryllilega dauðdaga félaga sinna. Þeir höfðu ávallt komið vel fram við hina innbornu, og því var þeim þyrmt. En þeim var ljóst, að önnur siðalögmál giltu á þessari eyju en í löndum hvítra manna, og það var valt að treysta því, að þakklæti eyjarskeggja myndi vernda líf þeirra til langframa. Það var ekki farið illa með þá. Þetta var að mörgu leyti skemmtilegt líf — þeir reikuðu um eyna, fengu sér miðdegisdúr í strákofunum, tíndu brauðald- in og kókóshnetur, syntu í tæru lóninu, stunduðu fiskveiðar eða
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.